Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa

834. fundur 07. október 2021 kl. 13:00 - 14:00 Fundarherbergi skipulagssviðs
Nefndarmenn
  • Steinmar Heiðar Rögnvaldsson byggingarfulltrúi
Starfsmenn
  • Arnar Ólafsson verkefnastjóri byggingarmála
  • Hjálmar Árnason fundarritari
Fundargerð ritaði: Hjálmar Árnason
Dagskrá

1.Bakkahlíð 2 - umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi

Málsnúmer 2021071151Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 22. júlí 2021 þar sem Valbjörn Ægir Vilhjálmsson fyrir hönd Eggerts Sæmundssonar sækir um byggingarleyfi fyrir viðbyggingu við vesturhlið efri hæðar hússins nr. 2 við Bakkahlíð. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Valbjörn Ægi Vilhjálmsson. Erindið fór í grenndarkynningu sem lauk án athugasemda 6. október 2021.
Byggingarfulltrúi samþykkir erindið.

2.Ystibær-Miðbær 3 - umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi

Málsnúmer 2021091271Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 27. september 2021 þar sem Valþór Brynjarsson fyrir hönd Þórhöllu Brynjarsdóttur sækir um byggingarleyfi fyrir einbýlishúsi á lóð Ystabæjar-Miðbæjar 3 í Hrísey. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Valþór Brynjarsson.
Byggingarfulltrúi óskar umsagnar skipulagsráðs um erindið.

3.Þingvallastræti 23 - umsókn um rannsóknarleyfi vegna jarðtæknirannsóknar

Málsnúmer 2021100308Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 6. október 2021 þar sem Anna Sofia Kristjánsdóttir fyrir hönd Ríkiseigna sækir um að fá að gera jarðvegsrannsóknir og taka prufuholur á lóð nr. 23 við Þingvallastræti. Meðfylgjandi eru gögn eftir Önnu Sofiu Kristjánsdóttur.
Byggingarfulltrúi samþykkir erindið.

4.Strandgata 3 - umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi fyrir veitingastað

Málsnúmer 2021100153Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 4. október 2021 þar sem Jón Þór Þorvaldsson fyrir hönd Rafmax ehf. sækir um byggingarleyfi fyrir breytingum innanhúss í húsi nr. 3 við Strandgötu. Fyrirhugað er að opna veitingastað. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Jón Þór Þorvaldsson.
Byggingarfulltrúi óskar umsagnar skipulagsráðs um erindið.

5.Strandgata 3 - umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi

Málsnúmer 2021100322Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 6. október 2021 þar sem Jón Þór Þorvaldsson fyrir hönd VeturSeturs ehf. sækir um byggingarleyfi fyrir breytingum innanhúss í húsi nr. 3 við Strandgötu. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Jón Þór Þorvaldsson.
Byggingarfulltrúi óskar umsagnar skipulagsráðs um erindið.

6.Hafnarstræti 96 - umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi, 2. og 3. hæð

Málsnúmer 2021100189Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 5. október 2021 þar sem Valbjörn Ægir Vilhjálmsson fyrir hönd Gersemi Þrastar ehf. sækir um byggingarleyfi fyrir breytingum í húsi nr. 96 við Hafnarstræti. Fyrirhugaðar eru minniháttar breytingar á 2. hæð og breyta 3. hæð úr íbúð í skrifstofurými. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Valbjörn Ægi Vilhjálmsson.
Byggingarfulltrúi óskar umsagnar skipulagsráðs um erindið.

7.Umsókn um helgarleyfi vegna söluvagns.

Málsnúmer 2021100237Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 5. október 2021 þar sem Finnur Bessi Finnsson fyrir hönd Bessa bita sækir um helgarleyfi vegna söluvagns á lóð nr. 12 við Hólabraut. Um er að ræða tímabilið frá 8.- 10. október 2021.
Byggingarfulltrúi samþykkir erindið.

Fundi slitið - kl. 14:00.