Bæjarstjórn

3477. fundur 16. júní 2020 kl. 16:00 - 17:34 Hamrar í Hofi
Nefndarmenn
  • Halla Björk Reynisdóttir forseti bæjarstjórnar
  • Andri Teitsson
  • Hlynur Jóhannsson
  • Guðmundur Baldvin Guðmundsson
  • Heimir Haraldsson
  • Hilda Jana Gísladóttir
  • Ingibjörg Ólöf Isaksen
  • Eva Hrund Einarsdóttir
  • Gunnar Gíslason
  • Sóley Björk Stefánsdóttir
  • Þórhallur Jónsson
Starfsmenn
  • Ásthildur Sturludóttir bæjarstjóri
  • Kristín Sóley Sigursveinsdóttir fundarritari
Fundargerð ritaði: Kristín Sóley Sigursveinsdóttir forstöðumaður upplýsinga- og þjónustudeildar
Dagskrá

1.Fjárhagsáætlun Akureyrarbæjar 2020-2023 - viðauki

Málsnúmer 2019020276Vakta málsnúmer

Liður 2 í fundargerð bæjarráðs dagsettri 11. júní 2020:

Lagður fram viðauki 9.

Dan Jens Brynjarsson sviðsstjóri fjársýslusviðs og Halla Margrét Tryggvadóttir sviðsstjóri stjórnsýslusviðs sátu fund bæjarráðs undir þessum lið.

Bæjarráð samþykkir viðaukann með fimm samhljóða atkvæðum og vísar honum til staðfestingar í bæjarstjórn.

Guðmundur Baldvin Guðmundsson kynnti efni viðaukans.

Í umræðum tóku til máls Eva Hrund Einarsdóttir og Guðmundur Baldvin Guðmundsson.
Bæjarstjórn staðfestir ákvörðun bæjarráðs með 11 samhljóða atkvæðum.

2.Hvannavallareitur - deiliskipulag

Málsnúmer 2015030191Vakta málsnúmer

Liður 3 í fundargerð skipulagsráðs dagsettri 10. júní 2020:

Lögð fram að nýju tillaga að deiliskipulagi sem nær til lóðarinnar Glerárgata 36. Málið var áður á dagskrá ráðsins 13. og 27. maí 2020.

Skipulagsráð leggur til við bæjarstjórn að tillagan verði auglýst samkvæmt 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Ingibjörg Ólöf Isaksen kynnti tillögu skipulagsráðs.
Bæjarstjórn samþykkir að tillaga að nýju deiliskipulagi sem nær til lóðarinnar Glerárgata 36 verði auglýst samkvæmt 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

3.Norðurvegur 6-8 í Hrísey, breyting á aðalskipulagi

Málsnúmer 2020060187Vakta málsnúmer

Liður 4 í fundargerð skipulagsráðs dagsettri 10. júní 2020:

Lögð fram tillaga að breytingu á aðalskipulagi sem nær til lóðarinnar Norðurvegur 6-8 í Hrísey til samræmis við afgreiðslu skipulagsráðs þann 26. febrúar 2020. Í breytingunni felst að landnotkun lóðarinnar verður íbúðarsvæði í stað samfélagsþjónustu.

Skipulagsráð leggur til við bæjarstjórn að fyrirliggjandi tillaga að breytingu á aðalskipulagi verði samþykkt. Að mati ráðsins er breytingin óveruleg, sbr. 2. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, þar sem hún hefur hvorki verulegar breytingar á landnotkun í för með sér né sé líkleg til að hafa mikil áhrif á einstaka aðila eða áhrif á stór svæði.

Ingibjörg Ólöf Isaksen kynnti tillögu skipulagsráðs.
Bæjarstjórn samþykkir fyrirliggjandi tillögu að breytingu á aðalskipulagi sem nær til lóðarinnar Norðurvegur 6-8 í Hrísey. Í breytingunni felst að landnotkun lóðarinnar verður íbúðarsvæði í stað samfélagsþjónustu.

4.Vefstefna Akureyrarbæjar 2020-2022

Málsnúmer 2019040494Vakta málsnúmer

Liður 8 í fundargerð bæjarráðs dagsettri 11. júní 2020:

Lögð fram að nýju drög að vefstefnu sem samþykkt voru í bæjarráði 30. janúar sl. Drögin voru þá send til umsagnar í fastanefndum. Engar athugasemdir bárust.

Bæjarráð samþykkir vefstefnuna með fimm samhljóða atkvæðum og vísar henni til afgreiðslu í bæjarstjórn.

Hilda Jana Gísladóttir kynnti efni stefnunnar.

Í umræðum tóku til máls Sóley Björk Stefánsdóttir, Hilda Jana Gísladóttir og Eva Hrund Einarsdóttir.
Bæjarstjórn samþykkir vefstefnuna með 11 samhljóða atkvæðum.

5.Forsetakosningar 27. júní 2020 - starfsfólk í kjördeildum

Málsnúmer 2020040071Vakta málsnúmer

Lagður fram listi frá kjörstjórn Akureyrarbæjar með nöfnum 36 aðalmanna og 36 varamanna vegna starfa í kjördeildum við forsetakosningar þann 27. júní nk.
Bæjarstjórn samþykkir listann með 11 samhljóða atkvæðum.

6.Forsetakosningar 27. júní 2020 - afgreiðsla athugasemda við kjörskrá

Málsnúmer 2020040071Vakta málsnúmer

Lagt er til að bæjarlögmanni verði veitt heimild til að afgreiða athugasemdir við kjörskrá sem berast kunna og leiðrétta kjörskrá.
Bæjarstjórn samþykkir tillöguna með 11 samhljóða atkvæðum.

7.Starfsáætlun og stefnuumræða nefnda 2020 - fræðsluráð

Málsnúmer 2020010338Vakta málsnúmer

Starfsáætlun og stefnuumræða fræðsluráðs.

Ingibjörg Ólöf Isaksen formaður ráðsins kynnti áætlunina.

Í umræðum tóku til máls Gunnar Gíslason, Ingibjörg Ólöf Isaksen, Andri Teitsson, Sóley Björk Stefánsdóttir, Hilda Jana Gísladóttir og Hlynur Jóhannsson.

8.Bæjarstjórnarfundir í júlí og ágúst 2020

Málsnúmer 2020060366Vakta málsnúmer

Lögð fram eftirfarandi tillaga um hlé á fundum bæjarstjórnar Akureyrarbæjar 2020:

Í samræmi við 4. mgr. 8. gr. og 5. mgr. 33. gr. samþykktar um stjórn og fundarsköp Akureyrarbæjar nr. 751/2019 samþykkir bæjarstjórn að frá og með 1. júlí til og með 31. ágúst 2020 verði gert hlé á fundum bæjarstjórnar. Ekki verða haldnir fundir í bæjarstjórn á framangreindu tímabili nema þörf krefji eða þriðjungur bæjarfulltrúa krefjist þess. Jafnframt er bæjarráði á þessum tíma heimiluð fullnaðarafgreiðsla þeirra mála sem það telur nauðsynlegt að fái afgreiðslu og lög mæla ekki gegn.
Bæjarstjórn samþykkir tillöguna með 11 samhljóða atkvæðum.

9.Skýrsla bæjarstjóra

Málsnúmer 2010090095Vakta málsnúmer

Ásthildur Sturludóttir bæjarstjóri fór yfir helstu atriði í störfum sínum frá síðasta fundi bæjarstjórnar.
Eftirtaldar fundargerðir eru lagðar fram til kynningar:

Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa 5. júní 2020
Bæjarráð 4. og 11. júní 2020
Frístundaráð 10. júní 2020
Fræðsluráð 29. maí 2020
Skipulagsráð 10. júní 2020
Stjórn Akureyrarstofu 28. maí 2020
Umhverfis- og mannvirkjaráð 5. júní 2020
Velferðarráð 3. júní 2020

Hægt er að nálgast fundargerðirnar á heimasíðu Akureyrarbæjar: https://www.akureyri.is/is/stjornkerfi/stjornsysla/fundargerdir

Fundi slitið - kl. 17:34.