Stjórn Akureyrarstofu

259. fundur 06. september 2018 kl. 14:00 - 17:10 Rósenborg - fundarsalur 3. hæð
Nefndarmenn
  • Hilda Jana Gísladóttir formaður
  • Anna Fanney Stefánsdóttir
  • Sverre Andreas Jakobsson
  • Eva Hrund Einarsdóttir
  • Finnur Sigurðsson
  • Karl Liljendal Hólmgeirsson áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Þórgnýr Dýrfjörð deildarstjóri akureyrarstofu
  • Kristinn Jakob Reimarsson sviðsstjóri samfélagssviðs ritaði fundargerð
Fundargerð ritaði: Kristinn J. Reimarsson sviðsstjóri Samfélagssviðs
Dagskrá
Anna Fanney Stefánsdóttir L-lista mætti í forföllum Önnu Hildar Guðmundsdóttur.
Sverre Andreas Jakobsson B-lista mætti í forföllum Sigfúsar Karlssonar.

1.Frumkvöðlasetur á Akureyri

Málsnúmer 2015110232Vakta málsnúmer

Sigurður Steingrímsson verkefnastjóri Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands á Akureyri mætti á fundinn og gerði grein fyrir starfsemi Verksmiðjunnar, frumkvöðlaseturs.

Stjórn Akureyrarstofu þakkar Sigurði fyrir komuna á fundinn og fyrir veittar upplýsingar um starfsemi Verksmiðjunnar.



2.Viðburðasjóður Hofs og Samkomuhússins

Málsnúmer 2018080024Vakta málsnúmer

Lögð fram til kynningar drög að vinnureglum og samkomulagi fyrir listasjóð Akureyrarbæjar.
Stjórn Akureyrarstofu felur deildarstjóra Akureyrarstofu að gera breytingar á skjölum út frá umræðu á fundinum.

3.Skylduskil Amtsbókasafnsins

Málsnúmer 2018090051Vakta málsnúmer

Lagt fram minnisblað amtsbókavarðar vegna skylduskila safnsins. Samkvæmt lögum nr. 20/2002 er Amtsbókasafnið annað af tveimur söfnum sem skilgreind eru sem móttökusöfn fyrir allt prentað efni sem gefið er út á landinu.
Stjórn Akureyrarstofu telur óásættanlegt að Akureyrarbær eitt sveitarfélaga beri kostnað af lögum um skylduskil og felur formanni stjórnar og starfsmönnum að hefja viðræður við ríkið um fjárveitingar vegna starfseminnar.

4.Aðgengi íbúa Hörgársveitar að Amtsbókasafninu

Málsnúmer 2018090052Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 28. ágúst, frá Snorra Finnlaugssyni sveitarstjóra Hörgársveitar, þar sem óskað er eftir samningi við Akureyrarbæ varðandi hagkvæmari möguleika á aðgengi íbúa Hörgársveitar að Amtsbókasafninu.
Stjórn Akureyrarstofu getur ekki orðið við erindinu.

5.Yfirlit yfir samninga Akureyrarstofu

Málsnúmer 2018090054Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar yfirlit yfir samninga Akureyrarstofu.

6.Beiðni um flutning á útilistaverkinu Harpa bænarinnar

Málsnúmer 2018090065Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 31.05 2018 frá Brynju Ragnarsdóttur f.h. aðstandenda Guðmundar Jörundssonar og Mörtu Sveinsdóttur sem gáfu Akureyrarbæ listaverkið Harpa bænarinnar árið 1974. Í erindinu er óskað eftir að bæjaryfirvöld láti færa verkið af Hamarkotstúni þar sem það er nú og á sýnilegri stað í bænum.
Stjórn Akureyrarstofu þakkar fyrir erindið og frestar afgreiðslu þess. Jafnframt óskar stjórn Akureyrarstofu eftir að umhverfis- og mannvirkjasvið vinni forgangslista yfir viðhald og framkvæmdir við útilistaverk í samvinnu við safnstjóra Listasafnsins á Akureyri.

7.Starfs- og fjárhagsáætlun stjórnar Akureyrarstofu 2019

Málsnúmer 2018080874Vakta málsnúmer

Áframhaldandi vinna við starfs- og fjárhagsáætlun.

Fundi slitið - kl. 17:10.