Stjórn Akureyrarstofu

252. fundur 18. apríl 2018 kl. 16:15 - 17:50 Rósenborg - fundarsalur 3. hæð
Nefndarmenn
  • Unnar Jónsson formaður
  • Sigfús Arnar Karlsson
  • Silja Dögg Baldursdóttir
  • Eva Hrund Einarsdóttir
  • Hildur Friðriksdóttir
  • Eva Dögg Fjölnisdóttir áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Þórgnýr Dýrfjörð deildarstjóri Akureyrarstofu
  • Kristinn Jakob Reimarsson sviðsstjóri samfélagssviðs ritaði fundargerð
Fundargerð ritaði: Kristinn J. Reimarsson sviðsstjóri Samfélagssviðs
Dagskrá
Silja Dögg Baldursdóttir L-lista mætti í forföllum Önnu Hildar Guðmundsdóttur.
Í upphafi fundar óskað formaður eftir að taka inn á dagskrá fundar mál nr. 2016110028, Menningarfélag Akureyrar - beiðni um kaup á búnaði. Var það samþykkt.

1.Iðnaðarsafnið á Akureyri - skipun fulltrúa í stjórn

Málsnúmer 2010090020Vakta málsnúmer

Hulda Sif Hermannsdóttir hefur verið fulltrúi Akureyrarbæjar í stjórn Iðnaðarsafnsins. Skipa þarf nýjan fulltrúa í hennar stað. Aðalfundur er í byrjun maí.
Stjórn Akureyrarstofu samþykkir að skipa Almar Alfreðsson verkefnastjóra menningarmála sem fulltrúa Akureyrarbæjar í stjórn Iðnaðarsafnsins.

2.Iðnaðarsafnið, ársreikningur 2017

Málsnúmer 2018040159Vakta málsnúmer

Lagður fram til kynningar ársreikningur Iðnaðarsafnsins fyrir árið 2017.

3.Minjsafnið á Akureyri - endurnýjun þjónustusamnings

Málsnúmer 2016040100Vakta málsnúmer

Lagður fram til kynningar og umræðu endurnýjaður samningur við Minjsafnið á Akureyri.
Starfsmönnum falið að kalla eftir frekari upplýsingum frá Minjasafninu út frá umræðu á fundinum.

4.Flugklasi - samstarf um millilandaflug til Norðurlands

Málsnúmer 2011060107Vakta málsnúmer

Skýrsla flugklasans Air 66N dagsett 20. mars 2018 lögð fram til kynningar.

5.Stjórn Akureyrarstofu - 10 ára áætlun

Málsnúmer 2018010365Vakta málsnúmer

Lögð fram til samþykktar 10 ára áætlun stjórnar Akureyrarstofu.
Stjórn Akureyrarstofu samþykkir 10 ára áætlun og vísar henni til bæjarráðs.

6.Menningarfélag Akureyrar - beiðni um kaup á búnaði

Málsnúmer 2016110028Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 26. mars 2018 frá Þuríði H. Kristjánsdóttur framkvæmdastjóra MAk, þar sem óskað er eftir fjármagni til kaupa á tækjabúnaði vegna hljóðupptöku í Hofi ásamt endunýjun sviðsbúnaðar tækja í Hof og Samkomuhús. Áframhald umræðu frá síðasta fundi.
Stjórn Akureyrarstofu samþykkir að óska eftir kr. 18.000.000 úr áhalda- og búnaðarsjóði umhverfis- og mannvirkjasviðs Akureyrarbæjar til að endurnýja sviðsbúnað og tæki í Hofi og Samkomuhúsinu með möguleika á því að skipta kostnaði á tvö ár.

Fundi slitið - kl. 17:50.