Umhverfisnefnd

103. fundur 15. apríl 2015 kl. 10:00 - 11:35 Kaffistofa framkvæmdadeild
Nefndarmenn
  • Dagbjört Elín Pálsdóttir formaður
  • Óskar Ingi Sigurðsson
  • Áshildur Hlín Valtýsdóttir
  • Kristinn Frímann Árnason
  • Ólafur Kjartansson áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Helgi Már Pálsson bæjartæknifræðingur
  • Jón Birgir Gunnlaugsson forstöðumaður umhverfismála ritaði fundargerð
Dagskrá
Kristján Ingimar Ragnarsson L-lista boðaði forföll.

1.Kynjuð fjárhagsáætlanagerð

Málsnúmer 2011030090Vakta málsnúmer

Greint frá námskeiði um kynjaða fjárhagsáætlanagerð, en meðal tilmæla þar var að taka málið á dagskrá fagnefnda og að horft yrði á myndband frá samtökum sveitarfélaga í Svíþjóð (https://www.youtube.com/watch?v=xYikioYiilU&feature=youtu.be), samhliða því að greina frá umræðum/verkefnum sem unnið var að á námskeiðinu.
Horft var á myndbandið og rætt um hugsanleg verkefni. Ákvörðun um verkefni verður tekin á næsta fundi.

2.Svæðisáætlun um meðhöndlun úrgangs

Málsnúmer 2015040029Vakta málsnúmer

Tekið fyrir erindi dagsett 26. mars 2015 frá verkefnisstjórn um svæðisáætlun um meðhöndlun úrgangs á Norðurlandi, þar sem óskað er eftir samþykki sveitarstjórnar um að verkefnisstjórninni verði falið að auglýsa svæðisáætlunardrögin fyrir hönd sveitarstjórnar í samræmi við ákvæði 6. gr. laga nr. 55/2003 um meðhöndlun úrgangs með síðari breytingum og í samræmi við lög nr. 105/2006 um umhverfismat áætlana. Jafnframt verði verkefnisstjórn falið að taka við athugasemdum sem berast á umsagnartíma.
Umhverfisnefnd samþykkir fyrir sitt leyti að fela verkefnisstjórninni að auglýsa áætlunina fyrir hönd sveitarfélagsins og að taka við athugasemdum sem berast á umsagnartíma.
Málinu vísað til bæjarstjórnar.

3.Úrgangsmál - starfshópur

Málsnúmer 2014110224Vakta málsnúmer

Áframhaldandi umræður um stöðu væntanlegra breytinga á fyrirkomulagi gámasvæðisins.

4.Ársfundur Umhverfisstofnunar 2015

Málsnúmer 2015030213Vakta málsnúmer

Dagskrá ársfundar Umhverfisstofnunar kynnt.

5.Loftslagsráðstefnan í Randers 2015

Málsnúmer 2015040039Vakta málsnúmer

Umræður um ráðstefnuna sem haldin verður í Randers.

6.Kortlagning hávaða - aðgerðaráætlun

Málsnúmer 2010010129Vakta málsnúmer

Lögð fram aðgerðaráætlun gegn hávaða á Akureyri 2015-2020.
Umhverfisnefnd samþykkir fyrir sitt leyti aðgerðaráætlunina og vísar henni til afgreiðslu bæjarstjórnar.

Fundi slitið - kl. 11:35.