Stjórn Akureyrarstofu

100. fundur 14. júní 2011 kl. 17:00 - 20:25 Fundarherbergi Akureyrarstofu í menningarhúsinu Hofi
Nefndarmenn
  • Sigmundur Einar Ófeigsson varaformaður
  • Helga Mjöll Oddsdóttir
  • Jón Hjaltason
  • Helena Þuríður Karlsdóttir
  • Sóley Björk Stefánsdóttir
Starfsmenn
  • Þórgnýr Dýrfjörð fundarritari
Dagskrá

1.Skipulagsbreytingar í Listagili - hugmyndavinna 2011

Málsnúmer 2011040137Vakta málsnúmer

Brynhildur Kristinsdóttir, Guðmundur Ármann, Sigurbjörg Árnadóttir, Valdís Viðars og Þórarinn Blöndal komu sem fulltrúar félagasamtaka og aðila sem starfa í Listagilinu á Akureyri og kynntu niðurstöður í hugmyndavinnu um framtíðarsýn fyrir Gilið.

Stjórn Akureyrarstofu þakkar gestunum fyrir greinargóða kynningu og afar góða vinnu við skýrslugerðina.

2.Sinfóníuhljómsveit Norðurlands - endurnýjun samnings 2011

Málsnúmer 2011060053Vakta málsnúmer

Magna Guðmundsdóttir framkvæmdastjóri SN og Gunnar Frímannsson formaður stjórnar mættu á fundinn til að fylgja úr hlaði minnisblaði stjórnar SN þar sem fram kemur að nokkur halli verður á rekstrinum um áramót.

Stjórn Akureyrarstofu tekur undir áhyggjur gestanna af stöðunni og hvetur til þess að gripið verði til aðgerða til þess að mæta fyrirsjáanlegum rekstrarhalla. Framundan er endurnýjun samnings við hljómsveitina til þriggja ára og þá verður mótuð stefna til lengri tíma af hálfu stjórnar Akureyrarstofu. Þessi staða verður jafnframt tekin inn í myndina þegar menningarsamningur við ríkið verður endurnýjaður.

3.Fjölskylduhátíð í Hrísey 2011 - styrkbeiðni

Málsnúmer 2011060057Vakta málsnúmer

Erindi dags. 24. maí 2011 frá Lindu Maríu Ásgeirsdóttur f.h. Fjölskylduhátíðarinnar, þar sem óskað er eftir styrk til hátíðarhaldanna.

Stjórn Akureyrarstofu samþykkir styrk að upphæð kr. 100.000 til verkefnisins.

4.Menningarsmiðjan Populus Tremula - ósk um hærra framlag til styrktarsamnings

Málsnúmer 2011060056Vakta málsnúmer

Erindi dags. 27. apríl 2011 frá Arnari Tryggvasyni f.h. Menningarsmiðjunnar þar sem óskað er eftir að framlög til Menningarsmiðjunnar verði hækkuð þannig að þau mæti að fullu húsaleigugreiðslum fyrir aðstöðu smiðjunnar í Listagilinu.

Stjórn Akureyrarstofu felur framkvæmdastjóra að ganga frá nýjum samningi við Menningarsmiðjuna í samræmi við umræður á fundinum.

5.Köfunarskóli Norðurlands - styrkumsókn

Málsnúmer 2011040059Vakta málsnúmer

Erindi ódags. frá Elvari Má Sigurðssyni, f.h. Köfunarskóla Norðurlands, þar sem hann óskar eftir styrk til að mæta kostnaði við námskeið í sportköfun sem skólinn hyggst bjóða upp á m.a. í Sundlaug Akureyrar.

Stjórn Akureyrarstofu getur ekki orðið við erindinu.

6.Starfshópur Akureyrarstofu um atvinnumál - framhald stefnumótunarvinnu

Málsnúmer 2010060120Vakta málsnúmer

Rætt um með hvað hætti haldið verður áfram vinnu við mótun atvinnustefnu Akureyrarbæjar.
Guðmundur Baldvin Guðmundsson B-lista, Njáll Trausti Friðbertsson D-lista og Sigurður Guðmundsson A-lista sátu fundinn undir þessum lið.

Ákvörðun frestað til næsta fundar.

7.Hátíðir og viðburðir á Akureyri 2011 - Bíladagar

Málsnúmer 2011050022Vakta málsnúmer

Farið stutt yfir stöðuna í undirbúningi fyrir Bíladaga 2011.

Fundi slitið - kl. 20:25.