Stjórn Akureyrarstofu

145. fundur 29. ágúst 2013 kl. 16:00 - 17:15 Fundarherbergi Akureyrarstofu í menningarhúsinu Hofi
Nefndarmenn
  • Halla Björk Reynisdóttir formaður
  • Jón Hjaltason
  • Hildur Friðriksdóttir
  • Jóhann Jónsson
  • Helgi Vilberg Hermannsson áheyrnarfulltrúi
  • Sigfús Arnar Karlsson áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Þórgnýr Dýrfjörð fundarritari
Dagskrá

1.Fjárhagsáætlun 2014 - Akureyrarstofa

Málsnúmer 2013080216Vakta málsnúmer

Farið yfir ramma fyrir málaflokka stjórnar Akureyrarstofu og drög að áætlun fyrir árið 2014. Vinnu við fjárhagsáætlun verður haldið fram á næsta fundi.

2.Hátíðahöld á 17. júní og Akureyrarvöku - samþykkt

Málsnúmer 2013080225Vakta málsnúmer

Farið yfir drög að samþykkt fyrir hátíðahöldin á 17. júní og Akureyrarvöku. Samþykktin samanstendur að hluta af eldri samþykkt fyrir hátíðarhöldin á þjóðhátíðardaginn og við hana hefur verið bætt kafla um Akureyrarvöku.

Stjórn Akureyrarstofu óskar eftir áliti framkvæmdaráðs á samþykktinni áður en til endanlegrar afgreiðslu kemur.

3.Grímsey - heimskautsbaugurinn

Málsnúmer 2012040043Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar minnisblað dags. 29. ágúst 2013 frá verkefnisstjóra ferðamála á Akureyrarstofu um framhald og mögulegan kostnað vegna samkeppni um nýtt tákn fyrir heimskautsbauginn í Grímsey.

4.Atvinnu- og nýsköpunarhelgin á Akureyri - samstarfssamningur

Málsnúmer 2013020239Vakta málsnúmer

Fyrr í dag var undirritaður þriggja ára samstarfssamningur milli Akureyrarstofu, Háskólans á Akureyri, Stefnu Hugbúnaðarhúss og Tækifæris hf um framkvæmd Atvinnu- og nýsköpunarhelgarinnar.

Stjórn Akureyrarstofu staðfestir samninginn og fagnar því að framtíð þessa mikilvæga viðburðar er nú tryggð.

Fundi slitið - kl. 17:15.