Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa

657. fundur 06. desember 2017 kl. 13:00 - 14:05 Fundarherbergi skipulagsdeild
Nefndarmenn
  • Bjarki Jóhannesson sviðsstjóri skipulagssviðs
  • Björn Jóhannsson
  • Leifur Þorsteinsson fundarritari
Fundargerð ritaði: Leifur Þorsteinsson
Dagskrá

1.Tjarnartún 31 - umsókn um breytingu

Málsnúmer 2011110026Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 30. nóvember 2017 þar sem Gunnar Þórarinsson sækir um byggingarleyfi fyrir breytingum á þakklæðningu húss nr. 31 við Tjarnartún. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Svein Valdimarsson.
Byggingarfulltrúi samþykkir erindið.

2.Byggðavegur 134 - umsókn um byggingarleyfi fyrir geymsluskúr

Málsnúmer 2017120023Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 4. desember 2017 þar sem Hinrik Sigurjónsson sækir um byggingarleyfi fyrir geymsluskúr á lóð sinni nr. 134 við Byggðaveg. Staðsetning skúrsins er um 1-1,5 metrum frá útvegg íbúðarhúss norðanmegin. Meðfylgjandi er samþykki nágranna og skýringarmynd.
Byggingarfulltrúi samþykkir erindið enda verði veggir er snúa að íbúðarhúsi búnir eldvörn skv. reglugerð og veggur að lóðamörkum verði gluggalaus.

3.Sjafnarnes 2 - umsókn um bráðabirgðaleyfi fyrir dreifistöð rafveitu nr. 116

Málsnúmer 2017120034Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 4. desember 2017 þar sem Gunnar H. Gunnarsson fyrir hönd Norðurorku hf. sækir um bráðabirgðaleyfi fyrir dreifistöð rafveitu, nr. 116, á lóð nr. 2 við Sjafnarnes. Meðfylgjandi er samþykki lóðarhafa og skýringarmynd.
Byggingarfulltrúi samþykkir tímabundna staðsetningu bráðabirgðaspennistöðvar þar til endanleg spennnistöð hefur verið byggð fyrir svæðið.

4.Langholt 1 - umsókn um byggingarleyfi fyrir stækkun

Málsnúmer 2017110110Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 29. nóvember 2017 þar sem Aðalsteinn Snorrason fyrir hönd Reita I ehf. sækir um byggingarleyfi fyrir stækkun húss nr. 1 við Langholt ásamt breytingum innanhúss. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Aðalstein Snorrason. Innkomnar nýjar teikningar 29. nóvember 2017.
Byggingarfulltrúi frestar afgreiðslu með vísan til athugasemda á fylgiblaði.

5.Hofsbót 4 - umsókn um leyfi fyrir breytingum á 4. hæð

Málsnúmer 2017030099Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 18. október 2017 þar sem Bjarni Sigurðsson fyrir hönd VN fasteigna ehf. sækir um leyfi fyrir breytingum á 4. hæð í húsi nr. 4 við Hofsbót. Breyta á húsnæðinu úr atvinnuhúsnæði í íbúð. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Árna Gunnar Kristjánsson. Innkomnar eru nýjar teikningar 6.og 30. nóvember 2017.
Byggingarfulltrúi samþykkir erindið. Breyttur eignaskiptasamningur fyrir húsið skal frágenginn áður en lokaúttekt verður gerð.

Fundi slitið - kl. 14:05.