Bæjarráð

3271. fundur 28. apríl 2011 kl. 09:00 - 12:08 Bæjarstjórnarsalur á 4. hæð í Ráðhúsi
Nefndarmenn
  • Oddur Helgi Halldórsson formaður
  • Geir Kristinn Aðalsteinsson
  • Halla Björk Reynisdóttir
  • Guðmundur Baldvin Guðmundsson
  • Njáll Trausti Friðbertsson
  • Andrea Sigrún Hjálmsdóttir áheyrnarfulltrúi
  • Hermann Jón Tómasson áheyrnarfulltrúi
  • Sigurður Guðmundsson áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Jón Bragi Gunnarsson hagsýslustjóri
  • Eiríkur Björn Björgvinsson bæjarstjóri
  • Dagný Magnea Harðardóttir fundarritari
Dagskrá

1.Áfengis- og vímuvarnir

Málsnúmer 2011040090Vakta málsnúmer

Sigríður Huld Jónsdóttir aðstoðarskólameistari Verkmenntaskólans á Akureyri, Sigurlaug Anna Gunnarsdóttir aðstoðarskólameistari Menntaskólans á Akureyri, Sigmundur Magnússon húsbóndi heimavistar VMA og MA, Valgerður Jónsdóttir forvarnafulltrúi Verkmenntaskólans á Akureyri og Hólmfríður Jóhannsdóttir forvarnafulltrúi Menntaskólans á Akureyir mættu á fund bæjarráðs til að ræða um aukna neyslu ungmenna á Akureyri á kannabisefnum.
Hlín Bolladóttir formaður samfélags- og mannréttindaráðs sat fundinn undir þessum lið.

Bæjarráð þakkar þeim Sigríði Huld, Sigurlaugu Önnu, Sigmundi, Valgerði og Hólmfríði fyrir komuna á fundinn og vísar málinu til samfélags- og mannréttindaráðs.

2.Almannaheillanefnd

Málsnúmer 2008100088Vakta málsnúmer

Lögð fram til kynningar fundargerð almannaheillanefndar dags. 15. apríl 2011.

3.Viðtalstímar bæjarfulltrúa

Málsnúmer 2011010122Vakta málsnúmer

Lögð fram fundargerð viðtalstíma bæjarfulltrúa dags. 14. apríl 2011. Fundargerðin er í 9 liðum.

Bæjarráð vísar 1., 3., 4., 6., 7. og 9. lið til framkvæmdadeildar, 2. lið til fjármálastjóra, 5. lið til skólanefndar og 8. lið til fjölskyldudeildar.

4.Stjórn Sambands íslenskra sveitarfélaga

Málsnúmer 2011020014Vakta málsnúmer

Lögð fram til kynningar 785. fundargerð stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga dags. 24. mars 2011.

5.Fjölskyldudeild félagsþjónusta - beiðni um auka mönnun í félagsþjónustu

Málsnúmer 2011040032Vakta málsnúmer

3. liður í fundargerð félagsmálaráð dags. 13. apríl 2011:
Guðrún Sigurðardóttir framkvæmdastjóri fjölskyldudeildar sat fundinn undir þessum lið og lagði fram gögn um þörf fyrir aukna mönnun í félagsþjónustu. Framundan eru breytingar í starfsmannamálum og æskilegt væri að bæta við stöðubroti til að geta betur tekist á við aukin verkefni, m.a. vegna erfiðra skuldamála.
Félagsmálaráð samþykkir fyrir sitt leyti að heimila aukningu í félagsþjónustu á fjölskyldudeild sem nemur 60% stöðu í eitt ár frá 1. ágúst nk. Málinu vísað til bæjarráðs.
Félagsmálaráð lýsir jafnframt yfir vonbrigðum sínum með aðgerðaleysi umboðsmanns skuldara sem ekki hefur svarað áskorunum um starfsmann á Norðurlandi.
Starfsmönnum er falið að að ítreka erindi til umboðsmanns skuldara og velferðaráðherra til að mæta brýnni þörf þeirra sem eiga í erfiðum skuldavanda á Norður- og Austurlandi.

Bæjarráð samþykkir aukningu í félagsþjónustu á fjölskyldudeild sem nemur 60% stöðu í eitt ár frá 1. ágúst nk. og vísar kostnaði vegna ársins 2011 til endurskoðunar fjárhagsáætlunar.

6.Afmæli Jóns Sigurðssonar

Málsnúmer 2011040103Vakta málsnúmer

Lagður fram tölvupóstur dags. 19. apríl 2011 frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga f.h. afmælisnefndar Jóns Sigurðssonar þar sem sveitarfélög um land allt eru hvött til að minnast afmælis Jóns Sigurðssonar forseta sérstaklega að þessu sinni og þess mikla starfs sem hann vann í þágu þjóðar sinnar.

Bæjarráð vísar málinu til stjórnar Akureyrarstofu.

7.Slökkvilið Akureyrar - kaup á klippum

Málsnúmer 2011040068Vakta málsnúmer

2. liður í fundargerð framkvæmdaráðs dags. 15. apríl 2011:
Þorbjörn Haraldsson slökkviliðsstjóri kynnti stöðu mála vegna fjármögnunar á kaupum á nýjum klippum fyrir SA, en safnast hefur um helmingur fjárhæðar vegna kaupanna.
Framkvæmdaráð þakkar slökkviliðsstjóra komuna á fundinn.
Framkvæmdaráð samþykkir samhljóða að óska eftir aukafjárveitingu bæjarráðs allt að kr. 4.000.000 fyrir kaupum á klippibúnaði fyrir Slökkvilið Akureyrar.

Bæjarráð samþykkir aukafjárveitingu allt að kr. 4.000.000 og vísar kostnaði til endurskoðunar fjárhagsáætlunar.

8.Flokkun Eyjafjörður ehf

Málsnúmer 2011010006Vakta málsnúmer

Hermann Jón Tómasson fulltrúi bæjarins í stjórn Flokkunar Eyjafjörður ehf og formaður stjórnar fór yfir stöðu mála.

9.Naustaskóli - útboðsmál

Málsnúmer 2011040142Vakta málsnúmer

Farið yfir stöðu útboðsmála vegna Naustaskóla.
Inga Þöll Þórgnýsdóttir bæjarlögmaður, Guðríður Friðriksdóttir framkvæmdastjóri Fasteigna Akureyrarbæjar og Sigfús Karlsson fulltúi í framkvæmdaráði sátu fundinn undir þessum lið.

Bæjarráð bendir á grein bæjarstjóra um málið í Fréttablaðinu í dag.

Eiríkur Björn Björgvinsson bæjarstjóri og Geir Kristinn Aðalsteinsson viku af fundi kl. 11:55.

10.Molta

Málsnúmer 2010020122Vakta málsnúmer

Farið yfir stöðu mála.

11.Önnur mál

Málsnúmer 2011010003Vakta málsnúmer

Sigurður Guðmundsson fulltrúi A-lista ítrekar fyrirspurnir sínar varðandi kostnað við heimasíðu Akureyrarbæjar og varðandi aðkomu starfsmanna Akureyrarbæjar að hreinsun og eftirliti við grenndargáma, þar sem það er ekki innan samnings Akureyrarbæjar og Gámaþjónustu Norðurlands ehf.

Fundi slitið - kl. 12:08.