Önnur mál

Málsnúmer 2013010046

Vakta málsnúmer

Bæjarráð - 3370. fundur - 06.06.2013

Sigurður Guðmundssonar A-lista óskar bókað að samningur GÁF varðandi Grímsstaði á Fjöllum fái umræðu á næsta fundi bæjarráðs.

Oddur Helgi Halldórsson L-lista óskar bókað: Samningsdrög hafa verið kynnt í bæjarráði oftar en einu sinni og tel ég því ekki ástæðu til að kynna samninginn fyrr en hann er fullmótaður. Samningur mun koma fyrir hluthafafund í GÁF til afgreiðslu.

Bæjarráð - 3371. fundur - 13.06.2013

Bæjarstjóri lagði fram samkomulag dags. 22. maí 2013 um áframhaldandi samstarf Denverborgar og Akureyrarbæjar til næstu 2ja ára, sem undirritað var í heimsókn bæjarstjóra og forseta bæjarstjórnar til Denver í maí sl.

Bæjarráð - 3376. fundur - 08.08.2013

Sigurður Guðmundsson A-lista óskaði eftir að starfsmannastjóri kæmi inn á fund bæjarráðs við fyrsta tækifæri til að ræða áherslur í komandi kjaraviðræðum.

Bæjarráð - 3379. fundur - 05.09.2013

Andrea Sigrún Hjálmsdóttir V-lista lagði fram eftirfarandi hvatningu:
Flóttamannanefnd sem starfar á vegum Velferðarráðuneytisins kynnti nýverið áherslur sínar og stefnu um móttöku flóttafólks á Íslandi. Lagt er til að tekið verði á móti 14 einstaklingum til landsins á næstu mánuðum. Fulltrúi Vinstri grænna í bæjarstjórn Akureyrar hvetur bæjaryfirvöld til að skoða alvarlega þann möguleika að taka á móti í það minnsta hluta þessa hóps og bjóða velkominn til Akureyrar. Þann 18. maí 2010 samþykkti Bæjarstjórn Akureyrar nýja Staðardagskrá 21 og í henni stendur: "Boðið verði upp á að taka á móti hópi flóttamanna í samstarfi við flóttamannaráð á a. m.k. tíu ára fresti" og var stefnt að því samkvæmt áætlun að því verki skyldi lokið fyrir október 2011 og er þessi samþykkt í Staðardagskrá okkur því veruleg hvatning til athafna.
Vert er að benda á að allir innviðir samfélagsins hér á Akureyri eru sterkir, við erum fjölmenningarlegt bæjarfélag líkt og Akureyrarvaka um síðustu helgi bar glöggt vitni. Þá gekk móttaka flóttafólks frá fyrrum ríkjum Júgóslavíu árið 2003 mjög vel og við búum að þeirri þekkingu og reynslu sem þá skapaðist . Því má ljóst vera að Akureyrarbær er vel í stakk búinn að veita flóttafólki skjól og leggja þannig sitt af mörkum til mannúðarmála í heiminum.

 

Bæjarráð - 3383. fundur - 26.09.2013

Dómsmál Eyktar gegn Akureyrarbæ tekið til umræðu.

Bæjarráð - 3385. fundur - 17.10.2013

a) Edward H. Huijbens V-lista óskar eftir úrskurði formanns bæjarráðs um hvort málefni embættismanna eigi erindi fyrir bæjarráð.

b) Sigurður Guðmundsson A-lista óskar eftir heildarúttekt, kostnaði og framkvæmd samninga vegna sorpmála í sveitarfélaginu.

Tillaga kom fram frá Oddi Helga Halldórssyni L-lista að vísa ósk Sigurðar til framkvæmdaráðs og var það samþykkt með 3 atkvæðum L-lista gegn atkvæðum Sigurðar Guðmundssonar A-lista og Edwards H. Huijbens V-lista.

Bæjarráð - 3390. fundur - 21.11.2013

a) Umræður um siðareglur bæjarfulltrúa.
b) Umræður um stöðu reksturs Kaffihúss í Lystigarðinum.