Stjórn Akureyrarstofu

294. fundur 06. febrúar 2020 kl. 14:00 - 17:30 Rósenborg - fundarsalur 3. hæð
Nefndarmenn
  • Hilda Jana Gísladóttir formaður
  • Sigfús Arnar Karlsson
  • Anna María Hjálmarsdóttir
  • Eva Hrund Einarsdóttir
  • Karl Liljendal Hólmgeirsson áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Kristinn Jakob Reimarsson sviðsstjóri samfélagssviðs ritaði fundargerð
  • Þórgnýr Dýrfjörð deildarstjóri akureyrarstofu
Fundargerð ritaði: Kristinn J. Reimarsson sviðsstjóri Samfélagssviðs
Dagskrá
Anna María Hjálmarsdóttir V-lista mætti í forföllum Finns Dúa Sigurðssonar.
Anna Fanney Stefánsdóttir L-lista boðaði forföll sem og varamaður hennar.

1.Fjölmiðlavaktin - fjölmiðlaumfjöllun um Akureyrarbæ 2016-2020

Málsnúmer 2016060043Vakta málsnúmer

Ragnar Hólm Ragnarsson verkefnastjóri upplýsinga- og kynningarmála fór yfir helstu niðurstöður úr fjölmiðlaumfjöllun um Akureyrarbæ á tímabilinu október 2018 - október 2019.

2.Hrísey - markaðsátak

Málsnúmer 2019070521Vakta málsnúmer

Ragnar Hólm Ragnarsson verkefnastjóri upplýsinga- og kynningarmála fór yfir helstu niðurstöður úr rannsókn RMF um ferðamenn í Hrísey 2019.

3.Niðurstöður þjónustukönnunar Gallup

Málsnúmer 2020010624Vakta málsnúmer

Jón Þór Kristjánsson verkefnastjóri upplýsingamiðlunar fór yfir niðurstöður úr þjónustukönnun Gallup.

4.Safnastefna Akureyrarbæjar

Málsnúmer 2014110087Vakta málsnúmer

Drög að nýrri safnastefnu lögð fram til kynningar og umræðu.

Sigríður Örvarsdóttir verkefnastjóri safnastefnu sat fundinn undir þessum lið.
Stjórn Akureyrarstofu samþykkir að hefja samtal við aðra stofnaðila Minjasafnsins um að kannaður verði fýsileiki þess að sameina sögu- og minjasöfn sem eru að verulegu eða öllu leyti fjármögnuð af Akureyrarbæ og/eða varðveita mikilvæga sögu bæjarins.

Karl Liljendal Hólmgeirsson vék af fundi kl. 16:30.
Anna María Hjálmarsdóttir vék af fundi kl. 16:40.

5.Kynningaráætlanir sviða 2020

Málsnúmer 2020010038Vakta málsnúmer

Kynningaráætlun samfélagssviðs 2020 lögð fram til kynningar.

6.Minjasafnið á Akureyri - endurnýjun þjónustusamnings

Málsnúmer 2016040100Vakta málsnúmer

Lagður fram til samþykktar viðauki við þjónustusamning Akureyrarbæjar og Minjasafnsins frá 2018.
Stjórn Akureyrarstofu samþykkir framlagðan viðauka.

7.Menningarfélag Akureyrar - endurnýjun samninga MH, LA og SN

Málsnúmer 2016120092Vakta málsnúmer

Lagður fram til samþykktar viðauki við samning Akureyrarbæjar og MAk vegna viðbótarframlags frá mennta- og menningarmálaráðuneytinu en stjórn Akureyrarstofu samþykkti á síðasta fundi að hlutur MAk vegna Sinfóníuhljómsveitar Norðurlands væri 8 milljónir.
Stjórn Akureyrarstofu samþykkir framlagðan viðauka.

Fundi slitið - kl. 17:30.