Stjórn Akureyrarstofu

182. fundur 26. febrúar 2015 kl. 16:15 - 18:00 Fundarherbergi Akureyrarstofu í menningarhúsinu Hofi
Nefndarmenn
  • Logi Már Einarsson formaður
  • Sigfús Arnar Karlsson varaformaður
  • Eva Hrund Einarsdóttir
  • Hildur Friðriksdóttir
  • Eva Dögg Fjölnisdóttir áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Skúli Gautason framkvæmdastjóri akureyrarstofu ritaði fundargerð
Fundargerð ritaði: Skúli Gautason framkvæmdastjóri
Dagskrá
Anna Hildur Guðmundsdóttir L-lista mætti ekki á fundinn og boðaði ekki forföll.

1.Tax-free endurgreiðsla í Upplýsingamiðstöð ferðamanna á Akureyri

Málsnúmer 2015020151Vakta málsnúmer

María Helena Tryggvadóttir verkefnisstjóri ferðamála á Akureyrarstofu kom á fundinn og greindi frá breytingum sem framundan eru í Tax-free endurgreiðslu. Í þeim felst m.a. að ekki verður leyfilegt skv. reglugerð nr. 1188/2014, sem tók gildi 1. febrúar 2015, að bjóða upp á endurgreiðslu í Upplýsingamiðstöð ferðamanna á Akureyri frá og með 1. júlí 2015.
Stjórn Akureyrarstofu þakkar Maríu Helenu fyrir kynninguna og felur henni að koma athugasemdum við reglugerð þessa á framfæri við ráðuneytið. Jafnframt er starfsfólki Akureyrarstofu falið að kynna fyrirhugaðar breytingar fyrir hagsmunaaðilum í bænum.

2.Ferðamálastefna

Málsnúmer 2014110220Vakta málsnúmer

María Helena Tryggvadóttir verkefnisstjóri ferðamála á Akureyrarstofu kom á fundinn og greindi frá stöðunni á vinnslu ferðamálastefnu fyrir Akureyrarbæ.
Stjórn Akureyrarstofu þakkar Maríu Helenu fyrir kynninguna.

3.Samstarf Kaupmannafélags Akureyrar og Akureyrarstofu

Málsnúmer 2015010198Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar bréf dagsett 13. janúar 2015 frá Vilborgu Jóhannsdóttur formanni Kaupmannasamtaka Akureyrar þar sem óskað er eftir samstarfi við Akureyrarstofu um ýmis mál.
Stjórn Akureyrarstofu felur framkvæmdastjóra Akureyrarstofu að vinna málið áfram.

4.Starfslaun listamanna 2015

Málsnúmer 2015020152Vakta málsnúmer

Stjórn Akureyrarstofu skal skipa þrjá aðila í fagráð til ráðgjafar við úthlutun starfslauna listamanna.
Stjórn Akureyrarstofu samþykkir að Guðmundur Ármann Sigurjónsson, Daníel Þorsteinsson og Brynhildur Þórarinsdóttir verði skipuð í fagráð til ráðgjafar við úthlutun starfslauna listamanna árið 2015.

5.Spírur

Málsnúmer 2015020153Vakta málsnúmer

Ríkissjóður Íslands gaf Akureyrarbæ peningagjöf árið 2012 í tilefni 150 ára afmælis bæjarins. Samþykkt var í bæjarráði þann 14. mars 2013 að 2,5 milljónir króna af þeirri gjöf rynnu í sjóð til að styðja við listastarf ungs fólks.
Stjórn Akureyrarstofu felur verkefnisstjóra viðburða- og menningarmála að leita eftir samstarfsaðilum til eflingar sjóðsins.

6.Náttúrugripasafn Akureyrar

Málsnúmer 2014100066Vakta málsnúmer

Umræður um Náttúrugripasafn Akureyrar.
Stjórn Akureyrarstofu felur framkvæmdastjóra Akureyrarstofu að vinna að framtíðarfyrirkomulagi fyrir Náttúrugripasafn Akureyrar.
Logi Már Einarsson formaður vék af fundi kl. 17:00 og Sigfús Arnar Karlsson varaformaður tók við fundarstjórn.

7.Náttúrupassi - umsögn Akureyrarstofu

Málsnúmer 2015020163Vakta málsnúmer

Skrifstofa Alþingis óskar eftir umsögn við frumvarp til laga um náttúrupassa. Mál 455, þingskjal 699.
Stjórn Akureyrarstofu felur verkefnisstjóra ferðamála að senda umsögn um frumvarpið.

Fundi slitið - kl. 18:00.