Fræðsluráð

24. fundur 20. janúar 2020 kl. 13:30 - 15:00 Brekkuskóli
Nefndarmenn
  • Ingibjörg Ólöf Isaksen formaður
  • Ragnheiður Lilja Bjarnadóttir
  • Þorlákur Axel Jónsson
  • Berglind Ósk Guðmundsdóttir
  • Hlynur Jóhannsson
  • Þuríður Sólveig Árnadóttir áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Karl Frímannsson sviðsstjóri fræðslusviðs
  • Árni Konráð Bjarnason forstöðumaður rekstrardeildar
  • Anna Lilja Sævarsdóttir fulltrúi leikskólastjóra
  • Atli Þór Ragnarsson fulltrúi foreldra leikskólabarna
  • Eyrún Halla Skúladóttir fulltrúi skólastjóra
  • Jóhann Gunnarsson fulltrúi foreldra grunnskólabarna
  • María Aðalsteinsdóttir fulltrúi grunnskólakennara
  • María Aldís Sverrisdóttir varamaður fulltrúa leikskólakennara
  • Bryndís Valgarðsdóttir fulltrúi skólastjóra
  • Erna Rós Ingvarsdóttir fundarritari
Fundargerð ritaði: Karl Frímannsson sviðsstjóri fræðslusviðs
Dagskrá
Berglind Ósk Guðmundsdóttir D-lista mætti í forföllum Þórhalls Harðarsonar.
Hlynur Jóhannsson M-lista mætti í forföllum Rósu Njálsdóttur.
María Aldís Sverrisdóttir mætti í forföllum Ellýjar Drafnar Kristjánsdóttur fulltrúa leikskólakennara.
Hildur Lilja Jóhannsdóttir fulltrúi ungmennaráðs boðaði forföll.

1.Mannréttindastefna 2019 - 2023

Málsnúmer 2019030417Vakta málsnúmer

Mannréttindastefna Akureyrarbæjar lögð fram til umsagnar.
Athugasemdir sem bárust verða sendar til sviðsstjóra samfélagssviðs.

2.Skólaleikur

Málsnúmer 2018020316Vakta málsnúmer

Viðauki vegna Skólaleiks lagður fram til afgreiðslu.
Fræðsluráð samþykkir að verkefninu Skólaleik verði hætt og verður það því ekki starfrækt í ágúst nk. Ráðið leggur ríka áhersla á að aðlögun verðandi 1. bekkinga verði áfram sinnt eins og best verður á kosið með skipulegu starfi.



Fræðsluráð felur sviðsstjóra fræðslusviðs að ræða við aðila um skipulag samstarfs milli leik- og grunnskóla og kynna fyrirkomulag fyrir ráðinu.


Þær u.þ.b. 10 milljónir kr. sem ráðgert var að leggja í verkefnið verða bakfærðar af þeim sjö grunnskólum sem starfræktu Skólaleik. Forstöðumanni rekstrar er falið að framkvæma þá breytingu í samráði við sviðsstjóra fjársýslusviðs.

Fræðsluráð vísar viðaukanum til bæjarráðs.

3.Yfirlit um yfirvinnu stofnana á fræðslusviði

Málsnúmer 2018100120Vakta málsnúmer

Staða yfirvinnu innan fræðslumála árið 2019 lögð fram til kynningar.

4.Ytra mat á grunnskólum 2015-2020

Málsnúmer 2015050045Vakta málsnúmer

Niðurstöður ytra mats Menntamálastofnunar í Giljaskóla sem framkvæmt var í nóvember 2019 lagðar fram til kynningar.

5.Skólaheimsóknir fræðsluráðs 2019-2022

Málsnúmer 2019110081Vakta málsnúmer

Jóhanna María Agnarsdóttir skólastjóri Brekkuskóla mætti á fundinn og kynnti starf Brekkuskóla.

Fundi slitið - kl. 15:00.