Bæjarráð

3258. fundur 27. janúar 2011 kl. 09:00 - 11:08 Bæjarstjórnarsalur á 4. hæð í Ráðhúsi
Nefndarmenn
  • Oddur Helgi Halldórsson formaður
  • Geir Kristinn Aðalsteinsson
  • Halla Björk Reynisdóttir
  • Ólafur Jónsson
  • Petrea Ósk Sigurðardóttir
  • Andrea Sigrún Hjálmsdóttir áheyrnarfulltrúi
  • Anna Hildur Guðmundsdóttir áheyrnarfulltrúi
  • Hermann Jón Tómasson áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Eiríkur Björn Björgvinsson bæjarstjóri
  • Dan Jens Brynjarsson fjármálastjóri
  • Jón Bragi Gunnarsson hagsýslustjóri
  • Heiða Karlsdóttir fundarritari
Dagskrá

1.Staða námsstyrkjasjóðanna

Málsnúmer 2010120025Vakta málsnúmer

Erindi dags. 6. desember 2010 frá formanni fræðslunefndar Akureyrarbæjar þar sem óskað er eftir upplýsingum um framtíð námsstyrkjasjóða embættismanna og sérmenntaðra starfsmanna.
Inga Þöll Þórgnýsdóttir bæjarlögmaður og Halla Margrét Tryggvadóttir starfsmannastjóri sátu fundinn undir þessum lið.

Bæjarráð vekur athygli á að ekki er gert ráð fyrir fjármunum í þennan málaflokk í fjárhagsáætlun 2011.

Bæjarráð felur bæjarstjóra og kjarasamninganefnd áframhaldandi vinnslu málsins.

2.Kjarasamningsumboð Akureyrarbæjar til SNS

Málsnúmer 2011010062Vakta málsnúmer

Lagt fram samkomulag um kjarasamningsumboð Akureyrarbæjar til SNS f.h. Sambands íslenskra sveitarfélaga við SFR - Stéttarfélag í almannaþjónustu.
Halla Margrét Tryggvadóttir starfsmannastjóri sat fundinn undir þessum lið.

Bæjarráð samþykkir samningsumboðið og vísar því til staðfestingar í bæjarstjórn.

3.Verkfallslisti - auglýsing 2011

Málsnúmer 2010120120Vakta málsnúmer

Halla Margrét Tryggvadóttir starfsmannastjóri lagði fram lista yfir starfsmenn sveitarfélagsins sem ekki hafa verkfallsheimild skv. lögum um opinbera starfsmenn.

Bæjarráð staðfestir framlagðan lista.

4.Bæjarráð - heimsóknir

Málsnúmer 2011010076Vakta málsnúmer

Fulltrúar hverfisráðs Hríseyjar forfölluðust og komust ekki til fundarins.
Bæjarstjóri gerði grein fyrir stöðu heilsugæslumála í Hrísey. Heilsugæslustöðin á Dalvík hefur ákveðið að hætta þjónustu í Hrísey.
Bæjarstjóri og framkvæmdastjóri Heilsugæslustöðvarinnar á Akureyri eru að vinna áfram að málinu.

5.Sorphirða - útboð

Málsnúmer 2006120023Vakta málsnúmer

6. liður í fundargerð umhverfisnefndar dags. 20. janúar 2011:
Rætt um útboð á sorphirðu fyrir stofnanir og fyrirtæki Akureyrarkaupstaðar.
Töluvert er um að stofnanir bæjarins flokki úrgang að einhverju eða öllu leyti.
Umhverfisnefnd leggur til að allar stofnanir og fyrirtæki Akureyrarkaupstaðar taki upp flokkun á úrgangi sem fellur til við starfsemi þeirra. Flokka skal endurvinnanlegan úrgang og lífrænt sorp. Óendurvinnanlegum úrgangi, sem fer til urðunar, skal halda í lágmarki. Við breytt fyrirkomulag sorphirðu í bænum og í anda Staðardagskrár 21 er mikilvægt að sveitarfélagið sé þátttakandi og sýni gott fordæmi. Lagt er til að innleiðing nýs fyrirkomulags verði lokið á árinu 2011.
Umhverfisnefnd vísar málinu til bæjarráðs.

Bæjarráð samþykkir tillögu umhverfisnefndar.

Kostnaðaraukningu skal mæta innan ramma hvers málaflokks.

6.Leiguíbúðir Akureyrarbæjar

Málsnúmer 2010010095Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar minnisblað dags. 20. janúar 2011 frá Jóni Heiðari Daðasyni húsnæðisfulltrúa um stöðu biðlista eftir leiguhúsnæði hjá Akureyrarbæ 31. desember 2010.

7.Múlasíða 5e - leiguíbúð - kaup

Málsnúmer 2011010104Vakta málsnúmer

Dan Jens Brynjarsson fjármálastjóri óskar eftir heimild til að kaupa íbúðina í Múlasíðu 5e og breyta henni í leiguíbúð.
Oddur Helgi Halldórsson L-lista og Geir Kristinn Aðalsteinsson L-lista viku af fundi við umræðu og afgreiðslu málsins vegna tengsla.
Ólafur Jónsson D-lista, aldursforseti, stjórnaði fundi undir þessum lið.

Meirihluti bæjarráðs heimilar fjármálastjóra að ganga frá kaupum á íbúðinni.

Kostnaði er vísað til endurskoðunar fjárhagsáætlunar.

8.Vestnorden 2010

Málsnúmer 2009100065Vakta málsnúmer

Lagt fram bréf dags. 10. desember 2010 og tölvupóstur dags. 24. janúar 2011 frá Ólöfu Ýrr Atladóttur ferðamálastjóra þar sem óskað er eftir fjárstuðningi vegna Vestnorden ferðamálakaupstefnunnar sem haldin var á Akureyri á síðastliðnu ári.

Bæjarráð samþykkir að styrkja verkefnið um kr. 345.000.

Færist á rekstrarár 2010 á málaflokk 105.

9.Önnur mál

Málsnúmer 2011010003Vakta málsnúmer

Dan Jens Brynjarsson fjármálastjóri upplýsti um fund innanríkisráðherra varðandi væntanlegar framkvæmdir við Vaðlaheiðargöng.

Fundi slitið - kl. 11:08.