Bæjarráð

3235. fundur 19. ágúst 2010 kl. 09:00 - 11:00 Bæjarstjórnarsalur á 4. hæð í Ráðhúsi
Nefndarmenn
  • Oddur Helgi Halldórsson formaður
  • Geir Kristinn Aðalsteinsson
  • Halla Björk Reynisdóttir
  • Guðmundur Baldvin Guðmundsson
  • Ólafur Jónsson
  • Andrea Sigrún Hjálmsdóttir áheyrnarfulltrúi
  • Hermann Jón Tómasson áheyrnarfulltrúi
  • Sigurður Guðmundsson áheyrnarfulltrúi
  • Eiríkur Björn Björgvinsson
  • Karl Guðmundsson
  • Dan Jens Brynjarsson
  • Jón Bragi Gunnarsson
  • Heiða Karlsdóttir fundarritari
Fundargerð ritaði: Dagný Harðardóttir skrifstofustjóri
Dagskrá

1.Tjaldsvæðisreitur við Þórunnarstræti

Málsnúmer 2010050025Vakta málsnúmer

6. liður í fundargerð skipulagsnefndar dags. 11. ágúst 2010:
Tillaga að deiliskipulagi reitsins var auglýst í Lögbirtingarblaði og Dagskránni, frá 23. júní 2010 með athugasemdarfresti til 4. ágúst 2010. Engin athugasemd barst.
Umsagnir bárust frá:
1) Fornleifavernd ríkisins, dags. 2. júní 2010. Engar athugasemdir eru gerðar.
2) Hamri, útilífs- og umhverfismiðstöð skáta, dags 7. júlí 2010. Engar athugasemdir eru gerðar.
Skipulagsnefnd leggur til við bæjarstjórn að deiliskipulagstillagan verði samþykkt og skipulagsstjóra falið að annast gildistöku hennar.
Bæjarráð hefur fullnaðarafgreiðsluheimild í sumarleyfi bæjarstjórnar sbr. bókun í 3. lið fundargerðar bæjarstjórnar dags. 29. júní 2010.

Bæjarráð samþykkir tillögu skipulagsnefndar og felur skipulagsstjóra að annast gildistöku hennar.

 

2.Afgreiðslur skipulagsstjóra 2010

Málsnúmer 2010010128Vakta málsnúmer

Lögð fram 309. fundargerð afgreiðslufundar skipulagsstjóra dags. 11. ágúst 2010. Fundargerðin er í 19 liðum.
Skipulagsstjóri óskar eftir staðfestingu bæjarráðs á 1., 3., 6., 8., 9., 10., 11., 12., 13., 14., 15., 16., 17. og 18. lið. Aðrir liðir gefa ekki tilefni til ályktunar.
Bæjarráð hefur fullnaðarafgreiðsluheimild í sumarleyfi bæjarstjórnar sbr. bókun í 3. lið fundargerðar bæjarstjórnar dags. 29. júní 2010.
Bæjarráð staðfestir 1., 3., 6., 8., 9., 10., 11., 12., 13., 14., 15., 16., 17. og 18. lið í fundargerð afgreiðslufundar skipulagsstjóra dags. 11. ágúst 2010.

3.Vetraríþróttamiðstöð Íslands - samningur Akureyrarbæjar og menntamálaráðuneytisins

Málsnúmer 2010080040Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar erindi dags. 20. júní 2010 frá Þórarni B. Jónssyni formanni VMÍ og Guðmundi Karli Jónssyni framkvæmdastjóra VMÍ þar sem þeir meðal annars minna á að samningar á milli Akureyrarbæjar og menntamálaráðuneytisins varðandi starfsemi VMÍ hafa verið lausir frá 31. desember 2007.

 

 

4.Ásatún 34 - 38 - tímafrestur og dagsektir

Málsnúmer 2010070087Vakta málsnúmer

9. liður í fundargerð skipulagsnefndar dags. 11. ágúst 2010:
Lagt var fram bréf frá skipulagsstjóra, dags. 28. júlí 2010, ásamt afriti af bréfum skipulagsstjóra til HK húseigna ehf, Íbúðalánasjóðs og Jafets Ólafssonar, eigenda Ásatúns 34, 36 og 38. Í bréfinu er gerð tillaga um tímafrest og beitingu dagsekta til þess að knýja fram að eigendur fái óháða verkfræðistofu til að skoða og álagsprófa milli- og loftaplötur Ásatúns 34 og skila skýrslu um prófunina til skipulagsdeildar Akureyrarbæjar með vísun í gr. 9.12 og 61.6 í byggingarreglugerð 441/1998. Þar sem sömu aðilar sáu um uppsetningu á milli- og loftaplötum Ásatúns 34, 36 og 38 er farið fram á að milli- og loftaplötur Ásatúns 36 og 38 verði skoðaðar á sama hátt. Andmælafrestur er liðinn og óskaði Bjarni M. Bjarnason fyrir hönd HK húseigna ehf eftir gögnum og lengri frest sem var samþykkt og frestur lengdur til 30. ágúst 2010. Er hér með lagt til að skipulagsnefnd samþykki tillögu skipulagsstjóra.
Skipulagsnefnd samþykkir tillögu skipulagsstjóra og m.v.t. 1. mgr. 57 gr. skipulags- og byggingarlaga leggur nefndin til við bæjarráð að tillagan verði samþykkt.

Bæjarráð samþykkir tillögu skipulagsnefndar.

5.Starfshópur Akureyrarstofu um atvinnumál

Málsnúmer 2010060120Vakta málsnúmer

Tekinn fyrir að nýju 5. liður í fundargerð bæjarráðs dags. 8. júlí 2010, sem bæjarráð frestaði afgreiðslu á.
Starfshópur um atvinnumál óskar eftir því við bæjarráð að veitt verði aukafjárveiting á árinu 2010 að upphæð 2.2 millj.kr. til að geta ráðið í starf verkefnastjóra atvinnumála sem yrði auglýst strax.

Bæjarráð samþykkir tillögu starfshóps um atvinnumál, sem starfar í umboði Akureyrarstofu, að ráða í 100 % starf verkefnisstjóra atvinnumála.   Bæjarráð samþykkir að veita aukafjárveitingu að upphæð 2.2 millj. kr. vegna ráðningarinnar og vísar henni til endurskoðunar fjárhagsáætlunar ársins 2010.  Starfið verði auglýst strax.

6.Landhelgisgæslan

Málsnúmer 2010080062Vakta málsnúmer

Ólafur Jónsson fulltrúi Sjálfstæðisflokksins lagði fram tillögu að eftirfarandi bókun:
Bæjarráð Akureyrar lýsir yfir áhyggjum sínum yfir því að slasaður sjómaður í Grímsey hafi þurft að bíða í 9 klst. eftir því að komast undir læknishendur sökum þess að einungis ein þyrluvakt var að störfum hjá Landhelgisgæslunni. Bæjarráð hefur skilning á hagræðingu í rekstri og forgangsröðun verkefna hjá Landhelgisgæslunni, en áréttar að leitað verði allra leiða til að niðurskurður komi ekki niður á öryggi sjómanna.

Bæjarráð samþykkir bókunina.

7.Innritun í leikskóla 2010

Málsnúmer 2010040040Vakta málsnúmer

1. liður í fundargerð skólanefndar dags. 16. ágúst 2010:
Fyrir fundinn var lagt yfirlit yfir stöðuna í innritun í leikskóla eins og hún liggur fyrir núna, ásamt tillögum til lausna. Þar kemur fram að sex leikskólar geta bætt við sig 13 börnum á aldrinum 18 mánaða til 4 ára, án þess að bæta þurfi við stöðugildum. Þá eru þrír leikskólar tilbúnir til að fjölga um 13 börn hjá sér en til þess þarf að bæta við 2,52 stöðugildum. Kostnaður vegna þessa er áætlaður tæpar tvær milljónir á þessu ári en rúmar sex milljónir á ársgrundvelli árið 2011. Ef þessi fjölgun gengur eftir verður búið að innrita tæp 55% 18 mánaða barnanna. Það er heldur hærra eða svipað hlutfall og undangengin 5 ár.
Skólanefnd samþykkir að óska eftir því við bæjarráð að fá viðbótarfjárveitingu að upphæð kr. 1.995.000 á fjárhagsárinu 2010, til þess að geta bætt við 13 rýmum við þrjá leikskóla.

Bæjarráð samþykkir viðbótarfjárveitingu að upphæð 2 millj. kr. og vísar henni til endurskoðunar fjárhagsáætlunar.

 

8.Önnur mál

Málsnúmer 2010010117Vakta málsnúmer

Ólafur Jónsson fulltrúi Sjálfstæðisflokksins spurðist fyrir um staðsetningu hjúkrunarheimilis.
Fundi slitið.

Fundi slitið - kl. 11:00.