Stjórn Fasteigna Akureyrarbæjar

246. fundur 15. ágúst 2014 kl. 10:25 - 11:50 Bæjarstjórnarsalur á 4. hæð í Ráðhúsi
Nefndarmenn
  • Dagur Fannar Dagsson formaður
  • Eiríkur Jónsson
  • Ingibjörg Ólöf Isaksen
  • Jón Orri Guðjónsson
  • Þorsteinn Hlynur Jónsson
  • Hermann Ingi Arason áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Guðríður Friðriksdóttir framkvæmdastjóri
  • Óskar Gísli Sveinsson
  • Dóra Sif Sigtryggsdóttir fundarritari
Dagskrá

1.Fjárhagsáætlun 2015 - Fasteignir Akureyrarbæjar

Málsnúmer 2014080035Vakta málsnúmer

Farið yfir fjárhagsáætlunarferlið og það tímasett.

2.Naustaskóli 2. áfangi - lóðafrágangur 2014

Málsnúmer 2014070151Vakta málsnúmer

Lagðar fram niðurstöður útboðs frá 8. ágúst 2014 á verkinu. Alls bárust tvö tilboð í verkið og eftir yfirferð er niðurstaðan eftirfarandi:
Finnur ehf - kr. 21.075.440 - 82,6% af kostnaðaráætlun.
Garðtækni ehf - kr. 20.778.880 - 81,4% af kostnaðaráætlun.

Stjórn Fasteigna Akureyrarbæjar samþykkir að gengið verði til samninga við lægstbjóðanda, Garðtækni ehf, á grundvelli tilboðs.

3.Sundlaug Akureyrar - endurnýjun rennibrauta 2014

Málsnúmer 2014020207Vakta málsnúmer

Farið yfir stöðuna á væntanlegri framkvæmd við endurnýjun rennibrautanna og tilnefningu í verkefnislið fyrir framkvæmdina.

Stjórn Fasteigna Akureyrarbæjar tilnefnir Dag Fannar Dagsson L-lista í verkefnisliðið.

Þegar hér var komið vék Ingibjörg Ísaksen B-lista af fundi.

4.Þórunnarstræti 99 - aðstaða fyrir Skátafélagið Klakk í kjallara

Málsnúmer 2014080046Vakta málsnúmer

Tilnefning í verkefnislið vegna uppbyggingar- og framkvæmdasamnings Akureyrarbæjar við Skátafélagið Klakk 2014-2018 dags. 28. maí 2014.

Stjórn Fasteigna Akureyrarbæjar tilnefnir Dag Fannar Dagsson L-lista í verkefnisliðið.

5.Borgargil 1 - 6 íbúðir fyrir fötluð ungmenni

Málsnúmer 2011120037Vakta málsnúmer

Lögð fram stöðuskýrsla 2 fyrir framkvæmdina dagsett 12. ágúst 2014.

6.KA svæði - gervigrasvöllur

Málsnúmer 2012120333Vakta málsnúmer

Lagt fram skilamat dagsett 12. ágúst 2014 fyrir framkvæmdina.

Fundi slitið - kl. 11:50.