Umhverfis- og mannvirkjaráð

75. fundur 27. mars 2020 kl. 08:15 - 10:00 Fjarfundur
Nefndarmenn
  • Andri Teitsson formaður
  • Unnar Jónsson varaformaður
  • Gunnfríður Elín Hreiðarsdóttir
  • Sigurjón Jóhannesson
  • Berglind Bergvinsdóttir
  • Jana Salóme I. Jósepsdóttir áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Guðríður Friðriksdóttir sviðsstjóri umhverfis- og mannvirkjasviðs
  • Steindór Ívar Ívarsson forstöðumaður viðhaldsdeildar
  • Ketill Sigurður Jóelsson verkefnastjóri ritaði fundargerð
Fundargerð ritaði: Ketill Sigurður Jóelsson verkefnastjóri
Dagskrá

1.Loftgæðamál og aðgerðaráætlun í Akureyrarbæ

Málsnúmer 2018110215Vakta málsnúmer

Lagðar fram verklagsreglur dagsettar 26. mars 2020 varðandi aðgerðir gegn svifryki.

Rut Jónsdóttir forstöðumaður umhverfis- og sorpmála og Ólafur Stefánsson slökkviliðsstjóri Slökkviliðs Akureyrar sátu fundinn undir þessum lið.
Umhverfis- og mannvirkjaráð frestar afgreiðslu málsins.

2.Slökkviliðið - tímabundin fjölgun v. COVID-19

Málsnúmer 2020030672Vakta málsnúmer

Kynning á aðgerðum Slökkviliðs Akureyrar í ljósi COVID-19.

Ólafur Stefánsson slökkviliðsstjóri sat fundinn undir þessum lið.
Umhverfis- og mannvirkjaráð þakkar kynninguna og styður þær aðgerðir sem slökkviliðsstjóri hefur gripið til með tímabundinni fjölgun starfsmanna vegna COVID-19.

3.Sundlaug Akureyrar - aðstaða fyrir fatlaða

Málsnúmer 2019020424Vakta málsnúmer

Lagt fram minnisblað dagsett 26. mars 2020 varðandi viðhald í Sundlaug Akureyrar.
Umhverfis- og mannvirkjaráð samþykkir að ráðast í endurbætur á búningsklefum á 1. og 2. hæð. í Sundlaug Akureyrar.

4.Sparkvellir við grunnskóla - endurnýjun á gervigrasi 2019

Málsnúmer 2019030361Vakta málsnúmer

Lagt fram skilamat dagsett 26. mars 2020 varðandi gervigrasvelli við Lundarskóla og Giljaskóla.

5.Hlíð - endurnýjun eldhústækja

Málsnúmer 2020030483Vakta málsnúmer

Lagt fram minnisblað dagsett 16. mars 2020 varðandi verkefnið Kokkað og kælt.
Umhverfis- og mannvirkjaráð samþykkir að leita tilboða og ráðast í verkið í framhaldinu.

6.Leikskólinn Klappir við Glerárskóla

Málsnúmer 2018050021Vakta málsnúmer

Lagt fram minnisblað dagsett 11. mars 2020 varðandi opnun tilboða í byggingu á leikskólanum Klöppum.
Umhverfis- og mannvirkjaráð samþykkir að taka lægsta tilboði. Ráðið felur umhverfis- og mannvirkjasviði að ganga til samninga við Hyrnuna ehf.

7.Miðhúsabraut - frárein að Bónus

Málsnúmer 2019110461Vakta málsnúmer

Lagt fram minnisblað dagsett 18. mars 2020 varðandi opnun tilboða í gerð fráreinar af Miðhúsabraut að Bónus.
Umhverfis- og mannvirkjaráð samþykkir að taka lægsta tilboði. Ráðið felur umhverfis- og mannvirkjasviði að ganga til samninga við Finn ehf.

8.Stigi frá Gilsbakkavegi að Kaupvangsstræti

Málsnúmer 2020030486Vakta málsnúmer

Lagt fram minnisblað dagsett 19. mars 2020 varðandi viðhald á stiga frá Gilsbakkavegi niður að Kaupvangsstræti.

9.Glerá - göngu- og reiðbrú ásamt stíg

Málsnúmer 2019110416Vakta málsnúmer

Lagt fram minnisblað dagsett 26. mars 2020 varðandi byggingu göngu- og reiðbrúar yfir Glerá.
Umhverfis- og mannvirkjaráð samþykkir að gengið verði frá samningum um verkið og felur umhverfis- og mannvirkjasviði að vinna málið áfram.

10.Brú - Eyjafjarðará vesturkvísl

Málsnúmer 2019110327Vakta málsnúmer

Lögð fram stöðuskýrsla dagsett 26. mars 2020 varðandi byggingu brúar yfir vesturkvísl Eyjafjarðarár sunnan við flugvöllinn á Akureyri.

11.Veirufaraldrar - aðgerðaáætlun umhverfis- og mannvirkjasviðs

Málsnúmer 2020030482Vakta málsnúmer

Viðbragðsáætlun umhverfis- og mannvirkjasviðs vegna COVID-19 dagsett 18. mars 2020 kynnt fyrir ráðinu.

Rut Jónsdóttir forstöðumaður umhverfis- og sorpmála sat fundinn undir þessum lið.

Fundi slitið - kl. 10:00.