Velferðarráð

1367. fundur 26. apríl 2023 kl. 14:00 - 17:00 Fundarsalur 1. hæð Glerárgötu 26
Nefndarmenn
  • Hulda Elma Eysteinsdóttir formaður
  • Lára Halldóra Eiríksdóttir
  • Karl Liljendal Hólmgeirsson
  • Alfa Dröfn Jóhannsdóttir
  • Snæbjörn Ómar Guðjónsson
  • Elsa María Guðmundsdóttir áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Karólína Gunnarsdóttir þjónustustjóri velferðarsviðs
  • Kristín Birna Kristjánsdóttir fundarritari
Fundargerð ritaði: Kristín Birna Kristjánsdóttir fundarritari
Dagskrá
Tinna Guðmundsóttir F-lista boðaði forföll.

1.Velferðarsvið - kynning á starfsemi fyrir velferðarráð 2023

Málsnúmer 2023010262Vakta málsnúmer

Heimsókn í þjónustukjarnann í Þrastarlundi þar sem Kristinn Már Torfason forstöðumaður tók á móti velferðarráði og sýndi húsnæðið.

2.Velferðarráð - kynning á ferli fjárhagsáætlunargerðar 2024

Málsnúmer 2023040707Vakta málsnúmer

Kristín Baldvinsdóttir forstöðumaður hag- og áætlanagerðar sat fundinn undir þessum lið og kynnti ferli fjárhagsaáætlunargerðar hjá Akureyrarbæ fyrir árið 2024.

3.Stuðningsþjónusta 2023

Málsnúmer 2023040737Vakta málsnúmer

Lagt fram minnisblað dagsett 26. apríl 2023 um þá stöðu sem stuðningsþjónustan er í varðandi þjónustuna á komandi sumri.

Arnþrúður Eik Helgaóttir iðjuþjálfi sat fundinn undir þessum lið.
Velferðarráð hefur þungar áhyggjur af þeirri stöðu sem er komin upp varðandi mönnunarvanda stuðningsþjónustu Akureyrarbæjar og sér fram á skerðingu á þjónustu í sumar vegna þess að Kristnes lokar og tvær deildir Heilsuverndar standa nú tómar þar sem nauðsynlegar endurbætur eru ekki hafnar. Velferðarráð skorar því á Heilbrigðisráðuneytið að bregðast við hið fyrsta.

4.Reglur velferðarsviðs um stuðningsþjónustu

Málsnúmer 2022090993Vakta málsnúmer

Lagðar fram til samþykktar reglur um stuðningsþjónustu. Stutt er síðan reglurnar voru samþykktar og nú er um að ræða minniháttar breytingar.

Arnþrúður Eik Helgadóttir iðjuþjálfi sat fundinn undir þessum lið.

5.Samræmd móttaka flóttafólks

Málsnúmer 2023021331Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar minnisblað dagsett 26. apríl 2023 um stöðu samræmdrar móttöku flóttafólks og umsækjenda um alþjóðlega vernd.

Anna Marit Níelsdóttir forstöðumaður sat fundinn undir þessum lið.

6.Velferðarráð - rekstraryfirlit 2023

Málsnúmer 2023011181Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar rekstraryfirlit velferðarsviðs eftir fyrstu þrjá mánuði ársins.

Kolbeinn Aðalsteinsson forstöðumaður skrifstofu sat fundinn undir þessum lið.
Alfa Dröfn Jóhannsdóttir B-lista vék af fundi 16:36.

7.Niðurstaða rekstrar í málaflokki fatlaðs fólks

Málsnúmer 2019110137Vakta málsnúmer

Lagðar fram niðurstöður rekstrar í málaflokki fatlaðra 2018-2022.

Kolbeinn Aðalsteinsson forstöðumaður skrifstofu sat fundinn undir þessum lið.

8.Tillaga til þingsályktunar um aðgerðaáætlun um þjónustu við eldra fólk fyrir árin 2024-2028

Málsnúmer 2023031911Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar minnisblað dagsett 26. apríl 2023. Þar er samantekt um þau verkefni í aðgerðaáætlun um þjónustu við eldra fólk sem snúa að sveitarfélögum sérstaklega.

Fundi slitið - kl. 17:00.