Velferðarráð

1363. fundur 25. janúar 2023 kl. 14:00 - 16:29 Fundarsalur á 2. hæð í Glerárgötu 26
Nefndarmenn
  • Hulda Elma Eysteinsdóttir formaður
  • Lára Halldóra Eiríksdóttir
  • Karl Liljendal Hólmgeirsson
  • Alfa Dröfn Jóhannsdóttir
  • Snæbjörn Ómar Guðjónsson
  • Elsa María Guðmundsdóttir áheyrnarfulltrúi
  • Málfríður Stefanía Þórðardóttir áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Karólína Gunnarsdóttir þjónustustjóri velferðarsviðs
  • Kristín Birna Kristjánsdóttir fundarritari
Fundargerð ritaði: Kristín Birna Kristjánsdóttir fundarritari
Dagskrá

1.Velferðarsvið - kynning á starfsemi fyrir velferðarráð 2023

Málsnúmer 2023010262Vakta málsnúmer

Heimsókn í sambýlið að Snægili 1 þar sem Guðrún Guðmundsdóttir forstöðumaður tók á móti velferðarráði og sýndi húsnæðið.

2.Biðlisti eftir þjónustukjarna fyrir fatlað fólk

Málsnúmer 2023011183Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar minnsblað dagsett 23. janúar 2023 um stöðu á biðlista eftir sértæku húsnæði fyrir fatlað fólk.

Guðrún Guðmundsdóttir starfandi þjónustustjóri sat fundinn undir þessum lið.

Elsa María Guðmundsdóttir S-lista leggur fram eftirfarandi bókun:

Staðan í þessum málaflokki er afar viðkvæm og mjög slæmt að ekki sé meiri fyrirsjáanleiki hvað varðar uppbyggingu á íbúðum Brynju hússjóðs, sem Akureyrarbær virðist reiða sig töluvert á til að koma til móts við þá sem eru í hvað brýnustu þörf.

3.Félagslegt leiguhúsnæði Akureyrarbæjar - upplýsingar vegna 2022

Málsnúmer 2023011164Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar minnisblað dagsett 25. janúar 2023 um stöðu leiguíbúða Akureyrarbæjar s.s. útleigu á árinu og biðlista eftir húsnæði.

Anna Marit Níelsdóttir forstöðumaður og Guðni Örn Hauksson húsnæðisfulltrúi sátu fundinn undir þessum lið.

Elsa María Guðmundsdóttir S-lista leggur fram eftirfarandi bókun:

Nú er ljóst að staða á biðlistum fer versnandi og þá er afar brýnt að horft verði til rammasamnings ríkis og sveitarfélaga m.a. varðandi uppbyggingu á félagslegu húsnæði. Því er mikilvægt að hraða vinnu að nýjum áætlunum í uppbyggingu félagslegs húsnæðis á Akureyri.

Alfa Dröfn Jóhannsdóttir B-lista tekur undir bókun Elsu Maríu.

4.Sérstakur húsnæðisstuðningur 2022

Málsnúmer 2022100806Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar minnisblað dagsett 25. janúar 2023 þar sem fram koma helstu upplýsingar er varða sérstakan húsnæðisstuðning árið 2022.

Anna Marit Níelsdóttir forstöðumaður og Guðni Örn Hauksson húsnæðisfulltrúi sátu fundinn undir þessum lið.

5.Starfsáætlun velferðarsviðs 2023

Málsnúmer 2023011135Vakta málsnúmer

Lögð fram drög að starfsáætlun velferðarsviðs fyrir árið 2023.

Fundi slitið - kl. 16:29.