Stjórn Akureyrarstofu

160. fundur 03. apríl 2014 kl. 16:00 - 18:30 Fundarherbergi Akureyrarstofu í menningarhúsinu Hofi
Nefndarmenn
  • Halla Björk Reynisdóttir formaður
  • Jón Hjaltason
  • Þórarinn Stefánsson
  • Helena Þuríður Karlsdóttir
  • Hildur Friðriksdóttir
  • Helgi Vilberg Hermannsson áheyrnarfulltrúi
  • Sigfús Arnar Karlsson áheyrnarfulltrúi
  • Unnsteinn Jónsson áheyrnarfulltrúi
  • fundarritari
Fundargerð ritaði: Þórgnýr Dýrfjörð framkvæmdastjóri
Dagskrá

1.Leikfélag Akureyrar - staða rekstrar

Málsnúmer 2011080046Vakta málsnúmer

Soffía Gísladóttir formaður, Ragnheiður Skúladóttir leikhússtjóri og Eiríkur Haukur Hauksson framkvæmdastjóri Leikfélags Akureyrar mættu á fund stjórnarinnar og fóru yfir stöðu Leikfélagsins. Fram kom að stjórn félagsins óskar eftir því að samningur þess við Akureyrarbæ verði tekinn upp til endurskoðunar.

Stjórn Akureyrarstofu samþykkir að fela formanni og framkvæmdastjóra Akureyrarstofu að ræða við félagið um þær óskir.

2.Hrísey - atvinnumál

Málsnúmer 2014020149Vakta málsnúmer

Lögð fram til kynningar skýrsla áhugahóps um atvinnuþróun í Hrísey sem var til umfjöllunar á íbúafundi í eynni þann 26. mars sl. Umræður um skref sem Akureyrarbær getur stigið í þessari vinnu.

3.Heiðursviðurkenningar Menningarsjóðs 2014

Málsnúmer 2014040020Vakta málsnúmer

Rætt um mögulegar viðurkenningar Menningarsjóðs sem afhentar verða á Vorkomu stjórnar Akureyrarstofu á sumardaginn fyrsta, þann 24. apríl nk.

4.Athafna- og nýsköpunarverðlaun Akureyrarbæjar 2014

Málsnúmer 2014040019Vakta málsnúmer

Rætt um athafna- og nýsköpunarverðlaunin sem afhent verða á Vorkomu stjórnar Akureyrarstofu á sumardaginn fyrsta, þann 24. apríl nk.

Stjórn Akureyrarstofu felur Höllu Björk Reynisdóttur, Jóni Hjaltasyni og Unnsteini Jónssyni, fulltrúum í stjórninni ásamt verkefnisstjóra atvinnumála á Akureyrarstofu að undirbúa tillögur um mögulega viðurkenningarhafa fyrir næsta fund.

Fundi slitið - kl. 18:30.