Stjórn Akureyrarstofu

213. fundur 18. ágúst 2016 kl. 16:15 - 18:40 Fundarherbergi Akureyrarstofu í menningarhúsinu Hofi
Nefndarmenn
  • Unnar Jónsson formaður
  • Sigfús Arnar Karlsson
  • Eva Hrund Einarsdóttir
  • Hildur Friðriksdóttir
  • Silja Dögg Baldursdóttir
  • Eva Dögg Fjölnisdóttir áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Þórgnýr Dýrfjörð framkvæmdastjóri Akureyrarstofu ritaði fundargerð
Dagskrá
Anna Hildur Guðmundsdóttir L-lista boðaði forföll og mætti Silja Dögg Baldursdóttir í hennar stað.

1.Listasumar og Akureyrarvaka - 2016

Málsnúmer 2016020010Vakta málsnúmer

Hulda Sif Hermannsdóttir verkefnisstjóri menningarmála og viðburða á Akureyrarstofu kom á fundinn og fór yfir dagskrá og framkvæmd Akureyrarvöku sem haldin verður að kvöldi föstudags 26. ágúst og laugardaginn 27. ágúst nk.
Stjórn Akureyrarstofu lýsir yfir ánægju sinni með fyrirliggjandi dagskrá Akureyrarvöku og sérstaklega með samstarf Akureyrarstofu, RÚV og N4 vegna viðburðanna í Listagili að kvöldi laugardagsins. Stjórnin þakkar Huldu Sif fyrir greinargóða kynningu.

2.Menningarfélag Akureyrar - ACO, upptökuhljómsveit SN

Málsnúmer 2014090088Vakta málsnúmer

Þuríður Kristjánsdóttir framkvæmdastjóri Menningarfélagsins og Þorvaldur Bjarni Þorvaldsson tónlistarstjóri félagsins og framkvæmdastjóri Sinfóníuhljómsveitar Norðurlands mættu á fundinn og fóru yfir stöðu ACO (Arctic Cinematic Orchestra) sem er upptökuhljómsveit SN.
Stjórn Akureyrarstofu þakkar Þuríði og Þorvaldi fyrir komuna og greinargóða kynningu og umræður.

3.Fjárhagsáætlun 2017 - Stjórn Akureyrarstofu

Málsnúmer 2016080056Vakta málsnúmer

Forsendur og fjárhagsrammi fjárhagsáætlunar fyrir árið 2017 kynnt.

4.Fjárhagsáætlun Akureyrarstofu 2016

Málsnúmer 2015080026Vakta málsnúmer

Lagðar formlega fram til samþykktar tillögur um breytingar á fjárhagsáætlun yfirstandandi árs í samræmi við niðurstöður aðgerðarhóps um framtíðarrekstur Akureyrarbæjar.
Stjórn Akureyrarstofu samþykkir fyrirliggjandi tillögur og felur framkvæmdastjóra að ganga frá þeim í samræmi við umræður á fundinum.

5.Verslunarmannahelgin 2016 - Íslensku sumarleikarnir - styrkbeiðni

Málsnúmer 2016080059Vakta málsnúmer

Lagt fram erindi dagsett 26. júní 2016 frá Davíð Rúnari Gunnarssyni f.h. Viðburðastofu Norðurlands þar sem óskað er eftir styrk að upphæð kr. 1.400.000 vegna Íslensku sumarleikanna.
Stjórn Akureyrarstofu samþykkir styrk að upphæð kr. 1.200.000 til verkefnisins. Jafnframt samþykkir stjórnin að fela framkvæmdastjóra að ræða við bréfritara um mögulegan samning um framtíðarstuðning við hátíðina.

Fundi slitið - kl. 18:40.