Umhverfisnefnd

81. fundur 16. apríl 2013 kl. 16:15 - 17:58 Fundarsalur á 2. hæð í Ráðhúsi
Nefndarmenn
  • Hulda Stefánsdóttir formaður
  • Páll Steindór Steindórsson
  • Jón Ingi Cæsarsson
  • Kristinn Frímann Árnason
  • Petrea Ósk Sigurðardóttir
  • Kristín Sigfúsdóttir áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Jón Birgir Gunnlaugsson fundarritari
Dagskrá

1.Kynjuð fjárhagsáætlanagerð

Málsnúmer 2011030090Vakta málsnúmer

Kynning á gerð kynjaðar áætlunar. Katrín Björg Ríkarðsdóttir framkvæmdastjóri samfélags- og mannréttindadeildar sat fundinn undir þessu lið.

Umhverfisnefnd þakkar Katrínu Björgu greinargóða kynningu.

2.Fráveita - upplýsingar um stöðu

Málsnúmer 2013040085Vakta málsnúmer

Jón Birgir Gunnlaugsson forstöðumaður umhverfismála fór yfir stöðu í fráveitumálum bæjarfélagsins.

Umhverfisnefnd þakkar forstöðumanni kynninguna og leggur áherslu á að bætt verði úr ástandi á þeim stöðum sem verstir eru.

3.Ársfundur Umhverfisstofnunar 2013

Málsnúmer 2013040004Vakta málsnúmer

Kynning á ársfundi Umhverfisstofnunar 19. apríl nk. Áætlað er að fundurinn hefjist kl. 10:00 og ljúki kl. 12:00.

Samþykkt að formaður umhverfisnefndar sæki fundinn.

4.Umhverfisátak

Málsnúmer 2012080082Vakta málsnúmer

Jón Birgir Gunnlaugsson forstöðumaður umhverfismála fór yfir umhverfisverkefni sem áætlað er að vinna á árinu 2013.

Umhverfisnefnd þakkar kynninguna.

5.Akstursíþrótta- og skotsvæði á Glerárdal - beiðni um umsögn

Málsnúmer 2013010054Vakta málsnúmer

Erindi frá skipulagsdeild dags. 4 mars 2013 um beiðni KKA og BA um lóðarstækkun.

Fulltrúar L-lista þau Hulda Stefánsdóttir og Páll Steindór Steindórsson óska bókað:

Við tökum ekki jákvætt í umsókn KKA um svæði undir enduroakstur í Hlíðarfjalli samkvæmt bréfi dags 22. febrúar 2013, en getum fallist á hóflegri stækkun sem unnin væri í samráði við nefndina.

Fulltrúar D-, B- og S-lista óska bókað:

Svæði þetta liggur að svæði sem verið er að skipuleggja sem hluta fólksvangs á Glerárdal þar sem friðsæld dalsins og útivist bæjarbúa verður í öndvegi. Svæðið eru gróðursælir ósnertir móar og gott berjaland. Viðmið stækkunar verði núverandi fjallskilagirðing (gul lína á uppdrætti).

Fundi slitið - kl. 17:58.