Bæjarráð

3385. fundur 17. október 2013 kl. 08:00 - 10:30 Bæjarstjórnarsalur á 4. hæð í Ráðhúsi
Starfsmenn
  • Halla Björk Reynisdóttir formaður
  • Geir Kristinn Aðalsteinsson
  • Oddur Helgi Halldórsson
  • Edward Hákon Huijbens
  • Sigurður Guðmundsson
  • Guðmundur Baldvin Guðmundsson áheyrnarfulltrúi
  • Logi Már Einarsson áheyrnarfulltrúi
  • Ólafur Jónsson áheyrnarfulltrúi
Dagskrá
Edward Hákon Huijbens V-lista mætti í forföllum Andreu Sigrúnar Hjálmsdóttur.
Sigurður Guðmundsson A-lista mætti á fundinn kl. 08:10.

1.Fjárhagsáætlun Akureyrarbæjar 2014-2017

Málsnúmer 2013050198Vakta málsnúmer

Unnið að gerð fjárhagsáætlunar.

2.Fjárhagsáætlun Heilbrigðiseftirlits Norðurlands eystra 2014

Málsnúmer 2013100087Vakta málsnúmer

Lögð fram 156. fundargerð heilbrigðisnefndar Norðurlandssvæðis eystra ásamt fjárhagsáætlun ársins 2014 og áætlaðri kostnaðarskiptingu milli sveitarfélaga 2014.

Bæjarráð samþykkir að framlög til Heilbrigðiseftirlits Norðurlands eystra verði óbreytt frá árinu 2013 og felur nefndinni að endurskoða áætlun ársins 2014.

3.Menningarfélagið Hof ses - aðalfundur 2013

Málsnúmer 2013100094Vakta málsnúmer

Erindi dags. 1. október 2013 frá stjórn Menningarfélagsins Hofs þar sem boðað er til aðalfundar þann 24. október nk. kl. 12:10 í Hömrum í Hofi.

Bæjarráð felur Þórgný Dýrfjörð framkvæmdastjóra Akureyrarstofu og bæjarfulltrúunum Oddi Helga Halldórssyni L-lista og Guðmundi Baldvini Guðmundssyni B-lista að vera fulltrúar Akureyrarbæjar á fundinum. Öllum bæjarfulltrúum er heimilt að sitja fundinn.

4.Viðtalstímar bæjarfulltrúa - fundargerðir

Málsnúmer 2013100131Vakta málsnúmer

Lögð fram fundargerð viðtalstíma bæjarfulltrúa dags. 10. október 2013. Fundargerðin er í 6 liðum.

Bæjarráð vísar 1., 2., 3. lið b) og d) og 6. lið til skipulagsnefndar, 3. lið a) til skipulagsdeildar, 3. lið c) og 4. lið til framkvæmdadeildar og 5. lið til fjármálastjóra.

5.Hverfisnefnd Naustahverfis - fundargerðir 2013

Málsnúmer 2013010212Vakta málsnúmer

Lögð fram fundargerð 51. fundar hverfisnefndar Naustahverfis dags. 8. október 2013.
Fundargerðina má finna á vefslóðinni: http://www.akureyri.is/is/stjornkerfid/hverfisnefndir/naustahverfi/fundargerdir

Bæjarráð vísar 2. lið til framkvæmdadeildar, 1. og 3. liður lagðir fram til kynningar.

6.Önnur mál

Málsnúmer 2013010046Vakta málsnúmer

a) Edward H. Huijbens V-lista óskar eftir úrskurði formanns bæjarráðs um hvort málefni embættismanna eigi erindi fyrir bæjarráð.

b) Sigurður Guðmundsson A-lista óskar eftir heildarúttekt, kostnaði og framkvæmd samninga vegna sorpmála í sveitarfélaginu.

Tillaga kom fram frá Oddi Helga Halldórssyni L-lista að vísa ósk Sigurðar til framkvæmdaráðs og var það samþykkt með 3 atkvæðum L-lista gegn atkvæðum Sigurðar Guðmundssonar A-lista og Edwards H. Huijbens V-lista.

Fundi slitið - kl. 10:30.