Bæjarráð

3596. fundur 26. apríl 2018 kl. 08:15 - 10:50 Fundarsalur á 2. hæð í Ráðhúsi
Nefndarmenn
  • Guðmundur Baldvin Guðmundsson formaður
  • Dagbjört Elín Pálsdóttir
  • Silja Dögg Baldursdóttir
  • Gunnar Gíslason
  • Sóley Björk Stefánsdóttir
  • Preben Jón Pétursson áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Eiríkur Björn Björgvinsson bæjarstjóri
  • Kristín Sóley Sigursveinsdóttir forstöðumaður upplýsinga- og þjónustudeildar ritaði fundargerð
Fundargerð ritaði: Kristín Sóley Sigursveinsdóttir forstöðumaður upplýsinga- og þjónustudeildar
Dagskrá
Dagbjört Elín Pálsdóttir S-lista mætti í forföllum Sigríðar Huldar Jónsdóttur.
Silja Dögg Baldursdóttir L-lista mætti í forföllum Matthíasar Rögnvaldssonar.

1.Bæjarsjóður Akureyrar - yfirlit um rekstur 2018

Málsnúmer 2018040257Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar yfirlit um rekstur aðalsjóðs janúar til mars 2018.

Kristjana Hreiðarsdóttir aðalbókari á fjársýslusviði sat fund bæjarráðs undir þessum lið.

2.Ársreikningur Akureyrarbæjar fyrir árið 2017

Málsnúmer 2017080144Vakta málsnúmer

2. liður í fundargerð bæjarstjórnar dagsett 24. apríl 2018:

Bæjarstjórn vísar ársreikningnum til bæjarráðs og síðari umræðu í bæjarstjórn.

Umræður um ársreikning.

3.Hreinsun gatna - útboð á götusópun 2018

Málsnúmer 2018020517Vakta málsnúmer

4. liður í fundargerð umhverfis- og mannvirkjaráðs dagsett 13. apríl 2018:

Lagt fram minnisblað dagsett 10. apríl 2018 vegna opnunar tilboða í hreinsun gatna.

Einnig lagt fram minnisblað dagsett 12. apríl 2018 um hreinsun götukanta.

Umhverfis- og mannvirkjaráð samþykkir að samið verði við Hreinsitækni ehf. Einnig samþykkir ráðið að sækja um viðauka að upphæð 9 milljónir króna vegna hreinsunar götukanta í bænum.
Bæjarráð samþykkir framlagðan viðauka og vísar honum til staðfestingar í bæjarstjórn.

4.Vaðlaheiðargöng - samkomulag vegna búnaðar í göngunum

Málsnúmer 2018030360Vakta málsnúmer

7. liður í fundargerð umhverfis- og mannvirkjaráðs dagsett 13. apríl 2018:

Lögð fram drög að samningi við Vaðlaheiðargöng hf um framlag til Slökkviliðs Akureyrar og Þingeyjarsveitar vegna Vaðlaheiðarganga.

Ólafur Stefánsson slökkviliðsstjóri sat fundinn undir þessum lið.

Umhverfis- og mannvirkjaráð samþykkir fyrir sitt leyti framlögð drög að samningi með þeim breytingum sem fram komu á fundinum.

Bæjarstjóri kynnti samninginn.

5.Fjölskylduheimili

Málsnúmer 2018040009Vakta málsnúmer

1. liður í fundargerð velferðarráðs dagsett 4. apríl 2018:

Lagt fram til kynningar minnisblað Vilborgar Þórarinsdóttur forstöðumanns barnaverndar dagsett 30. mars 2018 um fjölskylduheimili.

Anna Marit Níelsdóttir forstöðumaður í félagsþjónustu og Vilborg Þórarinsdóttir forstöðumaður barnaverndar sátu fundinn undir þessum lið.

Velferðarráð tekur vel í hugmyndina um fjölskylduheimili og leggur til að hún verði kynnt fyrir bæjarráði.

Guðrún Sigurðardóttir sviðsstjóri fjölskyldusviðs og Vilborg Þórarinsdóttir forstöðumaður barnaverndar sátu fund bæjarráðs undir þessum lið.

6.Hverfisnefnd Holta- og Hlíðahverfis - fundargerð

Málsnúmer 2017010127Vakta málsnúmer

Lögð fram fundargerð 108. fundar hverfisnefndar Holta- og Hlíðahverfis dagsett 11. apríl 2018.

Fundargerðirnar má finna á netslóðinni:

https://www.akureyri.is/is/stjornkerfi/stjornsysla/hverfisnefndir/holta-og-hlidahverfi/fundargerdir
Liðir 1-5, 7 og 9 eru lagðir fram til kynningar. Bæjarráð vísar liðum 6 og 8 til umhverfis- og mannvirkjasviðs.

7.Hverfisráð Hríseyjar - fundargerð

Málsnúmer 2010020035Vakta málsnúmer

Lögð fram 116. fundargerð hverfisráðs Hríseyjar dagsett 15. apríl 2018.

Fundargerðina má finna á netslóðinni:

https://www.akureyri.is/is/stjornkerfi/stjornsysla/hverfisnefndir/hrisey/fundargerdir
Liðir 1, 2 og 4 eru lagðir fram til kynningar. Bæjarráð vísar lið 3 til bæjarstjóra.

8.Símenntunarmiðstöð Eyjafjarðar - ársfundur 2018

Málsnúmer 2018040275Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 18. apríl 2018 frá Valgeiri Magnússyni framkvæmdastjóra f.h. stjórnar SÍMEY þar sem boðað er til ársfundar miðvikudaginn 2. maí nk. kl. 14:00 í húsnæði miðstöðvarinnar að Þórsstíg 4 á Akureyri.
Bæjarráð felur Höllu Margréti Tryggvadóttur að fara með umboð Akureyrarbæjar á fundinum. Bæjarráð tilnefnir Höllu Margréti Tryggvadóttur sem aðalmann í stjórn SÍMEY og Hlyn Má Erlingsson til vara.

9.Frumvarp til laga um mat á umhverfisáhrifum (EES-reglur, stjórnvaldssektir o.fl.), 467. mál.

Málsnúmer 2018040240Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar erindi dagsett 20. apríl 2018 frá umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis þar sem óskað er umsagnar um frumvarp til laga um mat á umhverfisáhrifum (EES-reglur, stjórnvaldssektir o.fl.), 467. mál 2018.

Þess er óskað að undirrituð umsögn berist eigi síðar en 4. maí nk. á netfangið nefndasvid@althingi.is.

Þingskjalið er hægt að sækja á vef Alþingis: http://www.althingi.is/altext/148/s/0673.html

10.Tillaga til þingsályktunar um stefnumótandi byggðaáætlun 2018-2024, 480. mál

Málsnúmer 2018040231Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar erindi dagsett 20. apríl 2018 frá umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis þar sem óskað er umsagnar um tillögu til þingsályktunar um stefnumótandi byggðaáætlun 2018-2024, 480. mál 2018.

Þess er óskað að undirrituð umsögn berist eigi síðar en 4. maí nk. á netfangið nefndasvid@althingi.is.

Þingskjalið er hægt að sækja á vef Alþingis: http://www.althingi.is/altext/148/s/0690.html

11.Frumvarp til laga um Póst- og fjarskiptastofnun o.fl. (gjaldtaka fyrir tíðnir og alþjónusta), 454. mál

Málsnúmer 2018040233Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar erindi dagsett 20. apríl 2018 frá umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis þar sem óskað er umsagnar um frumvarp til laga um Póst- og fjarskiptastofnun o.fl. (gjaldtaka fyrir tíðnir og alþjónusta), 454. mál 2018.

Þess er óskað að undirrituð umsögn berist eigi síðar en 4. maí nk. á netfangið nefndasvid@althingi.is.

Þingskjalið er hægt að sækja á vef Alþingis: http://www.althingi.is/altext/148/s/0653.html

12.Tillaga til þingsályktunar um stefnumarkandi landsáætlun um uppbyggingu innviða til verndar náttúru og menningarsögulegum minjum 2018 - 2029, 479. mál

Málsnúmer 2018040236Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar erindi dagsett 20. apríl 2018 frá umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis þar sem óskað er umsagnar um tillögu til þingsályktunar um uppbyggingu innviða til verndar náttúru og menningarsögulegum minjum 2018 - 2029, 479. mál 2018.

Þess er óskað að undirrituð umsögn berist eigi síðar en 4. maí nk. á netfangið nefndasvid@althingi.is.

Þingskjalið er hægt að sækja á vef Alþingis: http://www.althingi.is/altext/148/s/0689.html

Fundi slitið - kl. 10:50.