Bæjarráð

3706. fundur 19. nóvember 2020 kl. 08:15 - 11:31 Fjarfundur
Nefndarmenn
  • Guðmundur Baldvin Guðmundsson formaður
  • Gunnar Gíslason
  • Halla Björk Reynisdóttir
  • Hilda Jana Gísladóttir
  • Sóley Björk Stefánsdóttir
  • Hlynur Jóhannsson áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Ásthildur Sturludóttir bæjarstjóri
  • Kristín Sóley Sigursveinsdóttir fundarritari
Fundargerð ritaði: Kristín Sóley Sigursveinsdóttir forstöðumaður upplýsinga- og þjónustudeildar
Dagskrá

1.Fjárhagsáætlun Akureyrarbæjar 2021-2024

Málsnúmer 2020030454Vakta málsnúmer

Unnið að gerð fjárhagsáætlunar.

Dan Jens Brynjarsson sviðsstjóri fjársýslusviðs, Kristín Baldvinsdóttir verkefnastjóri á fjársýslusviði og bæjarfulltrúarnir Andri Teitsson, Eva Hrund Einarsdóttir, Heimir Haraldsson og Þórhallur Jónsson sátu fund bæjarráðs undir þessum lið.

2.Afsláttur af leigu húsnæðis í eigu Akureyrarbæjar til aðila í ferðaþjónustu

Málsnúmer 2020050047Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 6. nóvember 2020 þar sem rekstraraðilar kaffihússins í Lystigarðinum sækja um afslátt eða niðurfellingu húsaleigu vegna tekjufalls í kjölfar kórónuveirufaraldursins.

Málið var áður á dagskrá bæjarráðs 12. nóvember sl. og var afgreiðslu þá frestað.

Inga Þöll Þórgnýsdóttir bæjarlögmaður, Dan Jens Brynjarsson sviðsstjóri fjársýslusviðs, Kristín Baldvinsdóttir verkefnastjóri á fjársýslusviði og bæjarfulltrúarnir Andri Teitsson, Eva Hrund Einarsdóttir, Heimir Haraldsson og Þórhallur Jónsson sátu fund bæjarráðs undir þessum lið.
Bæjarráð getur ekki orðið við erindinu og bendir á úrræði á vegum ríkisins vegna tekjufalls fyrirtækja.
Ásthildur Sturludóttir vék af fundi kl. 09:42.

3.Bæjarsjóður Akureyrar - yfirlit um rekstur 2020

Málsnúmer 2020030021Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar níu mánaða rekstraryfirlit Akureyrarbæjar.

Dan Jens Brynjarsson sviðsstjóri fjársýslusviðs og Kristín Baldvinsdóttir verkefnastjóri á fjársýslusviði sátu fund bæjarráðs undir þessum lið.
Ásthildur Sturludóttir mætti aftur til fundar kl. 11:07.

4.Skíðafélag Akureyrar - samningur vegna aðstöðu

Málsnúmer 2019110186Vakta málsnúmer

Liður 3 í fundargerð stjórnar Hlíðarfjalls dagsettri 3. nóvember 2020:

Samningur við Skíðafélag Akureyrar lagður fram til samþykktar.

Stjórn Hlíðarfjalls samþykkir samninginn fyrir sitt leyti með áorðnum breytingum og vísar honum til bæjarráðs.

Dan Jens Brynjarsson sviðsstjóri fjársýslusviðs sat fund bæjarráðs undir þessum lið.
Bæjarráð samþykkir samninginn með fimm samhljóða atkvæðum.

5.Heilbrigðisnefnd Norðurlandssvæðis eystra - fundargerðir

Málsnúmer 2019020406Vakta málsnúmer

Lögð fram til kynningar fundargerð 216. fundar heilbrigðisnefndar Norðurlandssvæðis eystra dagsett 4. nóvember 2020 ásamt handbók fyrir sveitarfélög um viðbragðsáætlanir til að draga úr loftmengun.

Fundargerðir nefndarinnar er að finna á eftirfarandi slóð: https://www.hne.is/is/fundargerdir
Bæjarráð vísar fundargerðinni og handbók um viðbragðsáætlanir til að draga úr loftmengun til umhverfis- og mannvirkjaráðs.

6.Samtök sveitarfélaga og atvinnuþróunar á Norðurlandi eystra SSNE - fundargerðir stjórnar 2019-2020

Málsnúmer 2020020650Vakta málsnúmer

Lögð fram til kynningar fundargerð 17. fundar stjórnar SSNE dagsett 11. nóvember 2020.

Fundargerðir stjórnarinnar er að finna á eftirfarandi slóð: https://www.ssne.is/is/fundargerdir/stjorn-ssne

7.SSNE - aukaársþing 2020

Málsnúmer 2020110452Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 13. nóvember 2020 frá framkvæmdastjóra SSNE þar sem boðað er til aukaþings SSNE 11. desember næstkomandi.

8.Tillaga til þingsályktunar um aðgerðir í þágu sveitarfélaga vegna heimsfaraldurs kórónuveiru, 43. mál

Málsnúmer 2020110298Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar erindi dagsett 11. nóvember 2020 frá efnahags- og viðskiptanefnd Alþingis þar sem óskað er umsagnar um tillögu til þingsályktunar um aðgerðir í þágu sveitarfélaga vegna heimsfaraldurs kórónuveiru, 43. mál 2020. Þess er óskað að undirrituð umsögn berist eigi síðar en 25. nóvember nk. á netfangið nefndasvid@althingi.is.

Þingskjalið er hægt að sækja á vef Alþingis: https://www.althingi.is/altext/151/s/0043.html

Fundi slitið - kl. 11:31.