Bæjarráð

3589. fundur 01. mars 2018 kl. 08:15 - 11:20 Fundarsalur á 2. hæð í Ráðhúsi
Nefndarmenn
  • Guðmundur Baldvin Guðmundsson formaður
  • Sigríður Huld Jónsdóttir
  • Silja Dögg Baldursdóttir
  • Gunnar Gíslason
  • Sóley Björk Stefánsdóttir
  • Preben Jón Pétursson áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Eiríkur Björn Björgvinsson bæjarstjóri
  • Dagný Magnea Harðardóttir fundarritari
Fundargerð ritaði: Dagný Magnea Harðardóttir forstöðumaður upplýsinga- og þjónustudeildar
Dagskrá
Silja Dögg Baldursdóttir L-lista mætti í forföllum Matthíasar Rögnvaldssonar.

1.Stjórnendafræðsla, þarfagreining með Símey

Málsnúmer 2017080071Vakta málsnúmer

Halla Margrét Tryggvadóttir sviðsstjóri stjórnsýslusviðs og Anna Lilja Björnsdóttir mannauðsráðgjafi kynntu þarfagreiningu stjórnendafræðslu sem gerð var í samvinnu við Símey.

2.Verklagsreglur um auglýsingar starfa og tímabundnar ráðningar starfsfólks Akureyrarbæjar

Málsnúmer 2018020419Vakta málsnúmer

Halla Margrét Tryggvadóttir sviðsstjóri stjórnsýslusviðs fór yfir reglur um auglýsingu starfa.

3.Jafnlaunavottun

Málsnúmer 2018020375Vakta málsnúmer

Lögð fram tillaga að gerð samnings við Vottun hf um úttekt hjá Akureyrarbæ vegna jafnlaunavottunar.

Halla Margrét Tryggvadóttir sviðsstjóri stjórnsýslusviðs sat fund bæjarráðs undir þessum lið.
Bæjarráð samþykkir framlagða tillögu að samningi við Vottun hf.

4.Nefndalaun endurskoðun

Málsnúmer 2017060058Vakta málsnúmer

Lögð fram tillaga að breytingu á nefndalaunum.

Halla Margrét Tryggvadóttir sviðsstjóri stjórnsýslusviðs sat fund bæjarráðs undir þessum lið.
Bæjarráð samþykkir framlagða tillögu að breytingu á nefndalaunum.

5.Byrgi - kaup á húsnæði

Málsnúmer 2018020496Vakta málsnúmer

Lagt fram kauptilboð í eignina Byrgi Sandgerðisbót dagsett 28. febrúar 2018.

Dan Jens Brynjarsson sviðsstjóri fjársýslusviðs sat fund bæjarráðs undir þessum lið.
Bæjarráð samþykkir framlagt kauptilboð.

6.Restart Ísland - styrkbeiðni

Málsnúmer 2018020411Vakta málsnúmer

6. liður í fundargerð umhverfis- og mannvirkjaráðs dagsett 23. febrúar 2018:

Lagt fram erindi frá Restart Ísland hópnum dagsett 11. janúar 2018 vegna beiðni um styrkveitingu að upphæð kr. 200.000 vegna verkefnisins.

Rut Jónsdóttir forstöðumaður umhverfis- og sorpmála sat fundinn undir þessum lið.

Umhverfis- og mannvirkjaráð tekur jákvætt í erindið og vísar því til afgreiðslu í bæjarráði.
Bæjarráð tekur undir mikilvægi verkefnisins og felur bæjarstjóra að ræða við bréfritara um nánari útfærslu.

7.Styrktarsjóður EBÍ 2018

Málsnúmer 2018020471Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 21. febrúar 2018 frá Eignarhaldsfélagi Brunabótafélags Íslands varðandi umsóknir í styrktarsjóð EBÍ 2018.

Aðildarsveitarfélag sendir aðeins inn eina umsókn sem skila á á þar til gerðu umsóknareyðublaði. Umsóknir skulu vera vegna sérstakra framfaraverkefna á vegum sveitarfélaganna en ekki vegna almennra rekstrarverkefna þeirra. Vakin er athygli á því að stjórn EBÍ hefur samþykkt tvær breytingar á reglunum. Nú er kveðið á um að sveitarfélag geti að öllu jöfnu ekki fengið úthlutað styrk tvö ár í röð sbr. þriðju málsgrein í 3. gr. og í 8. gr. er hnykkt á skilaskyldu greinargerðar um framgang verkefnisins.

Umsóknarfrestur er til loka apríl nk.
Akureyrarbær fékk styrk úr styrktarsjóðnum á síðasta ári og sækir því ekki um í ár vegna nýs ákvæðis í reglum sjóðsins.

8.Tillaga til þingsályktunar um bætta stjórnsýslu í umgengnismálum, 90. mál

Málsnúmer 2018020488Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar erindi dagsett 26. febrúar 2018 frá velferðarnefnd Alþingis þar sem óskað er umsagnar um tillögu til þingsályktunar um bætta stjórnsýslu í umgengnismálum, 90. mál 2018. Þess er óskað að undirrituð umsögn berist eigi síðar en 16. mars nk. á netfangið nefndasvid@althingi.is. Þingskjalið er hægt að sækja á vef Alþingis: http://www.althingi.is/altext/148/s/0157.html





Sigríður Huld Jónsdóttir vék af fundi kl. 10:40.

Silja Dögg Baldursdóttir vék af fundi kl. 11:00.

Fundi slitið - kl. 11:20.