Stjórn Akureyrarstofu

134. fundur 13. desember 2012 kl. 16:00 - 17:40 Fundarherbergi Akureyrarstofu í menningarhúsinu Hofi
Nefndarmenn
  • Halla Björk Reynisdóttir formaður
  • Sigmundur Einar Ófeigsson
  • Hildur Friðriksdóttir
  • Jóhann Jónsson
  • Sigfús Arnar Karlsson áheyrnarfulltrúi
  • Unnsteinn Jónsson áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Þórgnýr Dýrfjörð fundarritari
Dagskrá

1.Samstarfssamningur sveitarfélaga í Eyþingi um menningarmál

Málsnúmer 2011040136Vakta málsnúmer

Menningarráð Eyþings hefur óskað eftir því að sveitarfélögin sem taka þátt í samstarfinu gefi álit sitt á nokkrum grundvallaratriðum um menningarmál og stöðu þeirra, en það er liður í mótun sameiginlegrar menningarstefnu fyrir svæðið.

Stjórn Akureyrarstofu felur framkvæmdastjóra að svara erindinu í samræmi við þær umræður sem fram fóru á fundinum.

2.Verkefnisstjórn um mótun atvinnustefnu

Málsnúmer 2011110167Vakta málsnúmer

Lögð fram tillaga verkefnisstjórnarinnar dags. 11. desember 2012 um næstu skref í stefnumótunarvinnunni, um utanaðkomandi ráðgjafa, tímaáætlun og kostnaðaráætlun.

Stjórn Akureyrarstofu samþykkir fyrirliggjandi tillögu verkefnisstjórnarinnar.

3.Endurskoðun menningarstefnu Akureyrarbæjar 2011 - hugarflugsfundur

Málsnúmer 2011020012Vakta málsnúmer

Farið yfir hugmyndir og athugasemdir sem borist hafa vegna vinnu við menningarstefnuna, af opnum fundi sem haldinn var þann 27. nóvember sl. frá fulltrúum í stjórn Akureyrarstofu og aðrar aðsendar athugasemdir. Vinnu verður haldið áfram á fyrsta fundi stjórnar eftir áramót en vinnuhópur stjórnarinnar mun vinna að breytingum á stefnumótunardrögunum í millitíðinni.

4.Sundlaug Akureyrar - opnunartímar

Málsnúmer 2012020044Vakta málsnúmer

Íþróttaráð Akureyrar hefur óskað eftir áliti stjórnar Akureyrarstofu á því að afgreiðslutími í Sundlaug Akureyrar verði aukinn um jól og áramót.

Stjórn Akureyrarstofu telur ljóst að ekki verði ráðist í umfangsmiklar framkvæmdir af hálfu Akureyrarbæjar á næstu árum sem munu nýtast ferðaþjónustunni í bænum með beinum hætti. Í því ljósi er mikilvægt að fyrirtæki og stofnanir bæjarins sem koma að þjónustu við ferðamenn séu tilbúin til að aðlaga þjónustu og afgreiðslutíma að þörfum þeirra. Þetta á ekki síst við utan háannatíma í ferðaþjónustunni en fjölmargir aðilar vinna nú að eflingu ferðaþjónustunnar yfir vetrartímann.

Stjórn Akureyrastofu telur því mikilvægt að íþróttaráð og stjórnendur Sundlaugarinnar verði undir það búin að auka afgreiðslutímann í skrefum á næstu misserum og árum í takti við aukna sókn ferðamanna til Norðurlands.

5.Mótorhjólasafn Íslands - styrkbeiðni

Málsnúmer 2012121142Vakta málsnúmer

Erindi dags. 10. desember 2012 frá Skúla Gautasyni f.h. Mótorhjólasafnsins, þar sem óskað er eftir að Akureyrarbær styrki starfsemi safnins með samningi til 3ja ára.

Stjórn Akureyrarstofu getur ekki orðið við erindinu. Þess má geta að nú stendur yfir vinna við stefnumótun í menningarmálum og mótun stefnu í safnamálum fyrir sveitarfélagið þar sem verkefnum verður forgangsraðað.

6.Þrettándagleði Þórs 2013 - styrkbeiðni

Málsnúmer 2012121141Vakta málsnúmer

Erindi dags. 11. desember 2012 frá Páli Jóhannessyni f.h. Íþróttafélagsins Þórs, þar sem óskað er eftir stuðningi við hátíðina og að hann verði með svipuðu sniði og undanfarin ár.

Stjórn Akureyrarstofu samþykkir að styrkja Þréttándagleðina með 150.000 kr. fjárframlagi og aðstoð við framkvæmd.

Fundi slitið - kl. 17:40.