Stjórn Akureyrarstofu

312. fundur 26. janúar 2021 kl. 12:00 - 14:35 Fjarfundur
Nefndarmenn
  • Hilda Jana Gísladóttir formaður
  • Anna Fanney Stefánsdóttir
  • Sigfús Arnar Karlsson
  • Kristján Blær Sigurðsson
  • Finnur Sigurðsson
  • Karl Liljendal Hólmgeirsson áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Kristinn Jakob Reimarsson sviðsstjóri samfélagssviðs ritaði fundargerð
  • Þórgnýr Dýrfjörð forstöðumaður akureyrarstofu
Fundargerð ritaði: Kristinn J. Reimarsson sviðsstjóri Samfélagssviðs
Dagskrá
Kristján Blær Sigurðsson D-lista mætti í forföllum Berglindar Óskar Guðmundsdóttur.

Í upphafi fundar óskað formaður eftir afbrigðum frá útsendri dagskrá að mál nr. 2021011496 Amtsbókasafnið - aðsóknartölur verði tekið út af dagskrá. Var það samþykkt.
Síðar á fundinum var samþykkt að taka mál nr. 2015060091 Listasafnið á Akureyri af dagskrá.

1.Niðurstöður þjónustukönnunar Gallup 2020

Málsnúmer 2021011256Vakta málsnúmer

Jón Þór Kristjánsson verkefnastjóri upplýsingamiðlunar kynnti niðurstöður úr þjónustukönnun Gallup.

2.Kynningaráætlanir sviða

Málsnúmer 2020010038Vakta málsnúmer

Kynningaráætlun samfélagssviðs fyrir árið 2021 lögð fram til kynningar.

Jón Þór Kristjánsson verkefnastjóri upplýsingamiðlunar sat fundinn undir þessum lið.

3.Súlur Vertical - stuðningur við fjallahlaupið

Málsnúmer 2021010344Vakta málsnúmer

Á fundinn mættu Birkir Baldvinsson og Þorbergur Ingi Jónsson og kynntu verkefnið Súlur Vertical fjallahlaupið.
Stjórn Akureyrarstofu tekur jákvætt í erindið og felur starfsmönnum að leggja mat á kostnað sem felst í stuðningi Akureyrarbæjar við framkvæmd hlaupsins.

4.Menningarfélag Akureyrar - rekstur 2020 - 2021

Málsnúmer 2021011495Vakta málsnúmer

Fimm mánaða uppgjör MAk lagt fram til kynningar.

Eva Hrund Einarsdóttir formaður MAk og Þuríður H. Kristjánsdóttir framkvæmdastjóri MAk mættu á fundinn og gerðu grein fyrir uppgjörinu. Einnig voru til umræðu húsnæðismál Leikfélags Akureyrar/Leiklistarskólans.
Karl Lilljendal Hólmgeirsson vék af fundi kl.14:15.

5.Sigurhæðir - leiga húsnæðis

Málsnúmer 2019090404Vakta málsnúmer

Til umræðu leiga á Sigurhæðum.
Stjórn Akureyrarstofu samþykkir að húsið Sigurhæðir verði auglýst til leigu og felur starfsmönnum Akureyrarstofu að útbúa auglýsingu þar sem kallað verði eftir hugmyndum um notkun og rekstur hússins án búsetu. Í framlögðum hugmyndum komi m.a. fram um hvaða starfsemi ræðir, hvernig hún tengist sögu hússins, hvernig hún verði fjármögnuð og hvernig rekstur muni standa undir húsaleigu og föstum rekstrarkostnaði hússins. Við yfirferð á framlögðum hugmyndum og tilboðum mun fyrirhuguð starfsemi og menningarlegt vægi gilda 50% af mati og tilboð um leigufjárhæð 50%. Stjórn Akureyrarstofu mun annast matið.

Fundi slitið - kl. 14:35.