Fræðsluráð

19. fundur 11. nóvember 2019 kl. 13:30 - 15:00 Naustaskóli
Nefndarmenn
  • Ingibjörg Ólöf Isaksen formaður
  • Þorlákur Axel Jónsson
  • Rósa Njálsdóttir
  • Þórhallur Harðarson
  • Þuríður Sólveig Árnadóttir áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Karl Frímannsson sviðsstjóri fræðslusviðs
  • Árni Konráð Bjarnason forstöðumaður rekstrardeildar
  • Eyrún Halla Skúladóttir fulltrúi skólastjóra
  • Hildur Lilja Jónsdóttir fulltrúi ungmennaráðs
  • Jóhann Gunnarsson fulltrúi foreldra grunnskólabarna
  • María Aðalsteinsdóttir fulltrúi grunnskólakennara
  • Anna Lilja Sævarsdóttir fulltrúi leikskólastjóra
  • Atli Þór Ragnarsson fulltrúi foreldra leikskólabarna
  • María Aldís Sverrisdóttir varamaður fulltrúa leikskólakennara
  • Erna Rós Ingvarsdóttir fundarritari
Fundargerð ritaði: Karl Frímannsson sviðsstjóri fræðslusviðs
Dagskrá
Ragnheiður Lilja Bjarnadóttir L-lista boðaði forföll sín og varamanns.
María Aldís Sverrisdóttir fulltrúi leikskólakennara mætti í forföllum Ellýjar Drafnar Kristjánsdóttur.
Anna Lilja Sævarsdóttir fulltrúi leikskólastjóra mætti í forföllum Jakobínu Elínar Áskelsdóttur.

1.Rekstur fræðslumála 2019

Málsnúmer 2019030196Vakta málsnúmer

Árni K. Bjarnason forstöðumaður rekstrar lagði fram til kynningar stöðu fræðslumála fyrir fyrstu níu mánuði ársins.

2.Ytra mat á grunnskólum 2015-2020

Málsnúmer 2015050045Vakta málsnúmer

Sviðsstjóri kynnti yfirlit um stöðu ytra mats í leik- og grunnskólum Akureyrarbæjar.

3.Leikskólar - starfsáætlanir 2014-2020

Málsnúmer 2018040329Vakta málsnúmer

Starfsáætlanir leikskóla Akureyrar fyrir skólaárið 2019-2020 lagðar fram til staðfestingar.



Í 14. gr. laga um leikskóla nr. 90/2008 segir um skólanámskrá og starfsáætlun:

Í hverjum leikskóla skal gefa út skólanámskrá og er leikskólastjóri ábyrgur fyrir gerð hennar. Skólanámskrá er nánari útfærsla á aðalnámskrá leikskóla og felur í sér uppeldis- og námsáætlun leikskóla þar sem markmið eru sett og skilgreindar leiðir að þeim markmiðum. Skólanámskrá tekur mið af sérstöðu skóla og skólastefnu viðkomandi sveitarfélags. Skólanámskrá skal endurskoða reglulega.



Leikskólastjóri gefur árlega út sérstaka starfsáætlun. Í starfsáætlun er gerð grein fyrir árlegri starfsemi leikskóla, svo sem skóladagatali og öðru því sem varðar starfsemi leikskólans.



Skólanámskrá og starfsáætlun skulu staðfestar af nefnd skv. 2. mgr. 4. gr., að fenginni umsögn foreldraráðs og skulu þær kynntar foreldrum."
Málinu frestað til næsta fundar.

4.Endurskoðun menntastefnu 2018

Málsnúmer 2017080125Vakta málsnúmer

Sviðsstjóri fræðslusviðs og formaður fræðsluráðs kynntu stöðu endurskoðunar á menntastefnu Akureyrarbæjar.

5.Skólaheimsóknir fræðsluráðs 2019-2022

Málsnúmer 2019110081Vakta málsnúmer

Skólastjóri Naustaskóla Bryndís Björnsdóttir tók á móti fræðsluráði, kynnti skólastarfið og sýndi húsakynni.

Fundi slitið - kl. 15:00.