Bæjarráð

3549. fundur 23. mars 2017 kl. 08:30 - 11:50 Bæjarstjórnarsalur á 4. hæð í Ráðhúsi
Nefndarmenn
  • Sigríður Huld Jónsdóttir varaformaður
  • Matthías Rögnvaldsson
  • Ingibjörg Ólöf Isaksen
  • Gunnar Gíslason
  • Preben Jón Pétursson
  • Sóley Björk Stefánsdóttir áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Eiríkur Björn Björgvinsson bæjarstjóri
  • Katrín Björg Ríkarðsdóttir aðstoðarmaður bæjarstjóra ritaði fundargerð
Fundargerð ritaði: Dagný Magnea Harðardóttir skrifstofustjóri Ráðhúss
Dagskrá
Ingibjörg Ólöf Isaksen B-lista mætti í forföllum Guðmundar Baldvins Guðmundssonar.

1.Brothættar byggðir - staða mála

Málsnúmer 2015070054Vakta málsnúmer

Helga Íris Ingólfsdóttir verkefnastjóri Brothættra byggða í Grímsey og Hrísey fór yfir stöðu mála.
Bæjarráð þakkar Helgu Írisi fyrir kynninguna og felur bæjarstjóra að vinna málið áfram í samræmi við umræður á fundinum.

2.Nefndarlaun - breytingar á reglum

Málsnúmer 2015110142Vakta málsnúmer

Tekið fyrir að nýju, áður á dagskrá bæjarráðs 16. mars sl. Lögð fram tillaga um breytingu á reglum um laun bæjarfulltrúa og nefndarmanna hjá Akureyrarbæ.

Halla Margrét Tryggvadóttir sviðsstjóri stjórnsýslusviðs sat fund bæjarráðs undir þessum lið.
Bæjarráð samþykkir breytingar á reglum um laun bæjarfulltrúa og nefndarmanna hjá Akureyrarbæ. Jafnframt samþykkir bæjarráð að skipaður verði þriggja manna starfshópur sem ætlað er að gera úttekt á starfsumhverfi bæjarfulltrúa og skila til bæjarráðs fyrir 1. júní nk. Formanni bæjarráðs er falið að gera tillögu að einstaklingum í starfshópinn og leggja hana fyrir á næsta bæjarráðsfundi.

3.Starfslýsingar stjórnenda á sviðum Akureyrarbæjar

Málsnúmer 2017030177Vakta málsnúmer

Gunnar Gíslason D-lista óskaði eftir umræðu um samþykktir starfslýsinga og þá sérstaklega starfslýsinga stjórnenda.

Halla Margrét Tryggvadóttir sviðsstjóri stjórnsýslusviðs sat fund bæjarráðs undir þessum lið.

4.Hverfisnefndir - sameiginlegir fundir

Málsnúmer 2017030134Vakta málsnúmer

Lagðir fram til kynningar minnispunktar frá sameiginlegum fundi bæjarfulltrúa og hverfisnefnda dagsettir 8. mars 2017.
Bæjarráð vísar minnispunktunum til verkefnahóps um persónukjör og felur honum að gera tillögur í samræmi umræður á umræddum fundi.

5.Ungmennaráð

Málsnúmer 2014100110Vakta málsnúmer

Lagðir fram til kynningar minnispunktar frá sameiginlegum fundi bæjarráðs og ungmennaráðs dagsettir 23. febrúar 2017.
Bæjarráð vísar minnispunktunum til umfjöllunar hjá frístundaráði.

6.Norðurorka hf - aðalfundur 2017

Málsnúmer 2017030147Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 14. mars 2017 frá stjórn Norðurorku hf þar sem boðað er til aðalfundar Norðurorku hf 31. mars nk. kl. 14:00 í Hofi, Akureyri.
Bæjarráð felur Guðmundi Baldvin Guðmundssyni formanni bæjarráðs að fara með umboð Akureyrarbæjar á fundinum í fjarveru bæjarstjóra.

7.Viðtalstímar bæjarfulltrúa fundargerð

Málsnúmer 2016100117Vakta málsnúmer

Lögð fram fundargerð viðtalstíma bæjarfulltrúa dagsett 16. mars 2017.
Bæjarráð vísar 1. lið til fjölskyldusviðs, 2. lið til sviðsstjóra umhverfis- og mannvirkjasviðs, 3. lið til sviðsstjóra skipulagssviðs, sviðsstjóra fræðslusviðs og sviðsstjóra umhverfis- og mannvirkjasviðs, 4. lið til umhverfis- og mannvirkjasviðs og 5. lið til búsetusviðs.

8.Hverfisnefnd Síðuhverfis - fundargerðir 2016 - 2017

Málsnúmer 2016010041Vakta málsnúmer

Lögð fram til kynningar 44. fundargerð hverfisnefndar Síðuhverfis dagsett 13. mars 2017. Fundargerðina má finna á netslóðinni:

https://www.akureyri.is/is/stjornkerfid/hverfisnefndir/siduhverfi/fundargerdir

9.Eyþing - fundargerðir

Málsnúmer 2010110064Vakta málsnúmer

Lögð fram til kynningar fundargerð 293. fundar stjórnar Eyþings dagsett 15. mars 2017. Fundargerðina má finna á netslóðinni: http://www.eything.is/is/fundargerdir
Fylgiskjöl:

10.Frumvarp til laga um útlendinga (frestun réttaráhrifa o.fl.), 236. mál

Málsnúmer 2017030162Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar erindi dagsett 16. mars 2017 frá allsherjar- og menntamálanefnd Alþingis þar sem óskað er umsagnar um frumvarp til laga um útlendinga (frestun réttaráhrifa o.fl.), 236. mál 2017.

Þess er óskað að undirrituð umsögn berist eigi síðar en 26. mars nk. á netfangið nefndasvid@althingi.is.

Þingskjalið er hægt að sækja á vef Alþingis: http://www.althingi.is/altext/146/s/0328.html

11.Frumvarp til laga um breytingu á ýmsum lögum á sviði samgangna (innleiðing alþjóðlegra skuldbindinga, EES-reglur), 234. mál

Málsnúmer 2017030161Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar erindi dagsett 15. mars 2017 frá umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis þar sem óskað er umsagnar um frumvarp til laga um breytingu á ýmsum lögum á sviði samgangna (innleiðing alþjóðlegra skuldbindinga, EES-reglur), 234. mál 2017.

Þess er óskað að undirrituð umsögn berist eigi síðar en 29. mars nk. á netfangið nefndasvid@althingi.is.

Þingskjalið er hægt að sækja á vef Alþingis: http://www.althingi.is/altext/146/s/0326.html

12.Frumvarp til laga um tekjustofna sveitarfélaga (afnám lágmarksútvars), 120. mál

Málsnúmer 2017030146Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar erindi dagsett 14. mars 2017 frá efnahags- og viðskiptanefnd Alþingis þar sem óskað er umsagnar um frumvarp til laga um tekjustofna sveitarfélaga (afnám lágmarksútvars), 120. mál 2017.

Þess er óskað að undirrituð umsögn berist eigi síðar en 30. mars nk. á netfangið nefndasvid@althingi.is.

Þingskjalið er hægt að sækja á vef Alþingis: http://www.althingi.is/altext/146/s/0179.html

13.Frumvarp til laga um Umhverfisstofnun (heildarlög), 204. mál

Málsnúmer 2017030181Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar erindi dagsett 17. mars 2017 frá umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis þar sem óskað er umsagnar um frumvarp til laga um Umhverfisstofnun (heildarlög), 204. mál 2017.

Þess er óskað að undirrituð umsögn berist eigi síðar en 31. mars nk. á netfangið nefndasvid@althingi.is.

Þingskjalið er hægt að sækja á vef Alþingis: http://www.althingi.is/altext/146/s/0288.html

Fundi slitið - kl. 11:50.