Velferðarráð

1350. fundur 16. mars 2022 kl. 14:00 - 15:36 Fundarsalur á 2. hæð í Glerárgötu 26
Nefndarmenn
  • Heimir Haraldsson formaður
  • Guðrún Karitas Garðarsdóttir
  • Gunnfríður Elín Hreiðarsdóttir
  • Lára Halldóra Eiríksdóttir
  • Snæbjörn Ómar Guðjónsson
  • Sigrún Elva Briem áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Guðrún Guðmundsdóttir settur sviðsstjóri
  • Kristín Birna Kristjánsdóttir fundarritari
Fundargerð ritaði: Kristín Birna Kristjánsdóttir fundarritari
Dagskrá
Snæbjörn Ómar Guðjónsson V-lista sat fundinn í forföllum Hermanns Arasonar.

1.Erindi til sveitarfélaga vegna móttöku flóttafólks

Málsnúmer 2022030523Vakta málsnúmer

Erindi frá félags- og vinnumarkaðsráðuneytinu dagsett 9. mars 2022 þar sem leitað er eftir þátttöku sveitarfélaga í móttöku flóttafólks sem leitar hingað til lands vegna stríðsátaka.

Anna Marit Níelsdóttir forstöðumaður félagsþjónustu sat fundinn undir þessum lið.
Akureyrarbær hefur mikla reynslu af móttöku flóttamanna og hefur m.a. tekið þátt í verkefni á vegum félags- og vinnumarkaðsráðuneytis í að þróa samræmda móttöku flóttafólks á Íslandi. Fjöldi einstaklinga leitar nú skjóls vegna stríðsátaka og Akureyrarbær hefur lýst yfir stuðningi við úkraínsku þjóðina og er reiðubúinn að taka á móti fólki frá Úkraínu. Velferðarráð hvetur íbúa Akureyrar hafi þeir viðeigandi húsnæðisúrræði fyrir flóttafólk að senda umsókn á vefsíðuna https://www.mcc.is/is/ukraine sem finna má á vef Fjölmenningarseturs.

2.SES - samvinna eftir skilnað

Málsnúmer 2022030537Vakta málsnúmer

Kynning á SES, samvinna eftir skilnað er gagnreynd aðferð til að styðja við foreldra sem standa í skilnaði, til að lágmarka skaðleg áhrif á börn.

Anna Marit Níelsdóttir forstöðumaður félagsþjónustu og Halldóra Kristín Hauksdóttir lögmaður velferðarsviðs sátu fundinn undir þessum lið.

3.Þróun úrræðis í barnavernd, greiningar- og þjálfunarvistun á einkaheimili

Málsnúmer 2022030559Vakta málsnúmer

Vilborg Þórarinsdóttir forstöðumaður barnaverndar sat fundinn undir þessum lið og kynnti minnisblað varðandi þróun úrræðis í barnavernd.

4.Samningar um öryggisgæslu 2022

Málsnúmer 2022030534Vakta málsnúmer

Öryggisvistun, staðan á viðræðum við ríkið.

Guðrún Guðmundsdóttir settur sviðsstjóri velferðarsviðs fór yfir stöðu viðræðna.

Fundi slitið - kl. 15:36.