Bæjarráð

3576. fundur 16. nóvember 2017 kl. 08:15 - 10:50 Fundarsalur á 2. hæð í Ráðhúsi
Nefndarmenn
  • Sigríður Huld Jónsdóttir varaformaður
  • Silja Dögg Baldursdóttir
  • Gunnar Gíslason
  • Sóley Björk Stefánsdóttir
  • Preben Jón Pétursson áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Eiríkur Björn Björgvinsson bæjarstjóri
  • Dagný Magnea Harðardóttir fundarritari
Fundargerð ritaði: Dagný Magnea Harðardóttir skrifstofustjóri Ráðhúss
Dagskrá
Guðmundur Baldvin Guðmundsson B-lista boðaði forföll sín og varamanns síns.
Silja Dögg Baldursdóttir L-lista mætti í forföllum Matthíasar Rögnvaldssonar.

1.Fjárhagsáætlun Akureyrarbæjar 2018-2021

Málsnúmer 2017040095Vakta málsnúmer

Unnið að gerð fjárhagsáætlunar.

Dan Jens Brynjarsson sviðsstjóri fjársýslusviðs sat fund bæjarráðs undir þessum lið.

2.Neytendasamtökin - styrkbeiðni

Málsnúmer 2017100129Vakta málsnúmer

Lagt fram erindi frá Brynhildi Pétursdóttur framkvæmdastjóra Neytendasamtakanna þar sem óskað er eftir að bæjarráð endurskoði afstöðu sína sem tekin var í bæjarráði 12. október sl. um erindi dagsett 25. september 2017 frá Neytendasamtökunum þar sem óskað var eftir framlagi til að styðja við starfsemi samtakanna.

Dan Jens Brynjarsson sviðsstjóri fjársýslusviðs sat fund bæjarráðs undir þessum lið.
Bæjarráð samþykkir að styrkja Neytendasamtökin um 300.000 kr. á árinu 2018 og vísar kostnaðinum til gerðar fjárhagsáætlunar.

3.Bjarg íbúðafélag

Málsnúmer 2017100395Vakta málsnúmer

Bæjarstjóri kynnti stöðu mála í viðræðum Akureyrarbæjar við Bjarg íbúðafélag.

Dan Jens Brynjarsson sviðsstjóri fjársýslusviðs sat fund bæjarráðs undir þessum lið.

4.Frístundaráð - stefnumótun - íþróttastefna 2017

Málsnúmer 2017020033Vakta málsnúmer

4. liður í fundargerð frístundaráðs dagsett 9. nóvember 2017:

Frístundaráð samþykkir að óska eftir umsögn hagsmunaaðila á íþróttastefnuna og felur deildarstjóra íþróttamála að vinna málið áfram.
Bæjarráð hvetur bæjarfulltrúa til að senda sínar umsagnir um íþróttastefnuna til deildarstjóra íþróttamála eða formanns frístundaráðs.

5.Byggðastofnun - málþing um raforkumál á Íslandi

Málsnúmer 2017110156Vakta málsnúmer

Lögð fram til kynningar auglýsing um málþing um raforkumál á Íslandi sem haldið verður þriðjudaginn 21. nóvember nk í Hofi á Akureyri. Málþingið hefst kl. 13:00 og stendur til kl. 16:30.

Umfjöllunarefnið er einkum flutningskerfi raforku á Íslandi.

6.Stjórnsýslubreytingar - úttekt

Málsnúmer 2017110159Vakta málsnúmer

Bæjarstjóri kynnti fyrirhugaða úttekt á stjórnsýslubreytingunum.

7.Minjasafnið á Akureyri - aðalfundur 2017

Málsnúmer 2017110158Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 13. nóvember 2017 frá Haraldi Þór Egilssyni safnstjóra Minjasafnsins á Akureyri. Í erindinu er boðað til aðalfundar Minjasafnsins fimmtudaginn 30. nóvember nk kl. 14:00 í sal Zontaklúbbsins á Akureyri, Aðalstræti 54.
Bæjarráð felur Þórgný Dýrfjörð deildarstjóra Akureyrarstofu að fara með umboð Akureyrarbæjar á fundinum.

8.Eyþing - aðalfundur 2017 - ályktanir

Málsnúmer 2017100477Vakta málsnúmer

Lagðar fram til kynningar ályktanir aðalfundar Eyþings sem haldinn var dagana 10. og 11. nóvember sl.

9.Snorri Óskarsson - bótakrafa

Málsnúmer 2015050121Vakta málsnúmer

Lagður fram til kynningar dómur í máli E-220/2016, Snorri Óskarsson gegn Akureyrarbæ.

Inga Þöll Þórgnýsdóttir bæjarlögmaður sat fund bæjarráðs undir þessum lið.

Fundi slitið - kl. 10:50.