Bæjarráð

3330. fundur 06. september 2012 kl. 09:00 - 11:00 Bæjarstjórnarsalur á 4. hæð í Ráðhúsi
Nefndarmenn
  • Halla Björk Reynisdóttir formaður
  • Hlín Bolladóttir
  • Oddur Helgi Halldórsson
  • Andrea Sigrún Hjálmsdóttir
  • Petrea Ósk Sigurðardóttir
  • Anna Hildur Guðmundsdóttir áheyrnarfulltrúi
  • Logi Már Einarsson áheyrnarfulltrúi
  • Njáll Trausti Friðbertsson áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Eiríkur Björn Björgvinsson bæjarstjóri
  • Dan Jens Brynjarsson fjármálastjóri
  • Jón Bragi Gunnarsson hagsýslustjóri
  • Heiða Karlsdóttir fundarritari
Dagskrá

1.Rekstur - staða mála - embættismenn 2012

Málsnúmer 2012020046Vakta málsnúmer

Dan Jens Brynjarsson fjármálastjóri, Dagný M. Harðardóttir skrifstofustjóri Ráðhúss, Halla Margrét Tryggvadóttir starfsmannastjóri, Jón Bragi Gunnarsson hagsýslustjóri, Margrét Guðjónsdóttir framkvæmdastjóri Heilsugæslustöðvarinnar á Akureyri og Brit Bieltvedt framkvæmdastjóri Öldrunarheimila Akureyrar mættu á fundinn og fóru yfir rekstrarstöðu sinna deilda.

2.Akureyrarkaupstaður 150 ára árið 2012

Málsnúmer 2009090008Vakta málsnúmer

Farið yfir hvernig til tókst með hátíðarhöldin á Afmælisvökunni.

Bæjarráð þakkar öllum þeim sem komu að undirbúningi og framkvæmd hátíðarhaldanna í tilefni 150 ára afmælis Akureyrarkaupstaðar.

Einnig þakkar bæjarráð bæjarbúum og gestum fyrir mikla og góða þátttöku í hátíðinni.

Bæjarráð þakkar allar kveðjur og gjafir sem sveitarfélaginu bárust í tilefni afmælisins.

3.Bæjarsjóður Akureyrar - yfirlit um rekstur 2012

Málsnúmer 2012040165Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar yfirlit um rekstur aðalsjóðs frá janúar til júlí 2012.

4.Lánasjóður sveitarfélaga - lántaka 2012

Málsnúmer 2012020112Vakta málsnúmer

Fjármálastjóri kynnti fyrirhugaða lántöku hjá Lánasjóði sveitarfélaga ohf að upphæð 125.000.000 kr.

Bæjarráð samþykkir fyrirhugaða lántöku og vísar málinu til afgreiðslu bæjarstjórnar.

5.Skelfélagið - hluthafafundur 2012

Málsnúmer 2012090002Vakta málsnúmer

Erindi dags. 1. september 2012 frá Jóhannesi Má Jóhannessyni f.h. stjórnar Skelfélagsins ehf, þar sem boðað er til hluthafafundar félagsins miðvikudaginn 19. september nk. í húsakynnum Íslenskra verðbréfa, Strandgötu 3 á Akureyri og hefst hann kl. 14:00.

Bæjarráð felur Dan Jens Brynjarssyni fjármálastjóra að fara með umboð Akureyrarbæjar á hluthafafundinum.

6.Önnur mál

Málsnúmer 2012010085Vakta málsnúmer

Þór/KA Íslandsmeistari í knattspyrnu kvenna 2012.
Titillinn er sá fyrsti sem félagið vinnur í kvennaknattspyrnu í meistaraflokki og kemur hann á sjálfu 150. afmælisári Akureyrarkaupstaðar.
Bæjarráð óskar leikmönnum og forráðamönnum liðsins innilega til hamingju með árangurinn.

Fundi slitið - kl. 11:00.