Glerá - göngu- og reiðbrú ásamt stíg

Málsnúmer 2019110416

Vakta málsnúmer

Umhverfis- og mannvirkjaráð - 75. fundur - 27.03.2020

Lagt fram minnisblað dagsett 26. mars 2020 varðandi byggingu göngu- og reiðbrúar yfir Glerá.
Umhverfis- og mannvirkjaráð samþykkir að gengið verði frá samningum um verkið og felur umhverfis- og mannvirkjasviði að vinna málið áfram.

Umhverfis- og mannvirkjaráð - 80. fundur - 26.06.2020

Lögð fram stöðuskýrsla 1 dagsett 19. júní 2020.

Umhverfis- og mannvirkjaráð - 87. fundur - 16.10.2020

Lagt fram minnisblað dagsett 9. október 2020 varðandi kostnaðarskiptingu á nýrri brú og reiðleið yfir Glerá.
Umhverfis- og mannvirkjaráð samþykkir fyrirlagða kostnaðarskiptingu og felur umhverfis- og mannvirkjasviði að ganga frá samningi þess efnis.

Umhverfis- og mannvirkjaráð - 91. fundur - 11.12.2020

Lagt fram minnisblað dagsett 7. desember 2020 varðandi útboð á byggingu brúar yfir Glerá í samstarfi við Landsnet og kostnaðarhlutdeild Akureyrarbæjar vegna framkvæmdanna.
Umhverfis- og mannvirkjaráð samþykkir framlagða kostnaðarhlutdeild að kr. 29 milljónir vegna útboðsins sem var 127% af kostnaðaráætlun.