Bæjarráð

3671. fundur 13. febrúar 2020 kl. 08:15 - 10:29 Fundarsalur á 2. hæð í Ráðhúsi
Nefndarmenn
  • Guðmundur Baldvin Guðmundsson formaður
  • Halla Björk Reynisdóttir
  • Heimir Haraldsson
  • Gunnar Gíslason
  • Sóley Björk Stefánsdóttir
  • Hlynur Jóhannsson áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Ásthildur Sturludóttir bæjarstjóri
  • Hulda Sif Hermannsdóttir fundarritari
Fundargerð ritaði: Kristín Sóley Sigursveinsdóttir forstöðumaður upplýsinga- og þjónustudeildar
Dagskrá
Heimir Haraldsson S-lista sat fundinn í forföllum Hildu Jönu Gísladóttur.

1.Íbúalýðræði og gagnsæ stjórnsýsla

Málsnúmer 2015020002Vakta málsnúmer

Kynning á íbúasamráðsverkefni.

Hrafn Svavarsson forstöðumaður umhverfismiðstöðvar, Jón Þór Kristjánsson verkefnastjóri upplýsingamiðlunar og Halla Margrét Tryggvadóttir sviðsstjóri stjórnsýslusviðs sátu fund bæjarráðs undir þessum lið.
Bæjarráð þakkar stýrihópnum og starfsmönnum fyrir góða vinnu. Jafnframt lýsir bæjarráð yfir vilja til þess að þróa áfram vinnu og verkefni við íbúasamráð. Þá samþykkir bæjarráð að þiggja boð um að senda tvo fulltrúa á tengslaráðstefnu í Tékklandi til að ræða möguleika á samstarfsverkefnum um íbúasamráð.

2.Verkefnastjóri upplýsingamiðlunar - rökstuðningur vegna ráðningar

Málsnúmer 2019060038Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar álit umboðsmanns Alþings vegna ráðningar í starf verkefnastjóra upplýsingamiðlunar.

Álitið er hægt að sækja á vef umboðsmanns Alþingis: https://www.umbodsmadur.is/alit-og-bref/mal/nr/7475/skoda/mal/

Inga Þöll Þórgnýsdóttir bæjarlögmaður og Halla Margrét Tryggvadóttir sviðsstjóri stjórnsýslusviðs sátu fund bæjarráðs undir þessum lið.
Bæjarráð felur bæjarlögmanni að vinna málið áfram.

3.Skammtímavistun reglur 2019-2020

Málsnúmer 2019080549Vakta málsnúmer

Liður 1 í fundargerð velferðarráðs dagsettri 5. febrúar 2020:

Lögð fram drög að endurskoðuðum reglum um skammtímaþjónustu fyrir fötluð börn. Málið var áður á dagskrá 2. október sl.

Velferðarráð samþykkir drögin fyrir sitt leyti og vísar málinu áfram til bæjarráðs.
Bæjarráð vísar drögunum til afgreiðslu bæjarstjórnar.

4.Aðgerðaáætlun í málefnum eldri borgara

Málsnúmer 2020010595Vakta málsnúmer

Liður 3. í fundargerð öldungaráðs dagsettri 3. febrúar 2020:

Lagt er til að unnin verði sérstök aðgerðaáætlun í málefnum eldri borgara í samráði öldungaráðs og þeirra ráða og sviða/deilda sem koma að þjónustu við hópinn.

Öldungaráð leggur til við bæjarráð að skipaður verði vinnuhópur til að vinna aðgerðaáætlun um málefni eldri borgara. Markmiðið er að ná yfirsýn og upplýsingum á þjónustu ásamt því að gera stefnumótun til framtíðar.
Afgreiðslu frestað.

5.Hverfisráð Hríseyjar - aðalfundur 2020

Málsnúmer 2020020329Vakta málsnúmer

Lögð fram fundargerð aðalfundar hverfisráðs Hríseyjar sem haldinn var 10. febrúar 2020.

Guðríður Friðriksdóttir sviðsstjóri umhverfis- og mannvirkjasviðs sat fundinn undir þessum lið.
Bæjarráð vísar liðum 3b, 3c, 3d, 3e, 3g, 3h, 3i og 3j til umhverfis- og mannvirkjasviðs. Aðrir liðir fundargerðarinnar eru lagðir fram til kynningar.

6.Tillaga til þingsályktunar um Tröllaskagagöng milli Skagafjarða og Eyjafjarðar, 302. mál

Málsnúmer 2020020112Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar erindi dagsett 5. febrúar 2020 frá umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis þar sem óskað er umsagnar um tillögu til þingsályktunar um Tröllaskagagöng milli Skagafjarðar og Eyjafjarðar, 302. mál 2020.

Þess er óskað að undirrituð umsögn berist eigi síðar en 19. febrúar nk. á netfangið nefndasvid@althingi.is.

Þingskjalið er hægt að sækja á vef Alþingis: https://www.althingi.is/altext/150/s/0340.html
Bæjarráð felur bæjarstjóra að útbúa umsögn vegna málsins.

Fundi slitið - kl. 10:29.