Bæjarráð

3462. fundur 11. júní 2015 kl. 08:30 - 11:58 Bæjarstjórnarsalur á 4. hæð í Ráðhúsi
Nefndarmenn
  • Guðmundur Baldvin Guðmundsson formaður
  • Logi Már Einarsson
  • Matthías Rögnvaldsson
  • Gunnar Gíslason
  • Margrét Kristín Helgadóttir
  • Sóley Björk Stefánsdóttir áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Eiríkur Björn Björgvinsson bæjarstjóri
  • Heiða Karlsdóttir fundarritari
Dagskrá

1.Gatnagerðargjöld - endurskoðun 2015

Málsnúmer 2015030040Vakta málsnúmer

Tryggvi Már Ingvarsson formaður skipulagsnefndar og Pétur Bolli Jóhhannesson skipulagsstjóri mættu á fund bæjarráðs og fóru yfir endurskoðun á gatnagerðargjöldum.
Einnig sátu Dan Jens Brynjarsson fjármálastjóri og Jón Bragi Gunnarsson hagsýslustjóri fundinn undir þessum lið.

2.Fjárhagsáætlun Akureyrarbæjar 2016-2019 - fjárhagsáætlunarferli og tekjuáætlun

Málsnúmer 2015040196Vakta málsnúmer

Tekið fyrir að nýju, bæjarráð frestaði afgreiðslu á fundi sínum 4. júní sl.
Lögð fram tillaga að fjárhagsáætlunarferli og gögn vegna tekjuáætlunar vegna vinnu við gerð fjárhagsáætlunar fyrir árin 2016-2019.
Jón Bragi Gunnarsson hagsýslustjóri og Dan Jens Brynjarsson fjármálastjóri sátu fund bæjarráðs undir þessum lið.
Bæjarráð samþykkir framlagða tillögu um fjárhagsáætlunarferlið og tekjuáætlun.

3.Bæjarsjóður Akureyrar - yfirlit um rekstur 2015

Málsnúmer 2015040016Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar yfirlit um rekstur aðalsjóðs frá janúar til apríl 2015.
Dan Jens Brynjarsson fjármálastjóri sat fund bæjarráðs undir þessum lið.

4.Sérfræðiþjónusta leik- og grunnskóla

Málsnúmer 2014020004Vakta málsnúmer

1. liður í fundargerð velferðarráðs dagsett 3. júní 2015:
Lagt fram minnisblað Helgu Vilhjálmsdóttur forstöðumanns sérfræðiþjónustu leik- og grunnskóla og Guðrúnar Ólafíu Sigurðardóttur framkvæmdastjóra fjölskyldudeildar dagsett 22. maí 2015 um þörf fyrir viðbótarmönnun í sérfræðiþjónustunni.
Velferðarráð samþykkir tillöguna fyrir sitt leiti og vísar málinu til bæjarráðs.
Guðrún Ólafía Sigurðardóttir framkvæmdastjóri fjölskyldudeildar mætti á fund bæjarráðs undir þessum lið.
Bæjarráð samþykkir fjárveitingu að upphæð kr. 2,5 milljónir vegna sérfræðiþjónustu og að gerður verði viðauki sem lagður verði fyrir bæjarstjórn.

5.Bílaklúbbur Akureyrar - ósk um stuðning við gerð framtíðar tjaldsvæðis

Málsnúmer 2014070094Vakta málsnúmer

3. liður í fundargerð framkvæmdaráðs dagsett 5. júní 2015:
Lagður fram samningur milli Akureyrarbæjar og Bílaklúbbs Akureyrar um uppbyggingu, framkvæmd og rekstrarfyrirkomulag tjaldstæðis á svæði Bílaklúbbs Akureyrar.
Framkvæmdaráð samþykkir samninginn við Bílaklúbb Akureyrar í samræmi við bókun í 2. lið í fundargerð framkvæmdaráðs 5. júní 2015 um 5 milljónir til uppbyggingar tjaldstæðis Bílaklúbbs Akureyrar og vísar honum til bæjarráðs.
Bæjarráð samþykkir samninginn.

6.Hverfisráð Hríseyjar - fundargerð

Málsnúmer 2010020035Vakta málsnúmer

Lögð fram til kynningar 91. fundargerð hverfisráðs Hríseyjar dagsett 27. maí 2015. Fundargerðina má finna á netslóðinni: http://www.akureyri.is/is/stjornkerfid/hverfisnefndir/hrisey/fundargerdir

7.Tillaga til þingsályktunar um eflingu brothættra byggða og byggðafestu veiðiheimilda, 588. mál

Málsnúmer 2015060046Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar erindi dagsett 3. júní 2015 frá atvinnuveganefnd Alþingis þar sem óskað er umsagnar um tillögu til þingsályktunar um eflingu brothættra byggða og byggðafestu veiðiheimilda, 588. mál. Þess er óskað að undirrituð umsögn berist eigi síðar en 11. júní 2015 á netfangið nefndasvid@althingi.is. Þingskjalið er hægt að sækja á vef Alþingis: http://www.althingi.is/altext/144/s/1020.html

8.Stjórn Sambands íslenskra sveitarfélaga - fundargerð

Málsnúmer 2015010106Vakta málsnúmer

Lögð fram til kynningar fundargerð 828. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga dagsett 29. maí 2015. Fundargerðina má finna á vefslóðinni: http://www.samband.is/um-okkur/fundargerdir-stjornar/searchmeetings.aspx

Fundi slitið - kl. 11:58.