Bæjarráð

3311. fundur 08. mars 2012 kl. 09:00 - 11:30 Bæjarstjórnarsalur á 4. hæð í Ráðhúsi
Nefndarmenn
  • Oddur Helgi Halldórsson formaður
  • Halla Björk Reynisdóttir
  • Inda Björk Gunnarsdóttir
  • Hermann Jón Tómasson
  • Ólafur Jónsson
  • Andrea Sigrún Hjálmsdóttir áheyrnarfulltrúi
  • Guðmundur Baldvin Guðmundsson áheyrnarfulltrúi
  • Sigurður Guðmundsson áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Eiríkur Björn Björgvinsson bæjarstjóri
  • Dan Jens Brynjarsson fjármálastjóri
  • Jón Bragi Gunnarsson hagsýslustjóri
  • Heiða Karlsdóttir fundarritari
Dagskrá

1.Rekstur - staða mála - embættismenn 2012

Málsnúmer 2012020046Vakta málsnúmer

Gunnar Gíslason fræðslustjóri og Helgi Már Pálsson bæjartæknifræðingur sátu fundinn undir þessum lið og fóru yfir rekstrarstöðu sinna deilda eftir fyrstu mánuði ársins 2012.

2.Leiguíbúðir Akureyrarbæjar - úttekt 2012

Málsnúmer 2012020016Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar minnisblað dags. 2. febrúar 2012 frá Karli Guðmundssyni verkefnisstjóra, Dan Jens Brynjarssyni fjármálastjóra og Jóni Heiðari Daðasyni húsnæðisfulltrúa.
Karl og Jón Heiðar sátu fundinn undir þessum lið.

3.Gásakaupstaður ses - aðalfundur 2012

Málsnúmer 2012030039Vakta málsnúmer

Erindi dags. 28. febrúar 2012 frá Guðmundi Sigvaldasyni f.h. stjórnar Gásakaupstaðar ses þar sem boðað er til aðalfundar miðvikudaginn 28. mars nk. kl. 15:00 í Zonta-salnum, Aðalstræti 54, Akureyri.

Bæjarráð felur bæjarstjóra að vera fulltrúi Akureyrarbæjar á fundinum.

4.Stjórn Sambands íslenskra sveitarfélaga - fundargerðir 2012

Málsnúmer 2012020029Vakta málsnúmer

Lögð fram til kynningar 794. fundargerð stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga dags. 24. febrúar 2012.

5.Eyþing - fundargerðir

Málsnúmer 2010110064Vakta málsnúmer

Lögð fram til kynningar fundargerð 227. fundar stjórnar Eyþings dags. 31. janúar 2012.

6.Lánasjóður sveitarfélaga ohf - auglýsing eftir framboðum í stjórn

Málsnúmer 2012020263Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar erindi dags. 27. febrúar 2012 frá Lánasjóði sveitarfélaga ohf þar sem auglýst er eftir framboðum í stjórn Lánasjóðs sveitarfélaga. Framboðum skal skila í síðasta lagi á hádegi föstudaginn 16. mars nk.

7.Samband íslenskra sveitarfélaga - 26. landsþing

Málsnúmer 2012020118Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar erindi dags. 24. febrúar 2012 frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga þar sem boðað er til 26. landsþings sambandsins á Hótel Reykjavík Natura (Loftleiðir) í Reykjavík, föstudaginn 23. mars nk.

8.Norðurorka hf - aðalfundur 2012

Málsnúmer 2012030101Vakta málsnúmer

Tölvupóstur dags. 1. mars 2012 frá Ágústi Torfa Haukssyni forstjóra f.h. stjórnar Norðurorku hf, þar sem boðað er til aðalfundar föstudaginn 9. mars nk. kl. 16:00.

Bæjarráð felur bæjarstjóra að fara með umboð Akureyrarbæjar á fundinum.

9.Önnur mál

Málsnúmer 2012010085Vakta málsnúmer

a) Rætt um málefni Leikfélags Akureyrar.

Þegar hér var komið vék Halla Björk Reynisdóttir L-lista af fundi kl. 11:05.

b) Guðmundur Baldvin Guðmundsson B-lista óskaði bókað:
Í ljósi árlegrar umræðu um kröfur Knattspyrnusambands Íslands vegna knattspyrnuleikvanga og um þann kostnað sem fellur að óbreyttu á sveitarfélög vegna þeirra krafna, vil ég hér með skora á bæjarstjóra að taka málið til umfjöllunar á vettvangi stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga.

Fundi slitið - kl. 11:30.