Stjórn Akureyrarstofu

326. fundur 04. nóvember 2021 kl. 14:00 - 16:15 Fundarsalur á 2. hæð í Ráðhúsi
Nefndarmenn
  • Hilda Jana Gísladóttir formaður
  • Sigfús Arnar Karlsson
  • Ásgeir Örn Blöndal Jóhannsson
  • Karl Liljendal Hólmgeirsson áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Kristinn Jakob Reimarsson sviðsstjóri samfélagssviðs ritaði fundargerð
  • Sumarliði Guðmar Helgason
Fundargerð ritaði: Kristinn J. Reimarsson sviðsstjóri Samfélagssviðs
Dagskrá
Anna Fanney Stefánsdóttir L-lista og varamaður hennar boðuðu forföll.
Finnur Sigurðsson V-lista og varamaður hans boðuðu forföll.

1.Menningarfélag Akureyrar - rekstur 2020 - 2021

Málsnúmer 2021011495Vakta málsnúmer

Þuríður H. Kristjánsdóttir framkvæmdastjóri MAk og Eva Hrund Einarsdóttir formaður MAk mættu á fundinn og fóru yfir ársreikning og ársskýrslu MAk fyrir starfsárið 2020 - 2021.
Stjórn Akureyrarstofu þakkar fyrir kynninguna og lýsir yfir ánægju með starfsemi MAk og jákvæða rekstrarniðurstöðu þrátt fyrir áskoranir vegna heimsfaraldurs.

2.Beiðni um framlengingu á samningi um afnot af Friðbjarnarhúsi

Málsnúmer 2021102305Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 27. október sl. frá Haraldi Þór Egilssyni safnstjóra Minjasafnsins á Akureyri þar sem óskað er eftir framlengingu á samningi um afnot af Friðbjarnarhúsi til tveggja ára.

Haraldur Þór Egilsson sat fundinn undir þessum lið og kynnti erindið.
Stjórn Akureyrarstofu þakkar Haraldi Þór Egilssyni fyrir kynninguna og frestar afgreiðslu málsins.

3.Súlur Vertical - stuðningur við fjallahlaupið

Málsnúmer 2021010344Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 18. október sl. frá Birki Baldvinssyni f.h. stjórnar Súlna Vertical þar sem óskað er eftir samstarfi við Akureyrarbæ um framkvæmd hlaupsins til næstu þriggja ára.

Með erindinu fylgir greinargerð vegna styrks sem stjórn Akureyrarstofu veitti vegna Súlna Vertical 2021.
Stjórn Akureyrarstofu felur starfsmönnum að ganga til samninga við Súlur Vertical vegna áframhaldandi þróunar verkefnisins í þá átt að það verði sjálfbært. Stjórnin leggur áherslu á að verkefnið verði yfirfarið árlega og lagt mat á stöðu þess.

4.Flugklasi - samstarf um millilandaflug til Norðurlands

Málsnúmer 2011060107Vakta málsnúmer

Lögð fram til kynningar skýrsla Flugklasans Air 66N tímabilið 9. apríl til 26. október 2021.

5.Fundargerðir safnráðs Listasafnsins á Akureyri

Málsnúmer 2002040036Vakta málsnúmer

Fundargerð safnráðs Listasafnsins nr. 28 lögð fram til kynningar.

6.Starfs- og fjárhagsáætlun stjórnar Akureyrarstofu 2022

Málsnúmer 2021060306Vakta málsnúmer

Umræða um starfs- og fjárhagsáætlun stjórnar Akureyrarstofu 2022.

Þórgnýr Dýrfjörð forstöðumaður Akureyrarstofu tók þátt í fundinum undir þessum lið í gegnum fjarfundarbúnað.
Afgreiðslu frestað.

Fundi slitið - kl. 16:15.