Stjórn Akureyrarstofu

324. fundur 16. september 2021 kl. 14:00 - 16:07 Fundarsalur á 2. hæð í Ráðhúsi
Nefndarmenn
  • Sigfús Arnar Karlsson varaformaður
  • Ásgeir Örn Blöndal Jóhannsson
  • Anna María Hjálmarsdóttir
  • Karl Liljendal Hólmgeirsson áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Kristinn Jakob Reimarsson sviðsstjóri samfélagssviðs ritaði fundargerð
  • Þórgnýr Dýrfjörð forstöðumaður akureyrarstofu
Fundargerð ritaði: Kristinn J. Reimarsson sviðsstjóri Samfélagssviðs
Dagskrá
Hilda Jana Gísladóttir S-lista boðaði forföll. Varamaður hennar mætti ekki.
Anna María Hjálmarsdóttir V-lista sat fundinn í fjarveru Finns Dúa Sigurðarsonar.
Ásgeir Örn Blöndal Jóhannsson D-lista sat fundinn í fjarveru Berglindar Óskar Guðmundsdóttur.
Anna Fanney Stefánsdóttir L-lista boðaði forföll sem og varamaður hennar.

1.Samningur við MAk 2021 - 2023

Málsnúmer 2021051151Vakta málsnúmer

Samningur við MAk lagður fram til samþykktar.

Eva Hrund Einarsdóttir formaður stjórnar MAk og Þuríður H. Kristjánsdóttir framkvæmdastjóri MAk sátu fundinn undir þessum lið.
Stjórn Akureyrarstofu samþykkir að fela starfsmönnum að uppfæra samninginn út frá umræðum á fundinum.

2.Starfs- og fjárhagsáætlun stjórnar Akureyrarstofu 2022

Málsnúmer 2021060306Vakta málsnúmer

Starfs- og fjárhagsáætlun stjórnar Akureyrarstofu lögð fram til umræðu ásamt tillögu að gjaldskrám fyrir árið 2022.

Hlynur Hallsson safnstjóri Listasafnsins og Hólmkell Hreinsson amtsbókavörður sátu fundinn undir þessum lið.
Unnið verður áfram að starfs- og fjárhagsáætlun og áframhaldandi umræðu vísað til næsta fundar.

3.Beiðni um endurnýjun á samstarfssamningi

Málsnúmer 2021090110Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 2. september 2021 frá Steinunni Maríu Sveinsdóttur safnstjóra Flugsafnsins þar sem óskað er eftir endurnýjun á samstarfssamningi Menningarsjóðs Akureyrar og Flugsafnsins.
Stjórn Akureyrarstofu vísar erindinu til Menningarsjóðs sem auglýsir árlega eftir styrkumsóknum. Fyrirhugað er að auglýsa eftir umsóknum í nóvember á þessu ári.

Fundi slitið - kl. 16:07.