Bæjarráð

3448. fundur 12. febrúar 2015 kl. 08:30 - 11:03 Bæjarstjórnarsalur á 4. hæð í Ráðhúsi
Nefndarmenn
  • Guðmundur Baldvin Guðmundsson formaður
  • Logi Már Einarsson
  • Matthías Rögnvaldsson
  • Gunnar Gíslason
  • Sóley Björk Stefánsdóttir
  • Margrét Kristín Helgadóttir áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Eiríkur Björn Björgvinsson bæjarstjóri
  • Heiða Karlsdóttir fundarritari
Dagskrá

1.Samþykktir fastanefnda endurskoðun - stjórn Akureyrarstofu

Málsnúmer 2013060144Vakta málsnúmer

6. liður í fundargerð stjórnar Akureyrarstofu dagsett 4. febrúar 2015:
Lögð fram drög að endurskoðaðri samþykkt fyrir stjórn Akureyrarstofu.
Stjórn Akureyrarstofu samþykkir að vísa fyrirliggjandi drögum að endurskoðaðri samþykkt fyrir stjórn Akureyrarstofu til bæjarráðs og síðan samþykktar í bæjarstjórn.
Dagný M. Harðardóttir skrifstofustjóri Ráðhúss sat fund bæjarráðs undir þessum lið.
Bæjarráð samþykkir framlagða tillögu að breytingum á samþykkt fyrir stjórn Akureyrarstofu með þeim breytingum sem gerðar voru á fundinum og vísar samþykktinni til afgreiðslu bæjarstjórnar.

2.Samþykktir fastanefnda endurskoðun - íþróttaráð

Málsnúmer 2013060144Vakta málsnúmer

4. liður í fundargerð íþróttaráðs dagsett 5. febrúar 2015:
Lögð fram drög að endurskoðaðri samþykkt fyrir íþróttaráð.
Dagný M. Harðardóttir skrifstofustjóri Ráðhúss sat fund bæjarráðs undir þessum lið.
Bæjarráð samþykkir framlagða tillögu að breytingum á samþykkt fyrir íþróttaráð með þeim breytingum sem gerðar voru á fundinum og vísar samþykktinni til afgreiðslu bæjarstjórnar.

3.Samþykkt um stjórn og fundarsköp Akureyrarkaupstaðar - endurskoðun 2015

Málsnúmer 2015020055Vakta málsnúmer

Lögð fram tillaga að endurskoðaðri Samþykkt um stjórn og fundarsköp Akureyrarkaupstaðar.
Dagný M. Harðardóttir skrifstofustjóri Ráðhúss sat fund bæjarráðs undir þessum lið.
Bæjarráð samþykkir framlagða tillögu að breytingum og vísar Samþykktinni til fyrri umræðu í bæjarstjórn.

4.Stjórn Sambands íslenskra sveitarfélaga - fundargerðir 2015

Málsnúmer 2015010106Vakta málsnúmer

Lögð fram til kynningar fundargerð 824. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga dagsett 30. janúar 2015. Fundargerðina má finna á vefslóðinni: http://www.samband.is/um-okkur/fundargerdir-stjornar/searchmeetings.aspx

5.Frumvarp til laga um húsaleigubætur (námsmenn), 237. mál

Málsnúmer 2015020047Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar erindi dagsett 5. febrúar 2015 frá Velferðarnefnd Alþingis þar sem óskað er umsagnar um frumvarp til laga um húsaleigubætur (námsmenn), 237. mál, 2015.
Þess er óskað að undirrituð umsögn berist eigi síðar en 25. febrúar nk. á netfangið nefndasvid@althingi.is
Þingskjalið er hægt að sækja á vef Alþingis: http://www.althingi.is/altext/144/s/0266.html

6.Frumvarp til laga um félagsþjónustu sveitarfélaga (skilyrði fjárhagsaðstoðar), 416. mál

Málsnúmer 2015020059Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar erindi dagsett 9. febrúar 2015 frá Velferðarnefnd Alþingis þar sem óskað er umsagnar um frumvarp til laga um félagsþjónustu sveitarfélaga (skilyrði fjárhagsaðstoðar), 416. mál, 2015.
Þess er óskað að undirrituð umsögn berist eigi síðar en 23. febrúar nk. á netfangið nefndasvid@althingi.is
Þingskjalið er hægt að sækja á vef Alþingis: http://www.althingi.is/altext/144/s/0624.html

7.Frumvarp til laga um náttúrupassa (heildarlög), 455. mál

Málsnúmer 2015020060Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar erindi dagsett 6. febrúar 2015 frá Atvinnuveganefnd Alþingis þar sem óskað er umsagnar um frumvarp til laga um náttúrupassa (heildarlög), 455. mál, 2015.
Þess er óskað að undirrituð umsögn berist eigi síðar en 20. febrúar nk. á netfangið nefndasvid@althingi.is
Þingskjalið er hægt að sækja á vef Alþingis: http://www.althingi.is/altext/144/s/0699.html

8.Frumvarp til laga um aðbúnað, hollustuhætti og öryggi á vinnustöðum og málefni fatlaðs fólks (aukin vinnuvernd og notendastýrð persónuleg þjónusta), 454. mál

Málsnúmer 2015020062Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar erindi dagsett 9. febrúar 2015 frá Velferðarnefnd Alþingis þar sem óskað er umsagnar um frumvarp til laga um aðbúnað, hollustuhætti og öryggi á vinnustöðum og málefni fatlaðs fólks (aukin vinnuvernd og notendastýrð persónuleg þjónusta), 454. mál.
Þess er óskað að undirrituð umsögn berist eigi síðar en 23. febrúar nk. á netfangið nefndasvid@althingi.is.
Þingskjalið er hægt að sækja á vef Alþingis: http://www.althingi.is/altext/144/s/0698.html

9.Frumvarp til laga um uppbyggingu innviða fyrir ferðamenn til verndar náttúru og menningarsögulegum minjum (heildarlög), 427. mál

Málsnúmer 2015020063Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar erindi dagsett 9. febrúar 2015 frá Umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis þar sem óskað er umsagnar um frumvarp til laga um uppbyggingu innviða fyrir ferðamenn til verndar náttúru og menningarsögulegum minjum (heildarlög), 427. mál.
Þess er óskað að undirrituð umsögn berist eigi síðar en 23. febrúar 2015 á netfangið nefndasvid@althingi.is.
Þingskjalið er hægt að sækja á vef Alþingis: http://www.althingi.is/altext/144/s/0649.html

Fundi slitið - kl. 11:03.