Umhverfis- og mannvirkjaráð

163. fundur 04. júní 2024 kl. 08:15 - 11:16 Fundarherbergi UMSA
Nefndarmenn
  • Brynja Hlíf Þorsteinsdóttir formaður
  • Inga Dís Sigurðardóttir
  • Þórhallur Harðarson
  • Ingimar Eydal
  • Hilda Jana Gísladóttir
  • Jón Hjaltason áheyrnarfulltrúi
  • Ólafur Kjartansson áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Guðríður Friðriksdóttir sviðsstjóri umhverfis- og mannvirkjasviðs
  • Ketill Sigurður Jóelsson verkefnastjóri ritaði fundargerð
Fundargerð ritaði: Ketill Sigurður Jóelsson verkefnastjóri
Dagskrá
Ingimar Eydal B-lista mætti í forföllum Óskars Inga Sigurðssonar.

1.Snjómokstur - dómsmál

Málsnúmer 2021101632Vakta málsnúmer

Kynning á niðurstöðu dómsmáls varðandi snjómokstur á Akureyri.

Inga Þöll Þórgnýsdóttir bæjarlögmaður sat fundinn undir þessum lið.
Fylgiskjöl:

2.Umferðaröryggismál - Austursíða

Málsnúmer 2024021574Vakta málsnúmer

Lagðar fram teikningar af fyrirhuguðum framkvæmdum í Austursíðu.

Jónas Valdimarsson verkefnastjóri hönnunar sat fundinn undir þessum lið.
Umhverfis- og mannvirkjaráð leggur til að hámarkshraði í Austursíðu verði endurskoðaður þar sem íbúar í hverfinu hafa áhyggjur af umferðaröryggi á svæðinu.


Hilda Jana Gísladóttir S-lista óskar bókað:

Þann 15. mars árið 2022 hóf ég umræðu um umferðaröryggimál á Akureyri og samþykkti bæjarstjórn þá tillögu mína um að hefja undirbúning að gerð umferðaröryggisáætlunar. Því miður er sú vinna enn ekki hafin og því ekki til nein umferðaröryggisáætlun fyrir sveitarfélagið. Á íbúafundi í Síðuhverfi í liðnum mánuði lögðu íbúar mikla áherslu á bætt umferðaröryggi í Austursíðu og eru þessar tvær gangbrautir, sem hér eru til umræðu sannarlega til bóta. Hins vegar er ljóst að ef mæta á ákalli íbúa þá þarf einnig að horfa til fleiri úrræða t.d. gönguþveranir við Bugðusíðu og Fögrusíðu, lækka umferðarhraða og bæta við hraðahindrunum. Ef ljóst er að framtíðarlausnir í umferðaröryggismálum muni taka einhvern tíma í framkvæmd þá er mikilvægt að horfa til bráðabirgðalausna, ekki síst á svæðum þar sem mikil uppbygging á sér stað á skömmum tíma líkt og raunin hefur verið við Austursíðu.

3.Úrgangsmál - fyrirkomulag og útboð

Málsnúmer 2022110167Vakta málsnúmer

Lagt fram minnisblað dagsett 31. maí 2024 varðandi stöðuna á innleiðingu nýs sorphirðukerfis.

Jón Birgir Gunnlaugsson verkefnastjóri umhverfismála og Ísak Már Jóhannesson verkefnastjóri úrgangs- og loftlagsmála sátu fundinn undir þessum lið.

4.European City Facility - styrkur til þróunar á fjárfestingum í orkuskiptum

Málsnúmer 2024051764Vakta málsnúmer

Kynntur styrkur sem Akureyrarbær fékk frá European City Facility til þróunar á fjárfestingum í orkuskiptum.

Jón Birgir Gunnlaugsson verkefnastjóri umhverfismála og Ísak Már Jóhannesson verkefnastjóri úrgangs- og loftlagsmála sátu fundinn undir þessum lið.
Umhverfis- og mannvirkjaráð fagnar því að Akureyrarbær hafi fengið umræddan styrk til þróunar á fjárfestingum í orkuskiptum, í samvinnu við Vistorku, Eim og Líforkuver ehf.

5.Ferðamálasjóður - úthlutun styrkja

Málsnúmer 2024051830Vakta málsnúmer

Lagt fram minnisblað dagsett 31. maí 2024 varðandi þrjár styrkumsóknir sem Akureyrarbær sendi inn til Ferðamálasjóðs varðandi verkefni í Hrísey, í Hlíðarfjalli og á Glerárdal. Umsóknum um styrk til verkefna á Glerárdal og í Hlíðarfjalli var hafnað en umsókn um styrk til stígagerðar í Hrísey var samþykkt.

Jón Birgir Gunnlaugsson verkefnastjóri umhverfismála sat fundinn undir þessum lið.

6.Stígar 2024

Málsnúmer 2023120853Vakta málsnúmer

Kynning á stígagerð og viðhaldi sumarið 2024.

Jón Birgir Gunnlaugsson verkefnastjóri umhverfismála sat fundinn undir þessum lið.

7.Útplöntun í bæjarlandinu

Málsnúmer 2024051762Vakta málsnúmer

Lagt fram minnisblað dagsett 31. maí 2024 varðandi útplöntun í bæjarlandinu.

Jón Birgir Gunnlaugsson verkefnastjóri umhverfismála sat fundinn undir þessum lið.

Fundi slitið - kl. 11:16.