Umhverfis- og mannvirkjaráð

87. fundur 16. október 2020 kl. 08:15 - 12:00 Fjarfundur
Nefndarmenn
  • Andri Teitsson formaður
  • Unnar Jónsson
  • Gunnfríður Elín Hreiðarsdóttir
  • Sigurjón Jóhannesson
  • Berglind Bergvinsdóttir
  • Jana Salóme I. Jósepsdóttir áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Guðríður Friðriksdóttir sviðsstjóri umhverfis- og mannvirkjasviðs
  • Steindór Ívar Ívarsson forstöðumaður viðhaldsdeildar
  • Hildigunnur Rut Jónsdóttir forstöðumaður umhverfis- og sorpdeildar
  • Jónas Valdimarsson verkefnastjóri hönnunar
  • Tómas Björn Hauksson forstöðumaður nýframkvæmda
  • Ketill Sigurður Jóelsson verkefnastjóri ritaði fundargerð
Fundargerð ritaði: Ketill Sigurður Jóelsson verkefnastjóri
Dagskrá

1.Hopp - fyrirspurn til skipulagssviðs

Málsnúmer 2020090583Vakta málsnúmer

Pétur Ingi Haraldsson sviðstjóri skipulagssviðs kynnti fyrir ráðinu samningsdrög að stöðvalausri hjólaleigu á Akureyri.
Umhverfis- og mannvirkjaráð samþykkir fyrir sitt leyti að gerður verði þjónustusamningur um stöðvalausa hjólaleigu við umsækjanda í samræmi við fyrirliggjandi samningsdrög.

2.SVA - leiðakerfi 2020

Málsnúmer 2020020042Vakta málsnúmer

Hrafn Svavarsson forstöðumaður umhverfismiðstöðvar kynnti fyrir ráðinu drög að nýju leiðakerfi strætó.
Umhverfis- og mannvirkjaráð þakkar kynninguna.

3.Glerá - göngu- og reiðbrú ásamt stíg

Málsnúmer 2019110416Vakta málsnúmer

Lagt fram minnisblað dagsett 9. október 2020 varðandi kostnaðarskiptingu á nýrri brú og reiðleið yfir Glerá.
Umhverfis- og mannvirkjaráð samþykkir fyrirlagða kostnaðarskiptingu og felur umhverfis- og mannvirkjasviði að ganga frá samningi þess efnis.

4.Lundarskóli - A-álma

Málsnúmer 2020060448Vakta málsnúmer

Lagt fram minnisblað dagsett 15. október 2020 vegna opnunar tilboða í framkvæmdir við Lundarskóla.

Sigurður Gunnarsson verkefnastjóri nýframkvæmda sat fundinn undir þessum lið.
Umhverfis- og mannvirkjaráð samþykkir að ganga til samninga við lægstbjóðanda ÁK smíði ehf.

5.Sólvallagata 7 - sala

Málsnúmer 2020080611Vakta málsnúmer

Kaupsamningur vegna sölu á Sólvallagötu 7 í Hrísey lagður fyrir ráðið.
Umhverfis- og mannvirkjaráð samþykkir söluna fyrir sitt leyti.

6.Sandgerðisbót - íbúðir

Málsnúmer 2019110467Vakta málsnúmer

Lögð fram stöðuskýrsla dagsett 14. október 2020 varðandi framkvæmdir í Sandgerðisbót.

7.Rekstur leiguíbúða

Málsnúmer 2020100386Vakta málsnúmer

Lagt fram minnisblað dagsett 14. október 2020 vegna viðhalds á leiguíbúðum hjá Akureyrarbæ.

8.Fjárhagsáætlun umhverfis- og mannvirkjasviðs 2021

Málsnúmer 2020080605Vakta málsnúmer

Teknar fyrir gjaldskrár umhverfis- og mannvirkjasviðs og drög að framkvæmdaáætlun 2021-2024.
Umhverfis- og mannvirkjaráð samþykkir fyrirlagða gjaldskrá Slökkviliðs Akureyrar.

Umhverfis- og mannvirkjaráð samþykkir fyrirlagða gjaldskrá umhverfis- og mannvirkjasviðs.

Umhverfis- og mannvirkjaráð samþykkir fyrirlagða gjaldskrá á vinnu tæknimanna á skrifstofu umhverfis- og mannvirkjasviðs.

Umhverfis- og mannvirkjaráð frestar afgreiðslu gjaldskrár umhverfismiðstöðvar.

Umhverfis- og mannvirkjaráð ræddi framkvæmdaáætlun og vísar henni til frekari umræðu í bæjarráð.

9.Snjómokstur 2020-2021

Málsnúmer 2020100385Vakta málsnúmer

Snjómokstur fyrir veturinn 2020-2021 ræddur.

Hrafn Svavarsson forstöðumaður umhverfismiðstöðvar og Jón S. Hansen verkstjóri á umhverfismiðstöð sátu fundinn undir þessum lið.

Fundi slitið - kl. 12:00.