Bæjarráð

3300. fundur 08. desember 2011 kl. 09:00 - 12:10 Bæjarstjórnarsalur á 4. hæð í Ráðhúsi
Nefndarmenn
  • Oddur Helgi Halldórsson formaður
  • Halla Björk Reynisdóttir
  • Tryggvi Þór Gunnarsson
  • Hermann Jón Tómasson
  • Ólafur Jónsson
  • Andrea Sigrún Hjálmsdóttir áheyrnarfulltrúi
  • Guðmundur Baldvin Guðmundsson áheyrnarfulltrúi
  • Sigurður Guðmundsson áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Eiríkur Björn Björgvinsson bæjarstjóri
  • Dan Jens Brynjarsson fjármálastjóri
  • Jón Bragi Gunnarsson hagsýslustjóri
  • Heiða Karlsdóttir fundarritari
Dagskrá

1.Miðbær suðurhluti - deiliskipulag Drottningarbrautarreits

Málsnúmer SN100014Vakta málsnúmer

Kynning á tillögu að breytingu á deiliskipulagi syðsta hluta miðbæjarskipulagsins sem nú er í gildi. Tillagan er unnin af Árna Ólafssyni frá Teiknistofu arkitekta ehf, dags. 30. nóvember 2011.
Á fund bæjarráðs mættu Árni Ólafsson arkitekt og Pétur Bolli Jóhannesson skipulagsstjóri.
Einnig sat Inda Björk Gunnarsdóttir bæjarfulltrúi L-lista fundinn undir þessum lið.

Bæjarráð þakkar þeim Árna og Pétri Bolla fyrir kynninguna.

2.Áheyrnarfulltrúar skv. nýjum sveitarstjórnarlögum

Málsnúmer 2011120022Vakta málsnúmer

Kynning á ákvæðum í nýjum sveitarstjórnarlögum um áheyrnarfulltrúa í nefndum skv. 50. og 51. gr. laganna
Inga Þöll Þórgnýsdóttir bæjarlögmaður mætti á fundinn undir þessum lið.

Bæjarráð þakkar Ingu Þöll fyrir kynninguna.

Bæjarráð felur formanni bæjarráðs, bæjarstjóra og bæjarlögmanni að vinna drög að erindisbréfi fyrir áheyrnarfulltrúa og leggja fyrir bæjarráð.

3.LSA - ákvæði 6. gr. í samþykkt sjóðsins

Málsnúmer 2011090117Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar bréf dags. 25. nóvember 2011 frá Fjármálaeftirlitinu varðandi ákvæði í 6. gr. samþykkta um Lífeyrissjóð starfsmanna Akureyrarbæjar um endurskoðanda sjóðsins og skipun endurskoðunarnefndar.
Inga Þöll Þórgnýsdóttir bæjarlögmaður sat fundinn undir þessum lið.

4.Líknardeild á Dvalarheimilinu Hlíð - Akureyrarbær og FSA

Málsnúmer 2011110143Vakta málsnúmer

Erindi dags. 21. nóvember 2011 frá Ingvari Þóroddssyni yfirlækni Endurhæfingardeildar FSA þar sem óskað er eftir því að skoðaður verði sá möguleiki að Akureyrarbær og FSA geti í sameiningu staðið að rekstri líknardeildar á Dvalarheimilinu Hlíð.

Bæjarráð felur bæjarstjóra að vinna áfram að málinu.

5.Iðnaðarsafnið - styrkbeiðni

Málsnúmer 2011110149Vakta málsnúmer

Lagt fram erindi dags. 22. nóvember 2011 frá Þorsteini E. Arnórssyni fyrir hönd stjórnar Iðnaðarsafnsins þar sem óskað er eftir styrk frá Akureyrarbæ til að gera upp laun safnstjóra.
Andrea Sigrún Hjálmsdóttir V-lista vék af fundi við umræðu og afgreiðslu þessa liðar.

Bæjarráð getur ekki orðið við erindinu, en felur bæjarstjóra og formanni stjórnar Akureyrarstofu að ræða við bréfritara um framtíðaráform stjórnar safnsins.

6.Afskriftir krafna

Málsnúmer 2011120009Vakta málsnúmer

Dan Jens Brynjarsson fjármálastjóri lagði fram tillögu dags. 2. desember 2011 um afskriftir krafna vegna áranna 2007, 2008, 2009 og eldri ára að fjárhæð kr. 15.603.393.

Bæjarráð samþykkir tillögu fjármálastjóra.

Þegar hér var komið vék Tryggvi Þór Gunnarsson L-lista af fundi kl. 11:27.

7.Bæjarsjóður Akureyrar - yfirlit um rekstur 2011

Málsnúmer 2011050045Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar yfirlit um rekstur aðalsjóðs frá janúar til október 2011.

Fundi slitið - kl. 12:10.