Lánasjóður sveitarfélaga - lántaka 2012

Málsnúmer 2012020112

Vakta málsnúmer

Bæjarráð - 3312. fundur - 15.03.2012

Fjármálastjóri kynnti fyrirhugða erlenda lántöku hjá Lánasjóði sveitarfélaga ohf að upphæð EUR 3.000.000.

Lögð fram tillaga að bókun til bæjarstjórnar vegna lántökunnar svohljóðandi:

Bæjarstjórn Akureyrar samþykkir hér með að taka lán hjá Lánasjóði sveitarfélaga ohf. að fjárhæð EUR 3.000.000 til 8 ára, í samræmi við samþykkta skilmála lánveitingarinnar sem liggja fyrir fundinum. Til tryggingar láninu standa tekjur sveitarfélagsins, sbr. heimild í 2. mgr. 68. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011. Er lánið tekið til að fjármagna framkvæmdir við 2. áfanga Naustaskóla, sbr. 3. gr. laga um stofnun opinbers hlutafélags um Lánasjóð sveitarfélaga nr. 150/2006. Lánið er af endurlánafé frá Þróunarbanka Evrópuráðsins og skuldbindur lántaki sig til að veita upplýsingar um þau verkefni sem fjármögnuð eru skv. Viðauka III í lánssamningi en þau þurfa að rúmast innan skilyrða þróunarbankans sbr. Viðauka II í lánssamningi. Jafnframt er Dan Jens Brynjarssyni, fjármálastjóra, veitt fullt og ótakmarkað umboð til þess f.h. Akureyrarbæjar að undirrita lánssamning við Lánasjóð sveitarfélaga ohf. sbr. framangreint, sem og til þess að móttaka, undirrita og gefa út, og afhenda hvers kyns skjöl, fyrirmæli og tilkynningar, sem tengjast lántöku þessari.

Bæjarráð samþykkir lánssamninginn og vísar honum til afgreiðslu bæjarstjórnar.

Bæjarstjórn - 3318. fundur - 20.03.2012

3. liður í fundargerð bæjarráðs dags. 15. mars 2012:
Fjármálastjóri kynnti fyrirhugða erlenda lántöku hjá Lánasjóði sveitarfélaga ohf. að upphæð EUR 3.000.000.
Lögð fram tillaga að bókun til bæjarstjórnar vegna lántökunnar svohljóðandi:

Bæjarstjórn Akureyrar samþykkir hér með að taka lán hjá Lánasjóði sveitarfélaga ohf. að fjárhæð EUR 3.000.000 til 8 ára, í samræmi við samþykkta skilmála lánveitingarinnar sem liggja fyrir fundinum. Til tryggingar láninu standa tekjur sveitarfélagsins, sbr. heimild í 2. mgr. 68. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011. Er lánið tekið til að fjármagna framkvæmdir við 2. áfanga Naustaskóla, sbr. 3. gr. laga um stofnun opinbers hlutafélags um Lánasjóð sveitarfélaga nr. 150/2006. Lánið er af endurlánafé frá Þróunarbanka Evrópuráðsins og skuldbindur lántaki sig til að veita upplýsingar um þau verkefni sem fjármögnuð eru skv. Viðauka III í lánssamningi en þau þurfa að rúmast innan skilyrða þróunarbankans sbr. Viðauka II í lánssamningi. Jafnframt er Dan Jens Brynjarssyni fjármálastjóra veitt fullt og ótakmarkað umboð til þess f.h. Akureyrarbæjar að undirrita lánssamning við Lánasjóð sveitarfélaga ohf. sbr. framangreint, sem og til þess að móttaka, undirrita og gefa út, og afhenda hvers kyns skjöl, fyrirmæli og tilkynningar, sem tengjast lántöku þessari.

Bæjarráð samþykkir lánssamninginn og vísar honum til afgreiðslu bæjarstjórnar.

Bæjarstjórn samþykkir lánssamninginn og tillögu bæjarráðs að bókun með 10 atkvæðum gegn atkvæði Sigurðar Guðmundssonar A-lista.

Bæjarráð - 3330. fundur - 06.09.2012

Fjármálastjóri kynnti fyrirhugaða lántöku hjá Lánasjóði sveitarfélaga ohf að upphæð 125.000.000 kr.

Bæjarráð samþykkir fyrirhugaða lántöku og vísar málinu til afgreiðslu bæjarstjórnar.

Bæjarstjórn - 3326. fundur - 18.09.2012

4. liður í fundargerð bæjarráðs dags. 6. september 2012:
Bæjarráð samþykkir fyrirhugaða lántöku og vísar málinu til afgreiðslu bæjarstjórnar.

Lögð fram tillaga að bókun bæjarstjórnar vegna lántökunnar svohljóðandi:  Bæjarstjórn Akureyrar samþykkir hér með að taka lán hjá Lánasjóði sveitarfélaga ohf. að fjárhæð krónur 125.000.000 til 8 ára, í samræmi við samþykkta skilmála lánveitingarinnar sem liggja fyrir fundinum. Til tryggingar láninu standa tekjur sveitarfélagsins, sbr. heimild í 2. mgr. 68. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011. Er lánið tekið til að fjármagna framkvæmdir við gatnagerð sveitarfélagsins, sbr. 3. gr. laga um stofnun opinbers hlutafélags um Lánasjóð sveitarfélaga nr. 150/2006. Lánið er af endurlánafé frá Þróunarbanka Evrópuráðsins og skuldbindur lántaki sig til að veita upplýsingar um þau verkefni sem fjármögnuð eru skv. Viðauka III í lánssamningi en þau þurfa að rúmast innan skilyrða Þróunarbankans sbr. Viðauka II í lánssamningi. Jafnframt er Dan Jens Brynjarssyni fjármálastjóra veitt fullt og ótakmarkað umboð til þess f.h. Akureyrarbæjar að undirrita lánssamning við Lánasjóð sveitarfélaga ohf. sbr. framangreint, sem og til þess að móttaka, undirrita og gefa út, og afhenda hvers kyns skjöl, fyrirmæli og tilkynningar, sem tengjast lántöku þessari.

Bæjarstjórn samþykkir tillöguna með 11 samhljóða atkvæðum.