Stjórn Akureyrarstofu

266. fundur 29. nóvember 2018 kl. 14:00 - 16:24 Rósenborg - fundarsalur 3. hæð
Nefndarmenn
  • Hilda Jana Gísladóttir formaður
  • Anna Fanney Stefánsdóttir
  • Eva Hrund Einarsdóttir
  • Finnur Sigurðsson
  • Karl Liljendal Hólmgeirsson áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Þórgnýr Dýrfjörð deildarstjóri akureyrarstofu ritaði fundargerð
Fundargerð ritaði: Kristinn J. Reimarsson sviðsstjóri Samfélagssviðs
Dagskrá
Anna Fanney Stefánsdóttir L-lista mætti í forföllum Önnu Hildar Guðmundsdóttur.
Sigfús Karlsson B-lista og varamaður hans boðuðu forföll.

1.AFE - kynning á starfsemi

Málsnúmer 2018110109Vakta málsnúmer

Sigmundur Ófeigsson framkvæmdastjóri AFE mætti á fundinn og kynnti starfsemi og helstu verkefni félagsins.
Stjórn Akureyrarstofu þakkar Sigmundi greinargóða kynningu og gagnlega umræðu.

2.Fjölmiðlavakt - greining

Málsnúmer 2016060043Vakta málsnúmer

Ragnar Hólm Ragnarsson verkefnastjóri kynningarmála mætti á fundinn og fór yfir greiningu á fjölmiðlaumfjöllun um Akureyrarbæ fyrstu 10 mánuði ársins.
Stjórn Akureyrarstofu þakkar Ragnari fyrir greinargóða yfirferð.

3.FabLab Akureyri

Málsnúmer 2014090260Vakta málsnúmer

Lögð fram til samþykktar drög að endurnýjuðum samningi um stuðning Akureyrarbæjar við rekstur FabLab-smiðjunnar á Akureyri.
Stjórn Akureyrarstofu samþykkir drögin fyrir sitt leyti og vísar þeim til bæjarráðs.

4.Safnastefna Akureyrarbæjar

Málsnúmer 2014110087Vakta málsnúmer

Þórgnýr Dýrfjörð deildarstjóri Akureyrarstofu gerði grein fyrir vinnu undirbúningshóps við nýja safnastefnu. Hópurinn mun skila drögum að verkáætlun á næsta fundi stjórnar.

Fundi slitið - kl. 16:24.