Bæjarstjórn

3345. fundur 05. nóvember 2013 kl. 16:00 - 18:33 Bæjarstjórnarsalur á 4. hæð í Ráðhúsi
Nefndarmenn
  • Helgi Vilberg Hermannsson
Starfsmenn
  • Geir Kristinn Aðalsteinsson forseti bæjarstjórnar
  • Inda Björk Gunnarsdóttir
  • Logi Már Einarsson
  • Brynjar Davíðsson
  • Halla Björk Reynisdóttir
  • Oddur Helgi Halldórsson
  • Tryggvi Þór Gunnarsson
  • Andrea Sigrún Hjálmsdóttir
  • Guðmundur Baldvin Guðmundsson
  • Ólafur Jónsson
  • Eiríkur Björn Björgvinsson bæjarstjóri
  • Heiða Karlsdóttir fundarritari
Dagskrá
Brynjar Davíðsson L-lista mætti í forföllum Hlínar Bolladóttur.
Helgi Vilberg Hermannsson A-lista mætti í forföllum Önnu Hildar Guðmundsdóttur.

1.Fjárhagsáætlun Akureyrarbæjar 2014-2017 - fyrri umræða

Málsnúmer 2013050198Vakta málsnúmer

1. liður í fundargerð bæjarráðs dags. 31. október 2013:
Bæjarráð vísar fjárhagsáætlun 2014 ásamt 3ja ára áætlun 2015-2017 til fyrri umræðu í bæjarstjórn.

Bæjarstjórn samþykkir með 11 samhljóða atkvæðum að vísa fjárhagsáætlun Akureyrarbæjar fyrir árið 2014 til frekari yfirferðar í bæjarráði og síðari umræðu í bæjarstjórn.

2.Velferðar- og fjarverustefna Akureyrarbæjar

Málsnúmer 2012100058Vakta málsnúmer

2. liður í fundargerð bæjarráðs dags. 31. október 2013:
Lögð fram drög að velferðar- og fjarverustefnu Akureyrarbæjar.
Bæjarráð samþykkir fyrirliggjandi drög og vísar þeim til bæjarstjórnar til samþykktar.

Logi Már Einarsson S-lista lagði fram tillögu um að breyta nafni stefnunnar í velferðarstefnu Akureyrarbæjar.

Tillagan var borin upp og samþykkt með 11 samhljóða atkvæðum.

Bæjarstjórn samþykkir velferðarstefnu Akureyrarbæjar með 11 samhljóða atkvæðum.

3.Orlofsbyggð norðan Kjarnalundar (Gata sólarinnar) deiliskipulag

Málsnúmer 2013060226Vakta málsnúmer

2. liður í fundargerð skipulagsnefndar dags. 30. október 2013:
Tillaga að deiliskipulagi orlofsbyggðar norðan Kjarnalundar var auglýst frá 4. september með athugasemdarfresti til 16. október í Lögbirtingablaðinu, Dagskránni og Fréttablaðinu. Gögnin voru aðgengileg á heimasíðu skipulagsdeildar Akureyrarkaupstaðar, í þjónustuanddyri og hjá Skipulagsstofnun.

Beiðnir um umsagnir voru sendar til 8 umsagnaraðila: Rarik, Minjastofnunar Íslands, Norðurorku, Umhverfisstofnunar, Skipulagsstofnunar, Eyjafjarðarsveitar, hverfisnefndar Naustahverfis og Hörgársveitar.

Tvær umsagnir bárust frá:
1) Norðurorku, dags. 12. september 2013.
Um landið liggja tvær lagnir á vegum Norðurorku hf, þ.e. háspennulögn og vatnslögn.
Norðurorka ítrekar að ef gera þarf breytingar á ofangreindum lögnum verða þær færðar á kostnað þess sem þeirra óskar.
2) Umhverfisstofnun, dags. 18. október 2013. Umhverfisstofnun gerir ekki athugasemd við tillöguna.

Tvær athugasemdir bárust frá:
1) Framkvæmdadeild Akureyrarbæjar dags. 26. september 2013 sem gerir athugasemdir vegna rotþróar og fráveitu. Einnig þarf að athuga hljóðvist vegna fyrirhugaðrar tengibrautar.
2) Úrbótamönnum ehf, dags. 16. október 2013, en þeir telja að möguleiki þurfi að vera til að stækka grunnflöt húsanna í 110m2 vegna aukinnar eftirspurnar eftir stærri orlofshúsum.
Svör við umsögnum:
1) Tekið skal fram að rafmagnslagnir eru utan skipulags frístundasvæðisins. Ef til þess kemur að færa þarf vatnslagnir vegna nýs vegstæðis eða annarra lagna NO skal sá kostnaður greiðast af lóðarhafa.
2) Gefur ekki tilefni til svars.
Svör við athugasemdum:
1) Staðsetning núverandi rotþróar er neðan við svæðið og verður hún stækkuð ef þörf krefur. Í framtíðinni er gert ráð fyrir að frístundasvæðið verði tengt við fráveitukerfi Akureyrar. Ekki er ljóst hvenær fyrirhuguð tengibraut verður lögð neðan frístundasvæðisins og því ekki ástæða til að gera ráð fyrir hljóðvörnum vegna þessa að svo stöddu.
2) Skipulagsnefnd leggur til að heimild verði gefin fyrir stækkun frístundahúsanna í allt að 110m2 að grunnfleti.

Skipulagsnefnd leggur til við bæjarstjórn að deiliskipulagstillagan þannig breytt verði samþykkt og skipulagsstjóra falið að annast gildistöku hennar.

Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar með 11 samhljóða atkvæðum.

4.Akstursíþrótta- og skotsvæði á Glerárdal, deiliskipulagsbreyting

Málsnúmer 2013010054Vakta málsnúmer

3. liður í fundargerð skipulagsnefndar dags. 30. október 2013:
Skipulagsstjóri lagði fram tillögu að deiliskipulagsbreytingu á Akstursíþrótta- og skotsvæði á Glerárdal, unna af Teiknum á lofti ehf og dags. 25. október 2013.
Með bréfi dags. 7. ágúst 2013 samþykkti Skipulagsstofnun að aðalskipulagstillagan vegna akstursíþrótta- og skotsvæðis yrði auglýst þar sem búið var að gera viðeigandi lagfæringar á aðalskipulagsuppdrætti vegna athugasemda Skipulagsstofnunar sem fram komu í bréfi dags. 12. júní 2013. Nú hafa einnig verið færðar viðeigandi skýringar inn í greinargerð sem fram komu í athugasemd í 3. lið sama bréfs.
Skipulagsnefnd leggur til við bæjarstjórn að tillagan verði auglýst skv. 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar með 11 samhljóða atkvæðum.

5.Skýrsla bæjarstjóra

Málsnúmer 2010090095Vakta málsnúmer

Eiríkur Björn Björgvinsson bæjarstjóri fór yfir helstu atriði í störfum sínum frá síðasta bæjarstjórnarfundi.
Eftirtaldar fundargerðir eru lagðar fram til kynningar:

Afgreiðslufundur skipulagsstjóra 16. og 23. október 2013
Afrekssjóður Akureyrar 5. október 2013
Bæjarráð 17., 24. og 31. október 2013
Félagsmálaráð 23. október 2013
Íþróttaráð 17. október 2013
Samfélags- og mannréttindaráð 16. október 2013
Skipulagsnefnd 30. október 2013
Skólanefnd 21. október 2013
Stjórn Akureyrarstofu 8. október 2013
Stjórn Fasteigna Akureyrarbæjar 1. nóvember 2013

Hægt er að nálgast fundargerðirnar á heimasíðu Akureyrarbæjar / www.akureyri.is /
Stjórnkerfið / Fundargerðir

Fundi slitið - kl. 18:33.