Frumvarp til laga um félagsþjónustu sveitarfélaga (skilyrði fjárhagsaðstoðar), 416. mál

Málsnúmer 2015020059

Vakta málsnúmer

Bæjarráð - 3448. fundur - 12.02.2015

Lagt fram til kynningar erindi dagsett 9. febrúar 2015 frá Velferðarnefnd Alþingis þar sem óskað er umsagnar um frumvarp til laga um félagsþjónustu sveitarfélaga (skilyrði fjárhagsaðstoðar), 416. mál, 2015.
Þess er óskað að undirrituð umsögn berist eigi síðar en 23. febrúar nk. á netfangið nefndasvid@althingi.is
Þingskjalið er hægt að sækja á vef Alþingis: http://www.althingi.is/altext/144/s/0624.html

Velferðarráð - 1204. fundur - 18.02.2015

Erindi dagsett 9. febrúar 2015 frá velferðarnefnd Alþingis þar sem óskað er umsagnar um frumvarp til laga um félagsþjónustu sveitarfélaga (skilyrði fjárhagsaðstoðar), 416. mál. Lögð fram drög að umsögn.
Velferðarráð samþykkir umsögnina og óskar eftir því að hún verði send áfram til nefndasviðs Alþingis.