Landhelgisgæslan

Málsnúmer 2010080062

Vakta málsnúmer

Bæjarráð - 3235. fundur - 19.08.2010

Ólafur Jónsson fulltrúi Sjálfstæðisflokksins lagði fram tillögu að eftirfarandi bókun:
Bæjarráð Akureyrar lýsir yfir áhyggjum sínum yfir því að slasaður sjómaður í Grímsey hafi þurft að bíða í 9 klst. eftir því að komast undir læknishendur sökum þess að einungis ein þyrluvakt var að störfum hjá Landhelgisgæslunni. Bæjarráð hefur skilning á hagræðingu í rekstri og forgangsröðun verkefna hjá Landhelgisgæslunni, en áréttar að leitað verði allra leiða til að niðurskurður komi ekki niður á öryggi sjómanna.

Bæjarráð samþykkir bókunina.