Bæjarráð

3557. fundur 01. júní 2017 kl. 08:15 - 12:00 Fundarsalur á 2. hæð í Ráðhúsi
Nefndarmenn
  • Guðmundur Baldvin Guðmundsson formaður
  • Dagbjört Elín Pálsdóttir
  • Silja Dögg Baldursdóttir
  • Gunnar Gíslason
  • Þorsteinn Hlynur Jónsson
  • Sóley Björk Stefánsdóttir áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Eiríkur Björn Björgvinsson bæjarstjóri
  • Dagný Magnea Harðardóttir fundarritari
Fundargerð ritaði: Dagný Magnea Harðardóttir
Dagskrá
Dagbjört Elín Pálsdóttir S-lista mætti í forföllum Sigríðar Huldar Jónsdóttur.
Silja Dögg Baldursdóttir L-lista mætti í forföllum Matthíasar Rögnvaldssonar.
Þorsteinn Hlynur Jónsson Æ-lista mætti í forföllum Prebens Jóns Péturssonar.

1.Fimm ára deildir í grunnskólum

Málsnúmer 2017050139Vakta málsnúmer

5. liður í fundargerð fræðsluráðs dagsett 22. maí 2017:

Bæjarstjórn bókaði á fundi sínum þann 27. apríl sl. að kannaðir yrðu möguleikar þess að nýta hluta húsnæðis í grunnskólum fyrir 5 ára deildir leikskólabarna.

Hrafnhildur G. Sigurðardóttir leikskólafulltrúi fór yfir stöðuna á vinnunni.

Fræðslusvið hefur undanfarið unnið að tillögu og útfærslu á að reka leikskóladeildir fyrir 5 ára börn í tveimur af grunnskólum.

Í framlögðu minnisblaði fræðslusviðs kemur fram að kostnaður við þessa framkvæmd að teknu tilliti til tekna er rúmar 33 milljónir á árs grundvelli. En vegna ársins 2017 er áætlaður kostnaður rúmar 16 milljónir króna.

Fræðsluráð vísar erindi um aukafjárveitingu vegna verkefnisins til bæjarráðs.

Hrafnhildur G. Sigurðardóttir leikskólafulltrúi og Soffía Vagnsdóttir fræðslustjóri sátu fund bæjarráðs undir þessum lið auk Dans Jens Brynjarssonar sviðsstjóra fjársýslusviðs.
Bæjarráð samþykkir framlagða beiðni um aukafjárveitingu vegna ársins 2017 og felur sviðsstjóra fjársýslusviðs að útbúa viðauka vegna hennar og leggja fyrir bæjarráð.

2.Framkvæmd í Glerárskóla vegna 5 ára deildar

Málsnúmer 2017050142Vakta málsnúmer

6. liður í fundargerð fræðsluráðs dagsett 22. maí 2017:

Vegna væntanlegrar 5 ára leikskóladeildar í Glerárskóla þarf að framkvæma breytingar. Um er að ræða uppsetningu opnanlegs milliveggjar í einu kennslurými, niðurrif sviðspalls í öðru ásamt dúklagningu og endurnýjun innréttinga.

Áætlaður kostnaður við breytingarnar er um 4 milljónir króna.

Á minnisblaði sem lagt var fyrir fundinn hljóðaði áætlun upp á 3 milljónir króna. Eftir vettvangsskoðun í Glerárskóla með fulltrúum umhverfis- og mannvirkjasviðs að morgni 22. maí 2017 var það mat að áætlaður kostnaður vegna framkvæmda yrði um 4 milljónir króna. Fræðsluráð óskar eftir auka fjárveitingu að upphæð 4 milljónir króna vegna framkvæmdanna og vísar erindinu til bæjarráðs.

Hrafnhildur G. Sigurðardóttir leikskólafulltrúi og Soffía Vagnsdóttir fræðslustjóri sátu fund bæjarráðs undir þessum lið auk Dans Jens Brynjarssonar sviðsstjóra fjársýslusviðs.
Bæjarráð vísar beiðninni til umhverfis- og mannvirkjaráðs.

3.Kennslustundaúthlutun til grunnskóla

Málsnúmer 2017030172Vakta málsnúmer

8. liður í fundargerð fræðsluráðs dagsett 22. maí 2017:

Árni Konráð Bjarnason rekstrarstjóri á fræðslusviði fór yfir tillögu að viðauka vegna aukningar kennslustundakvóta og aukið stöðuhlutfall námsráðgjafa við Oddeyrarskóla fyrir tímabilið ágúst-desember 2017. Kostnaður við aukninguna er áætlaður 22 milljónir króna.

Fræðsluráð vísar tillögu að viðauka að upphæð 22 milljónir króna til bæjarráðs.

Soffía Vagnsdóttir fræðslustjóri og Dan Jens Brynjarsson sviðsstjóri fjársýslusviðs sátu fund bæjarráðs undir þessum lið.
Bæjarráð samþykkir aukafjárveitingu að upphæð 22 milljónir króna og felur sviðsstjóra fjársýslusviðs að útbúa viðauka vegna hennar og leggja fyrir bæjarráð.

4.Fjárhagsáætlun Akureyrarbæjar 2018-2021 - forsendur

Málsnúmer 2017040095Vakta málsnúmer

Lagðar fram forsendur vegna fjárhagsáætlunar 2018.

Dan Jens Brynjarsson sviðsstjóri fjársýslusviðs sat fund bæjarráðs undir þessum lið.
Bæjarráð samþykkir framlagðar forsendur.

5.Bæjarsjóður Akureyrar - yfirlit um rekstur 2017

Málsnúmer 2017040070Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar yfirlit um rekstur aðalsjóðs janúar til apríl 2017.

Dan Jens Brynjarsson sviðsstjóri fjársýslusviðs sat fund bæjarráðs undir þessum lið.

6.Sumarnámskeið 2017

Málsnúmer 2017030250Vakta málsnúmer

1. liður í fundargerð frístundaráðs dagsett 19. maí 2017:

Óskað er eftir fjármagni til að koma á fót sumarnámskeiði fyrir fötluð börn í 1.- 4. bekk. Markmið verkefnisins er að veita hópi fatlaðra barna 7-9 ára tómstundaþjónustu sumarið 2017 fyrir utan almenn tómstundatilboð. Leitast verður við að bjóða upp á afþreyingu sem er sniðin að þeirra þörfum. Verkefnið er samstarfsverkefni samfélagssviðs, fjölskyldusviðs og búsetusviðs.

Frístundaráð samþykkir að óska eftir því við bæjarráð að veitt verði viðbótarfjármagn að upphæð kr. 1,9 milljónir í þetta verkefni.

Frístundaráð samþykkir að beina því til bæjarráðs að mótuð verði framtíðarstefna er varðar fyrirkomulag tómstundaframboðs vegna fatlaðra barna og jafnframt verði tryggt fjármagn á þeim stað þar sem ábyrgð á framkvæmdinni liggur.

Dan Jens Brynjarsson sviðsstjóri fjársýslusviðs sat fund bæjarráðs undir þessum lið.
Bæjarráð samþykkir að komið verði á fót sumarnámskeiði fyrir fötluð börn í 1.- 4. bekk sumarið 2017 og að kostnaði vegna þess verði mætt innan málaflokks 102.

7.Orlof húsmæðra í Eyjafirði - rekstur 2015 og 2016

Málsnúmer 2017050162Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar yfirlit um ferðir á vegum Orlofssjóðs húsmæðra í Eyjafirði árin 2015 og 2016.

Dan Jens Brynjarsson sviðsstjóri fjársýslusviðs sat fund bæjarráðs undir þessum lið.

8.Stjórn Sambands íslenskra sveitarfélaga - fundargerðir 2017

Málsnúmer 2017010137Vakta málsnúmer

Lögð fram til kynningar fundargerð 850. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga dagsett 19. maí 2017. Fundargerðina má finna á vefslóðinni: http://www.samband.is/um-okkur/fundargerdir-stjornar/searchmeetings.aspx

9.Eyþing - fundargerðir

Málsnúmer 2010110064Vakta málsnúmer

Lögð fram til kynningar fundargerð 295. fundar stjórnar Eyþings dagsett 15. maí 2017. Fundargerðina má finna á netslóðinni: http://www.eything.is/is/fundargerdir
Fylgiskjöl:

10.Málræktarsjóður - aðalfundur 2017

Málsnúmer 2017050124Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 12. maí 2017 frá framkvæmdastjóra Málræktarsjóðs þar sem boðað er til aðalfundar sjóðsins þriðjudaginn 13. júní nk. kl. 15:30, fundurinn verður haldinn á Hótel Sögu í fundarsalnum Heklu.
Bæjarráð felur Hólmkeli Hreinssyni að fara með umboð Akureyrarbæjar á aðalfundinum. Einnig tilnefnir bæjarráð Hólmkel í fulltrúaráð Málræktarsjóðs.

11.Stapi lífeyrissjóður - aukaársfundur 2017

Málsnúmer 2017030610Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar erindi dagsett 24. maí 2017 frá Inga Björnssyni fyrir hönd stjórnar Stapa lífeyrissjóðs þar sem boðað er til aukaársfundar Stapa lífeyrissjóðs sem haldinn verður fimmtudaginn 22. júní nk. í Menningarhúsinu Hofi, Akureyri kl. 13:00.

Kjörnir fulltrúar frá ársfundi 3. maí sl. eiga rétt til setu á fundinum og að greiða atkvæði.

12.Frumvarp til laga um landgræðslu, 406. mál

Málsnúmer 2017050107Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar erindi dagsett 16. maí 2017 frá umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis þar sem óskað er umsagnar um frumvarp til laga um landgræðslu, 406. mál 2017.

Þess er óskað að undirrituð umsögn berist eigi síðar en 2. júní nk. á netfangið nefndasvid@althingi.is.

Þingskjalið er hægt að sækja á vef Alþingis: http://www.althingi.is/altext/146/s/0537.html

13.Frumvarp til laga um skóga og skógrækt, 407. mál

Málsnúmer 2017050108Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar erindi dagsett 16. maí 2017 frá umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis þar sem óskað er umsagnar um frumvarp til laga um skóga og skógrækt, 407. mál 2017.

Þess er óskað að undirrituð umsögn berist eigi síðar en 2. júní nk. á netfangið nefndasvid@althingi.is.

Þingskjalið er hægt að sækja á vef Alþingis: http://www.althingi.is/altext/146/s/0538.html

14.Frumvarp til laga um skipulag haf- og strandsvæða, 408. mál

Málsnúmer 2017050109Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar erindi dagsett 16. maí 2017 frá umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis þar sem óskað er umsagnar um frumvarp til laga um skipulag haf- og strandsvæða, 408. mál 2017.

Þess er óskað að undirrituð umsögn berist eigi síðar en 2. júní nk. á netfangið nefndasvid@althingi.is.

Þingskjalið er hægt að sækja á vef Alþingis: http://www.althingi.is/altext/146/s/0539.html

15.Frumvarp til laga um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins (brottfall kröfu um ríkisborgararétt), 289. mál

Málsnúmer 2017050167Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar erindi dagsett 26. maí 2017 frá allsherjar- og menntamálanefnd Alþingis þar sem óskað er umsagnar um frumvarp til laga um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins (brottfall kröfu um ríkisborgararétt), 289. mál 2017.

Þess er óskað að undirrituð umsögn berist eigi síðar en 9. júní nk. á netfangið nefndasvid@althingi.is.

Þingskjalið er hægt að sækja á vef Alþingis: http://www.althingi.is/altext/146/s/0401.html

Fundi slitið - kl. 12:00.