Velferðarráð

1338. fundur 05. maí 2021 kl. 14:00 - 15:23 Fundarsalur á 2. hæð í Glerárgötu 26
Nefndarmenn
  • Heimir Haraldsson formaður
  • Róbert Freyr Jónsson
  • Inger Rós Ólafsdóttir
  • Hermann Ingi Arason
  • Lára Halldóra Eiríksdóttir
  • Sigrún Elva Briem áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Karólína Gunnarsdóttir þjónustustjóri velferðarsviðs
  • Guðrún Ólafía Sigurðardóttir sviðsstjóri velferðarsviðs
  • Kristín Birna Kristjánsdóttir fundarritari
Fundargerð ritaði: María Sigurbjörg Stefánsdóttir
Dagskrá
Inger Rós Ólafsdóttir B-lista mætti í forföllum Gunnfríðar Elínar Hreiðarsdóttur.

1.Fjárhagserindi 2021 - áfrýjanir

Málsnúmer 2021010234Vakta málsnúmer

Anna Hildur Guðmundsdóttir áfengis- og vímuefnaráðgjafi og Gyða Björk Ólafsdóttir félagsráðgjafi sátu fundinn undir þessum lið og kynntu áfrýjun í fjárhagsaðstoð.
Fjárhagserindi og afgreiðsla þeirra eru færð í trúnaðarbók velferðarráðs.

2.Fjárhagsaðstoð 2021

Málsnúmer 2021031923Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar yfirlit yfir veitta fjárhagsaðstoð á árinu 2021.

Anna Marit Níelsdóttir forstöðumaður í félagsþjónustu sat fundinn undir þessum lið.

3.Stuðningur við aukið félagsstarf fullorðinna 2021 vegna COVID-19

Málsnúmer 2021032007Vakta málsnúmer

Félagsmálaráðuneytið auglýsti eftir umsóknum vegna sérstakra viðbótarverkefna í félagsstarfi fullorðinna fyrir árið 2021. Akureyrarbær sendi inn umsókn um tvö verkefni.

Félagsmálaráðuneytið hefur samþykkt innsenda umsókn. Við úthlutun fjármagns er horft til fjölda 67 ára og eldri í sveitarfélaginu.

Alls verða lagðar kr. 4.532.200 inn á reikning sveitarfélagsins á næstu dögum vegna þessa verkefnis.

4.Aflið - samstarfssamningar 2021

Málsnúmer 2021041646Vakta málsnúmer

Lögð fram drög að samstarfssamningi Akureyrarbæjar og Aflsins.
Velferðarráð samþykkir að gerður verði samstarfssamningur til tveggja ára.

5.Stöðuskýrslur uppbyggingarteymis

Málsnúmer 2021041647Vakta málsnúmer

Lagðar fram til kynningar stöðuskýrslur uppbyggingarteymis í félagsmálaráðuneyti.

6.Ofbeldi gegn öldruðum á Íslandi

Málsnúmer 2021041491Vakta málsnúmer

Lögð fram til kynningar skýrsla Ríkislögreglustjóra um ofbeldi gegn öldruðum.

7.Reglur Akureyrarbæjar um úthlutun sérstakra íþrótta- og tómstundastyrkja fyrir börn á tekjulágum heimilum skólaárið 2020-2021

Málsnúmer 2020100143Vakta málsnúmer

Lögð fram drög að breytingu á reglum Akureyrarbæjar um sérstakan styrk til íþrótta- og tómstundaiðkunar barna.

Halldóra K. Hauksdóttir lögfræðingur velferðarsviðs sat fundinn undir þessum lið.
Velferðarráð samþykkir breytingarnar fyrir sitt leyti og vísar málinu áfram til bæjarstjórnar.

8.Velferðarráð - umsókn í framkvæmdasjóð vegna kaupa á bíl

Málsnúmer 2021050120Vakta málsnúmer

Lagt fram erindi frá Kolbeini Aðalsteinssyni forstöðumanni og Guðrúnu Sigurðardóttur sviðsstjóra dagsett 4. maí 2021 þar sem lagt er til að óskað verði eftir heimild til kaupa á bifreið fyrir barnavernd og heimaþjónustu.
Velferðarráð samþykkir kaupin fyrir sitt leyti og vísar málinu til umhverfis- og mannvirkjaráðs.

Fundi slitið - kl. 15:23.